Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 48

Fréttablaðið - 09.02.2007, Síða 48
 9. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR6 fréttablaðið hola í höggi Heiðar Davíð Bragason er einn af okkar fremstu kylfingum. Á mánudaginn heldur hann til Portúgals þar sem hann mun taka þátt í þremur mótum. Í apríl stefnir hann síðan á að flytjast til Svíþjóðar. „Maður er sífellt að reyna að lengja golf- tímabilið hjá sér og Ísland býður ekki upp á það. Því ætla ég að flytjast með fjölskylduna til Svíþjóðar en við stefnum á að vera komin út í byrjun apríl,“ segir Heiðar Davíð Braga- son, kylfingur úr Kili í Mosfellsbæ. Heiðar heldur á mánudag út til Portúgals ásamt Ottó Sigurðssyni. „Við keppum í þremur mótum þarna, verðum í mánuð og komum aftur 12. mars,“ segir Heiðar en það má segja að undirbún- ingstímabilið sé í gangi hjá honum. „Ég tók mér smá frí í nóvember og tók þann mánuð bara í að lyfta. Í desember og janúar hef ég síðan verið á fullu í golfi og lyft með því. Ég er að æfa fjóra og hálfan tíma til sjö tíma á dag virka daga en aðeins minna um helgar Svo byrjar tímabilið af fullum krafti í apríl,“ segir Heiðar og er þá að tala um sænsku mótaröðina sem hann tekur þátt í. „Við kíkjum kannski til Svíþjóðar um helgina til að skoða íbúðir og athuga hvaða golfvellir eru á besta svæðinu. Þegar ég er búinn að flytja get ég keyrt á flestöll mótin en þarf ekki sífellt að vera að fljúga. Þá eru allar aðstæður betri en hér heima, það er hlýrra yfir allt árið. Maður getur nánast æft alla tólf mánuðina í suðurhluta Svíþjóðar.“ Heiðar Davíð segist hafa sett sér mark- mið fyrir næstu þrjú árin. „Ég geri það með tölfræðilegum hætti. Ég stefni á ákveðin meðalskor og að hitta ákveðið margar braut- ir og flatir. Ég er búinn að vinna í þessum markmiðum og þau eru öll komin á blað hjá mér. Í gegnum tíðina hafa þessi markmið hjá mér þróast smátt og smátt. Maður er hættur að setja sér það markmið að lenda í einhverju sérstöku sæti á mótum því oftast er það ekkert undir manni sjálfum komið,“ segir Heiðar. „Ég fer í Evrópuúrtökuna næsta haust og sé svo til hvað ég fer langt á henni. Ég stefni á að komast upp úr golfinu í Skandinavíu og komast að í betri mótaröðum. Það gæti vel verið að maður reyni fyrir sér í fleiri deild- um og aldrei að vita nema maður athugi mótaröðina í Asíu eða Suður-Afríku. Það fer samt náttúrlega eftir því hvernig maður er staddur fjárhagslega,“ segir Heiðar en pen- ingamálin standa vel hjá honum núna. „Landsbankinn er minn aðalstyrktaraðili og ég er ánægður með þann samning. Svo er hópur af fyrirtækjum bakvið mig og klúbb- urinn stendur einnig vel við bakið á mér. Maður er allavega kominn með fjármagn fyrir næstu tvö til þrjú ár,“ segir Heiðar. Að lokum biður blaðamaður hann um að velja sína uppáhaldsgolfvelli hér á landi. „Það er náttúrlega heimavöllurinn, hann reynir á alla þætti og býður upp á skemmti- leg högg. Svo nefni ég einnig Suðurnesin og Vestmannaeyjar. Annars er bara yfirleitt gaman að spila á þeim völlum þar sem manni hefur gengið vel. Það verða að vera góðar minningar bakvið þá til að þeir séu í uppá- haldi,“ segir Heiðar Davíð Bragason. - egm Flytur til Svíþjóðar með vorinu Heiðar og Ottó Sigurðsson við æfingar hjá Pro Golfi í Garðabænum. Heiðar Davíð Bragason hefur sett sér persónuleg markmið fyrir næstu þrjú árin. Davíð Gunnlaugsson er ungur kylfingur hjá Kili í Mosfells- bæ sem er smitaður af golf- bakteríunni. Hann smitaðist á golfnámskeiði sem móðir hans sendi hann á fyrir sex árum. „Ég hef verið í golfinu í um sex ár. Þetta byrjaði þannig að ég fór með vinum mínum á golfnámskeið hérna hjá Kili í Mosfellsbæ þar sem ég bý. Mæður okkar sendu okkur á þetta námskeið og þar féll ég eiginlega algjörlega fyrir golf- inu,“ segir Davíð Gunnlaugs- son, efnilegur kylfingur á nítj- ánda aldursári sem stundar nám í Verslunarskóla Íslands. „Ég er bara fjórar mínútur að labba niður á golfvöll frá heimili mínu. Ég hef verið sjálfur með golfnámskeið yfir sumartímann og því verið á golfvellinum frá átta á morgn- ana til tíu á kvöldin. Á sumrin fer ég í golf alla daga vikunn- ar,“ segir Davíð og telur að dágóður hópur á hans aldri sé í golfinu. „Ég er í vinahópi í Mos- fellsbæ sem er mikið í golf- inu, í honum erum við svona sjö sem erum allir á svipuðum aldri.“ Þótt Davíð eyði miklum tíma á golfvellinum segist hann ekki fylgjast mikið með golfmótum erlendis. „Ég horfi á golfmót í sjónvarpinu öðru hvoru en þá aðallega þegar stórmót eru í gangi, eins og t. d. Ryders, Masters eða Brit- ish Open,“ segir Davíð sem er sjálfur með 3,4 í forgjöf. Hann æfir golf tvisar í viku yfir vetrartímann og fer síðan oft á æfingasvæðið. Þá hefur hann nokkrum sinnum farið utan í golfferðir. „Um jólin var ég á Kanaríeyjum og fór aðeins í golf þar. Svo mun ég í næsta mánuði fara til Spánar og spila golf þar,“ segir Davíð Gunnlaugsson, hinn efnilegi kylfingur. - egm Smitaðist gjör- samlega af golfinu Það tekur Davíð Gunnlaugsson aðeins fjórar mínútur að labba út á golfvöll heiman frá sér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI F U L L M Ó T A Ð U P E R S Ó N U L E I K A H E I M I L I S I N S H Ö N N U N - R Á Ð G J Ö F - Þ J Ó N U S T A Hafnarfjörður 2006 Síðumúla 35 108 Reykjavík Sími 517 0200 heild@heild.is www.heild.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.