Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 16
Lítið flutningafyrirtæki í Noregi hefur gert tilraunir með að nota lýsi sem eldsneyti á flutn- ingabíla fyrirtækisins. Frá þessu er skýrt á fréttavefjum norsku dagblaðanna Verdens Gang og Telemarksavisa í gær. Lýsið hefur verið notað á sumrin í stað olíu á um það bil helminginn af fimmtán bifreiðum fyrirtækisins Hannevold Trans- port, en þetta eru ósköp venjulegir og óbreyttir olíuknúnir bílar. Ekki er hægt að nota lýsið á veturna því það frýs. Lýsið er umhverfisvænt eldsneyti því ekki gefur það neinn koltvísýring frá sér. Á hinn bóginn leggur sterka fiskilykt af bílum fyrirtækisins. Nota lýsi sem eldsneyti á bíla Lögregla í Þýska- landi hefur handtekið tvo víet- namska menn, sem grunaðir eru um að hafa framið morð á sjö manns á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen suður af Hamborg á sunnudagskvöld. Sex fórnarlambanna, þrjár konur og þrír karlar, fundust látin í blóði sínu, sum bundin og kefluð, um miðnætti á sunnudagskvöld. Sjöundi maðurinn sem hafði einnig verið skotinn fannst með lífsmarki en lést af sárum sínum á sjúkrahúsi skömmu síðar. Kókaín fannst í fórum hinna handteknu. Tveir grunaðir handteknir Samtökin Framtíðar- landið munu ekki að bjóða fram til Alþingis í vor. Haldin var atkvæða- greiðsla um framboðið á félags- fundi samtakanna á Hótel Loftleið- um á miðvikudagskvöld. 96 greiddu atkvæði gegn því að samtökin bjóði fram og 92 með því. Til að sam- þykkja framboðið hefðu 2/3 hlutar félagsmanna þurft að vera fylgj- andi framboðinu. Ósk Vilhjálmsdóttir, varafor- maður Framtíðarlandsins, telur tvær meginástæður vera fyrir því að félagar Framtíðarlandsins höfn- uðu tillögunni um framboð. „Fólk var hrætt um að aðrir stjórnmála- flokkar í stjórnarandstöðu hefðu tapað fylgi ef Framtíðarlandið hefði boðið fram. Hin ástæðan er sú að margir eru á þeirri skoðun að Framtíðarlandið eigi að vera þrýstiafl sem rúmi fólk úr öllum flokkum,“ segir Ósk. Varaformað- urinn telur að á þessu stigi sé úti- lokað að Framtíðarlandið bjóði ein- hvern tíma fram í kosningum. María Ellingsen, sem situr í stjórn Framtíðarlandsins, segir að þó að Framtíðarlandið ætli ekki að bjóða fram undir sínu nafni þá muni það skýrast í þessum mánuði hvort einhverjir meðlimir samtak- anna bjóði fram í þingkosningun- um í vor. „Það eru háværar raddir um að það þurfi grænt framboð í kosningunum, jafnvel hægri grænt. Allir sem vilja grænt framboð tala nú saman um möguleikann á fram- boði,“ segir María. Býður ekki fram til Alþingis Stjórnir Samtaka fjár- málafyrirtækja og Félags fast- eignasala hafa formlega neitað að afhenda Fréttablaðinu fundar- gerðir sínar en þær hafa ekki verið gerðar opinberar. Blaðamaður óskaði eftir funda- gerðunum til þess að fá úr því skorið hvort málefni sem gætu talist til samkeppnismála hefðu komið til umræðu á stjórnarfund- um og hvaða málefni það væru sem fjallað væri um á stjórnar- fundum. Í formlegum svörum stjórn- anna bera þær því báðar við að þær hafi lagalegan rétt til þess að neita að afhenda gögnin. Engar frekari útskýringar eru færðar fyrir neituninni nema hvað stjórn Samtaka fjármálafyrirtækja segir ekki „hefð fyrir því að fundar- gerðir hagsmunasamtaka séu opinber gögn“. Jóhannes Gunnarsson, formað- ur Neytendasamtakanna, segir það öllum til hagsbóta að hafa fundargerðir upp á borðinu, ekki síst hjá samtökum sem fjalla um málefni sem við koma fjölmörg- um neytendum líkt og stjórnir Félags fasteignasala og Samtaka fjármálafyrirtækja gera. „Þó sam- keppnisyfirvöld geti óskað eftir öllum þeim upplýsingum sem þau þurfa, til þess að skoða hvort sam- keppnismálefni hafi komið til umræðu, þá finnst mér eðlilegast og farsælast að hafa þessar upp- lýsingar upp á borðinu. Hvað er verið að fela?“ Guðjón Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjármála- fyrirtækja, segir samtökin ekki hafa neitt að fela. „Samkeppnisyf- irvöld geta alltaf fengið að skoða okkar gögn ef þau telja rök standa til þess að samkeppnismálefni séu rædd á þessum vettvangi. Þau hafa ekki óskað eftir því að skoða okkar gögn enda er alveg klárt að samkeppnismálefni hafa aldrei komið til umræðu innan stjórnar- innar.“ Í stjórn Félags fasteignasala sitja Björn Þorri Viktorsson, Ingi- björg Þórðardóttir, Einar Páll Kjærnested og Viðar Böðvarsson. Í stjórn Samtaka fjármálafyrir- tækja sitja níu menn. Þeir eru Hreiðar Már Sigurðsson, Bjarni Ármannsson, sem jafnframt er stjórnarformaður, Ásgeir Bald- urs, Halldór J. Kristjánsson, Guð- mundur Hauksson, Helgi Bjarna- son, Valgeir Pálsson, Friðrik Jóhannsson og Sævar Helgason. Í varastjórn eru einnig níu, þar af ein kona, Þóra Hallgrímsdóttir. Neita alfarið að af- henda fundargerðir Stjórnir Félags fasteignasala og Samtaka fjármálafyrirtækja neita að oinbera fundargerðir. „Hvað er verið að fela?“ spyr formaður Neytendasamtakanna. Sam- keppnisyfirvöldum velkomið að skoða okkar gögn, segir Guðjón Rúnarsson. Félag kúabænda á Suðurlandi skorar á Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra að fella nú þegar niður alla tolla á innfluttar kjarnfóðurblöndur. Verð kjarnfóðurs til mjólkur- framleiðslu hafi áhrif á verð- myndun afurða og þar með matvælaverð. Þetta var samþykkt á aðal- fundi félagsins sem haldinn var á dögunum. Félagið vill einnig beina því til afurðastöðva í landbúnaði að skoða hvort hagkvæmt sé að byggja sameigin- lega dreifingarmiðstöð fyrir landbúnaðarafurðir á höfuðborg- arsvæðinu. Vilja fella niður kjarnfóðurtolla FÍB sakar íslensku flug- félögin enn um að hafa samráð um verðlagningu á öllu frá fargjöldum og skattheimtu til veitinga um borð. Þessi þróun sé greinileg frá þeim tíma að nýir meirihlutaeig- endur komu að Iceland Express í ársbyrjun 2005. Eigendur Iceland Express og eigendur Icelandair hafi margvísleg viðskipta- og eignatengsl. Samstilltar verðhækk- anir félaganna séu sláandi: „Þær hafa enn sterkara yfirbragð samráðs heldur en nokkru sinni í tilfelli olíufélaganna – og er þá mikið sagt,“ segir í nýjasta tölublaði tímarits FÍB sem biðlar til Samkeppniseftirlitsins um að grípa í taumana. Sláandi samráð viðskiptafélaga Íslensk dagblöð urðu þrjú talsins í gær þegar Viðskipta- blaðið kom út í fyrsta skipti sem dagblað. Blaðið kemur hér eftir út frá þriðjudegi til laugardags eða fimm sinum í viku. Viðskiptablaðið hóf útgáfu sem vikublað fyrir þrettán árum. Starfsmenn Viðskiptablaðsins fögnuðu tímamótunum á Hótel Borg og afhenti Óli Björn Kárason ritstjóri þess Höllu Tómasdóttur, fram- kvæmdastjóra Viðskiptaráðs, fyrsta eintakið. Halla sagðist fagna framtakinu og þótt henni þætti hugmyndin „dálítið klikkuð“ eins og hún orðaði það, sagðist hún sannfærð um að grundvöllur væri fyrir útgáfunni. Viðskiptablaðið orðið dagblað Ævintýralegar fiskbúðir – úrval af gómsætum fiskréttum Skötuselur með mangó Helgarfreisting F ISK ISAGA Hamraborg 14a / Sk ipho l t i 70 / Höfðabakka 1 / Nesveg i 100 (Vegamótum) / Sund laugaveg i 12 / Háa le i t i sbrau t 58–60 / f i sk i saga . i s
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.