Fréttablaðið - 09.02.2007, Side 52

Fréttablaðið - 09.02.2007, Side 52
 9. FEBRÚAR 2007 FÖSTUDAGUR10 fréttablaðið hola í höggi GB ferðir á Stórhöfða bjóða upp á golfferðir allt árið um kring. Jóhann Pétur Guðjóns- son hjá fyrirtækinu segir að Foxhills, Surrey, sé það vinsæl- asta hjá þeim en ferðir þangað hafa slegið í gegn. „Við seljum Íslendingum mikið af ferðum, aðallega á vorin og haustin en þó er tímabilið farið að lengjast. Það verður sífellt meira um að fólk fari erlendis í golfferðir yfir sum- artímann,“ segir Jóhann Pétur Guðjónsson hjá GB ferðum. Vin- sælustu ferðirnir sem fyrirtækið býður upp á eru til Foxhills í Eng- landi enda ótrúlega margir kostir sem fylgja ferð þangað. „Það er sífellt að verða vinsælla hjá fólki hér á landi að fara í styttri ferðir, mikil aukning í sölu á tveggja til fjögurra daga ferðum. Við seljum mest til Bretlandseyja enda er ferðatíminn þangað ekki langur. Það er 90 mínútna flug til Skotlands og einhverjir tveir tímar til Englands þannig að þú getur spilað bæði daginn sem þú kemur og daginn sem þú ferð heim. Við erum með sjö golfhótel í Englandi og um fimm í Skotlandi. Þetta eru góð hótel og golfvöllur alveg við hótelið þannig að það fer enginn tími í að ferðast á völlinn,“ segir Jóhann. Íslendingar sem fara í golfferð- ir skipta þúsundum en á síðasta ári voru það alls 800 Íslendingar sem fóru til Foxhills. „Það er aðeins tut- tugu mínútna akstur frá Heathrow- flugvellinum og boðið upp á fjög- urra stjörnu hótel. Þá eru tveir átján holu golfvellir og einn níu holu. Þar geta menn farið yfir eina helgi og samt spilað mikið. Það er tekið á móti fólki á flugvellinum og áður en þú veist af ertu kominn út á golfvöll,“ segir Jóhann Pétur. „Fólk vill oft nota tímann í svona ferðum til að kíkja eitthvað í bæinn. Fólk vill skoða verslanir, kíkja í leikhús, fara á fótboltaleiki eða bara skoða sig um. Lundúnasvæðið er því vinsælast en einnig Manchester þar sem hægt er að nota ferðina til að kíkja á fótbolta- leiki,“ segir Jóhann. Báðir 18 holu vellirnir á Fox- hills eru skógarvellir. Þeir eru tölu- vert ólíkir í hönnun og það gerir kylfingum færi á að spila á tveim- ur ólíkum völlum á sama svæði. Hótelið er mjög gott og öll aðstaða til fyrirmyndar. Þess má geta að í mars í fyrra var tekin í notkun ný álma með 30 herbergjum. Foxhills er góður kostur ef þú vilt ná að nýta tímann sem best. - egm Stuttar golf- ferðir vinsælar Aðalbyggingin er stórglæsileg. Glæsileg aðstaða er fyrir kylfinga á Foxhills.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.