Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 44

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 44
 9. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið hola í höggi Pro Golf ehf. er nýtt fyrirtæki sem hóf starfsemi sína fyrir stuttu. Fyrirtækið hefur að- stöðu í Gilsbúð í Garðabæ og hefur einn fullkomnasta tækja- búnað sem þekkist í dag. Þá hefur Pro Golf tekið við rekstri Bása. Pro Golf sérhæfir sig í golfkennslu á mjög víðtækan hátt. „Við byrjuðum með þessa inni- aðstöðu í Garðabæ en vildum stækka þetta frekar. Þá ákváðum við að grípa tækifærið með Bása, stærstu og bestu æfingaaðstöðu landsins, og leigjum þá aðstöðu af Golfklúbbi Reykjavíkur. Nú í febrúar vorum við að opna golf- skóla þar sem kennslan fer fram á báðum stöðum. Við erum með kennslu fyrir alla, allt frá byrj- endum upp í afrekskennslu og svo erum við með alla hópa- kennslu,“ segir Ólafur Már Sig- urðsson, sem er skólastjóri Golf- skólans. Pro Golf spratt upp úr hug- myndaflæði þriggja golfáhuga- manna sem fannst þörf á inniað- stöðu og tæknilegum aðbúnaði svo fólk gæti eflt tækni sína og hæfni í golfi. Þessi hugmynd þeirra varð síðan að veruleika og í apríl í fyrra var Pro Golf golf- skólinn stofnaður af þeim Bynj- ari Eldon Geirssyni, Gunnari Gunnarssyni og Ingimundi Helga- syni. Nokkru síðar bættist síðan Ólafur Már við. Skólinn er starfræktur í Gils- búð 7 í Garðabæ og voru fest kaup á vönduðum tækjabúnaði. „Við höfum m.a. einn besta golfhermi í heiminum. Við reynum að veita okkar viðskiptavinum eins góða þjónustu og hægt er,“ segir Ólaf- ur Már. Í Gilsbúð er hægt að fara í sveiflu- og púttgreiningu í þartil- gerðum tækjum og þar má finna tæki sem byggt er upp á laser- og radartækni í fremstu röð. Þar er púttflöt lögð með gervigrasi sem hefur eiginleika náttúrulegs grass. Fyrir utan púttflötinn er hærra gras þar sem hægt er að æfa vipp. Margir af bestu kylfingum landsins nýta sér þessa aðstöðu Pro Golf reglulega en þar á meðal er Birgir Leifur Hafþórsson. Golfæfingasvæðið Básar í Grafarholti hefur slegið í gegn hjá kylfingum landsins. Þar er boðið upp á golfæfingasvæði á þremur hæðum og er aðstaðan flóðlýst. Þá eru hitalampar á fyrstu tveimur hæðunum. Einnig má finna sérstakt einkarými til golfkennslu. „Fyrsta byrjendanámskeiðið í ár hefst einmitt núna á sunnudag. Þannig að ef fólk er að spá í að byrja í golfi þá er bara um að gera að kýla á það strax,“ segir Ólafur Már. Auk hans sjá þeir Ástráður Sigurðsson og David Barnwell um kennsluna en hjá fyrirtækinu starfa einnig tveir golfleiðbein- endur, Jóhann K. Hjaltason og Hlynur Þór Haraldsson. Allar upplýsingar um nám- skeiðin sem skólinn býður upp á má finna á heimasíðunni www. progolf.is. Þegar golfvellirnir fara að opna munu síðan fleiri námskeið bætast við. - egm Bjóða upp á námskeið fyrir alla Í Gilsbúð má finna golfhermi sem er meðal þeirra bestu í heiminum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Púttflötin er lögð með gervigrasi sem hefur alla þá eiginlega sem náttúrulegt gras hefur. www.brynja.is • brynja@brynja.is Laugavegi 29 • Sími 552 4320 Gamaldags útiljós
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.