Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 2
Baldur, geta rafvirkjanemarn-
ir ekki lagað andrúmsloftið?
Starfsmaður fyrirtækis-
ins Alcan, sem rekur álverið í
Straumsvík, hringdi í fyrrverandi
starfsmann álversins og bauð
honum launaða vinnu hjá Alcan
við að hringja í Hafnfirðinga til
að biðja þá um að samþykkja
stækkun álversins í Straumsvík.
Fyrrverandi starfsmaðurinn vill
ekki koma fram undir nafni.
Þegar maðurinn, sem er íbúi í
Hafnarfirði og fór á eftirlaun
fyrir tveimur árum, neitaði boði
Alcan á þeim forsendum að hann
væri á móti stækkun álversins
var hann beðinn um að gera Alcan
þann greiða að skila auðu í kosn-
ingunum.
Hafnfirðingar munu kjósa um
fyrirhugaða stækkun álversins í
Straumsvík 31. mars næstkom-
andi. Ef þeir samþykkja stækk-
unina mun framleiðslugeta
álversins aukast úr 180 þúsund
tonnum á ári í 460 þúsund.
Hrannar Pétursson, upplýs-
ingafulltrúi Alcan, segir að for-
ráðamenn Alcan hvetji starfs-
menn til að greiða atkvæði með
stækkuninni. Hann segir einnig
að Alcan hafi hvatt starfsmenn
sína til að fá Hafnfirðinga til að
greiða atkvæði með stækkuninni.
Aðspurður staðfestir hann að
stofnað hafi verið kosningateymi
skipað starfsmönnum Alcan sem
miðli upplýsingum um stækkun-
ina.
Hrannar neitar því að fyrrver-
andi starfsmönnum hafi verið
boðin vinna við að hvetja Hafn-
firðinga til að samþykkja stækk-
un. „Alcan hvetur starfsmenn
fyrirtækisins til að leggja sínum
vinnustað lið, hvernig svo sem
þeir gera það. Starfsmönnum fyr-
irtækisins er svo frjálst að hringja
í þá sem þeir vilja. Við munum
hvetja hvern þann sem tekur þátt
í kosningunum að greiða atkvæði
Alcan í hag,“ segir Hrannar. Hann
líkir aðferð fyrirtækisins við
kosningabaráttu stjórnmála-
flokka og segir hana ekki óeðli-
lega.
Tryggvi Skjaldarson, starfs-
maður álversins og meðlimur í
kosningateymi Alcan, segir að
vinna teymisins gangi út á að fá
fólk til að greiða atkvæði með
stækkun. Tryggvi fær greidd laun
fram að kosningunum fyrir vinnu
sína í teyminu. Hann er sann-
færður um að kosningateymið
muni reyna að fá alla Hafnfirð-
inga og fyrrverandi starfsmenn
álversins til að kjósa með stækk-
uninni en að það hafi enn ekki
verið gert. „Þetta er kosninga-
slagur og við ætlum að taka
hann,“ segir Tryggvi.
Hvattir til að sam-
þykkja stækkunina
Fyrrverandi starfsmanni Alcan boðin vinna við að hvetja Hafnfirðinga til að
greiða atkvæði með stækkun álversins í Straumsvík. Alcan hefur stofnað kosn-
ingateymi starfsmanna sem á að fá Hafnfirðinga til að samþykkja stækkun.
Foreldrar unglings
kölluðu í lögreglu í vikunni þegar
unglingurinn sætti sig ekki við að
nettenging hans hafði verið tekin
úr sambandi. Þetta er í þriðja
skiptið á nokkrum vikum sem
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sinnir útkalli af þessum toga.
Í tilkynningu frá lögreglu
segir að foreldrar drengsins hafi
brugðið á það ráð að taka beini
(router) úr sambandi til að
takmarka tölvunotkun hans. Hann
tók því mjög illa og kom til
stimpinga.
Ekki hlutust neinir áverkar
eða skemmdir af átökunum.
Táningur tryllist
vegna netbanns
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
TOYOTA COROLLA WAGON
Nýskr. 06.03 - Sjálfskiptur - Ekinn 59 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð
1.480
.000.
-
Romano Prodi, forsætis-
ráðherra Ítalíu, sagði af sér á
sjöunda tímanum í gærkvöld eftir
að stjórn hans
hafði tapað
atkvæða-
greiðslu í
þinginu í gær.
Áætlunin
snerist um
utanríkisstefnu
landsins og fól
meðal annars í
sér hernaðarað-
gerðir í
Afganistan. Alls 158 þingmenn
greiddu atkvæði með utanríkis-
stefnu Prodis en 160 atkvæði
þurfti til að ná meirihluta.
Atkvæðagreiðslan var ekki
bindandi en utanríkisráðherra
Ítalíu, Massimo D´Alema, hafði
sagt að ríkisstjórnin ætti að segja
af sér ef hún tapaði atkvæða-
greiðslunni. Eftir að úrslitin voru
kunn kallaði stjórnarandstaðan
strax eftir afsögn stjórnarinnar.
Romano Prodi
hefur sagt af sér
Ungur karlmaður var
sýknaður af kynferðisbroti gegn
stúlkubarni í Héraðsdómi Vestur-
lands í gær. Manninum var gefið
að sök að hafa brotið gegn fimm
ára gamalli stúlku sumarið 2003,
þegar hann var sjálfur fjórtán ára,
með því að stinga getnaðarlim
sínum í munn hennar.
Stúlkan greindi frá atburðinum
í fyrra og gekkst maðurinn við
verknaðinum fyrir dómi. Hann
hafði hins vegar ekki náð sakhæf-
isaldri þegar brotið átti sér stað og
því var maðurinn sýknaður.
Honum var hins vegar gert að
greiða stúlkunni 300 þúsund
krónur í miskabætur.
Ósakhæfur
vegna aldurs
Sjálfstæðismenn í
sveitarstjórn Skagafjarðar segja
meirihluta Samfylkingar og
Framsóknarflokks nýta heima-
síðu sveitarfélagsins sem
áróðursvettvang. Tvö nýleg dæmi
um þetta séu fréttir um skólamál
og byggingu leikskóla þar sem
hvergi sé getið afstöðu minnihlut-
ans. Fulltrúi vinstri grænna segir
meðferð meirihlutans á heima-
síðu sveitarfélagsins vera
forkastanlega. Fulltrúar meiri-
hlutans segja á móti að jákvæðar
fréttir virðist fara fyrir brjóstið á
fulltrúum minnihlutans en að
meirihlutinn ætli ekki að liggja á
slíkum fréttum.
Sögð misnota
heimasíðu
Alcan hvetur starfs-
menn fyrirtækisins til
að leggja sínum vinnustað lið,
hvernig svo sem þeir gera það.
Margrét Frímannsdótt-
ir var harðorð í garð stjórnvalda
á Alþingi í gær og gerði meint
úrræðaleysi stjórnvalda í
málefnum langt leiddra fíkla að
umtalsefni. Spurði hún hvort ekki
væri vilji til að efla starfsemi
fagaðila eins og SÁÁ, fremur en
að styrkja stofnanir sem ekki
veita viðurkennda meðferð.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis-
ráðherra sagðist ætla að beita sér
fyrir eflingu SÁÁ og benti á að
aðgengi að áfengismeðferð sé
óvíða betra en hér á landi.
Margrét sagði þá Siv fara með
þvaður. Byrgið hafi til dæmis
verið stofnað af því að fíklarnir
hafi verið á götunni.
Úrræðaleysi í
málefnum fíkla
Gagnrýni á samein-
ingu Iðnskólans í Reykjavík og
Fjöltækniskóla Íslands (FÍ) er
byggð á misskilningi að mati Jóns
B. Stefánssonar, skólameistara FÍ.
Hann segir ótta kennara Iðnskól-
ans um réttindamissi og að vissar
iðngreinar komi til með að líða
fyrir breytingarnar ástæðulausan
þar sem réttindi kennara séu vel
tryggð og námsframboð verði
aukið.
„Við erum að reyna að fá meira
frelsi inn í skólann og atvinnulífið
með okkur sem stóreykur tæki-
færi nemenda,“ segir Jón og minn-
ir á að öll skólastig séu nú í hraðri
endurskoðun. „Ég bendi á að þegar
Stýrimanna- og Vélskólanum var
breytt í tækniskóla þá fjölgaði
nemendum og vegna rekstrar-
formsins þá var aðstaða nemenda
bætt stórlega,“ segir Jón. Hann
segir að kennarar Fjöltækniskól-
ans séu almennt ánægðir með
sameiningaráformin enda tali þeir
af reynslu þar sem þeir hafi starf-
að undir áþekku rekstrarformi og
sameinaðir skólar muni starfa
eftir.
Sigurður Ingi Andrésson, trún-
aðarmaður kennara í FÍ, segist
halda að kennarar skólans séu
spenntir fyrir sameiningu. „Við
sjáum í þessu tækifæri frekar en
neikvæðar breytingar. Helsta
gagnrýnin sem ég hef heyrt er
varðandi húsnæðismál og að kennt
verði á tveimur stöðum. Það hafa
vaknað spurningar um hvernig
því verður blandað saman.“
Sigurður Hreinsson,
trésmiður frá Húsavík, er sáttur
við að Ker hf., áður Olíufélagið hf.,
hafi verið dæmt til að greiða honum
fimmtán þúsund króna skaðabæt-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur á
föstudaginn. Olíufélagið tók þátt í
ólögmætu verðsamráði olíufélag-
anna ásamt Olís og Skeljungi á
árunum 1993 til 2001, Sigurður
keypti bensín af Olíufélaginu fyrir
um 1,1 milljón á árunum 1995 til
2001.
Með dómnum voru einstaklingi í
fyrsta skipti dæmdar bætur vegna
verðsamráðs olíufélaganna. Ker
mun áfrýja dómnum til Hæstarétt-
ar. Að sögn Sigurðar er leikurinn
því aðeins hálfnaður. „Nú er búið að
greiða leiðina fyrir frekari mála-
ferlum einstaklinga gegn olíufélög-
unum,“ segir Sigurður.
Steinar Guðgeirsson, lögmaður
Sigurðar, segir að um 150 einstakl-
ingar, sem telja sig hafa beðið fjár-
hagslegan skaða vegna samráðsins,
bíði eftir niðurstöðunni í máli Sig-
urðar.
Hörður Felix Harðarson, lög-
maður Skeljungs, segir langt í að
Skeljungur taki ákvarðanir um
hvernig brugðist verði við því ef
einstaklingar höfða skaðabótamál
gegn félaginu. Hann segir að
Skeljungur muni bíða eftir niður-
stöðu Hæstaréttar í málinu. Hörð-
ur segir að ef til þess komi að ein-
staklingar ætli að höfða
skaðabótamál gegn Skeljungi sé
ekki útilokað að slík mál yrðu
útkljáð utan dómstóla en að of
snemmt sé að fullyrða um það.
Niðurstaðan er hálfur sigur