Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 6
Er eðlilegt að stjórnvöld bregð- ist við klámráðstefnunni? Horfir þú á sjónvarp í meira en tvo klukkutíma á dag? „Við erum ekki sátt við staðsetninguna á skiltinu,“ segir Eva Rós Jóhannsdóttir, útibússtjóri SPH-SPV í Garðabæ, sem mótmælt hefur því að bæjaryfirvöld hafa heimilað Kaupþingi að setja upp auglýsingaskilti við Vífils- staðaveg. Kaupþing fékk um miðjan desember heimild skipulagsnefndar Garðabæjar til að setja upp auglýsingaskilti við Víf- ilsstaðaveg. Kaupþing fékk heimild fyrir skiltinu í eitt ár en ákvörðun um varan- legt skilti var frestað í skipulagsnefnd vegna fyrirhugaðra breytinga á svæðinu á næstunni. Eins og Sparisjóður Hafnarfjarðar hefur Kaupþing rekið útibú um árabil á Garðatorgi. Undirstöður skiltis Kaup- þings eru komnar á sinn stað. Eva Rós segir í bréfi til Gunnars Einarssonar bæjarstjóra að skilti Kaupþings muni klárlega hindra sýnileika skiltis spari- sjóðsins sem staðið hafi á þessum stað í áraraðir. Óeðlilegt sé að leyfa þessa stað- setningu á skilti keppinautar sparisjóðs- ins. „Sætir það furðu að jafnræðissjónar- mið skuli ekki hafa verið haft að leiðar- ljósi við þessa framkvæmd,“ segir í mót- mælabréfi útibússtjórans. Kaupþing skyggir á sparisjóð Spilling gegnsýrir Rússland og ógnar jafnvel þjóðaröryggi þrátt fyrir loforð Vladimirs Pútín, forseta Rúss- lands, um að gera meira til að berjast gegn henni að því er kemur fram í óvenju umbúða- lausri skýrslu opinberrar ráðgjafanefndar. Sérfræðingar segja að spillingarvandinn hafi aukist eftir að Pútín tók við völdum árið 2001. Spilling allsráð- andi í Rússlandi Meirihluti þeirra lyfja sem Tollgæslan í Reykjavík legg- ur hald á eru venjuleg lyf sem ber- ast frá erlendum ríkjum en er ekki leyfilegt að flytja til landsins með pósti. Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir, yfirtollvörður hjá póstmiðstöð Tollgæslunnar, segir að öll lyf sem komi frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og ber- ast hingað til lands með þeim hætti séu bönnuð. Meiri slaki ríkir í reglum varðandi innflutning á lyfjum innan EES, en þó er ekki hægt að flytja inn lyf sem eru lyf- seðilsskyld á Íslandi án þess að geta framvísað lyfseðli. „Þetta er mjög skýrt, ef lyfin sem við leggj- um hald á koma frá EES-svæðinu og eru lyfseðilsskyld þá getur móttakandinn beðið eftir lyfseðli og fengið þau afhend í kjölfarið. Allt annað er bannað.“ Tollgæslan stöðvaði tæplega 1.100 póstsendingar á síðasta ári vegna gruns um að lyfjainnihald sendinganna samræmdist ekki íslenskum reglum varðandi inn- flutning á lyfjum til landsins, en það eru tæplega þrjár haldlagn- ingar á dag og aukning um 70 pró- sent frá árinu 2005. Regína Hallgrímsdóttir, sviðs- stjóri eftirlitssviðs Lyfjastofnun- ar, segir að stofnunin finni fyrir þessari breytingu samhliða auknu innstreymi erlends vinnuafls, en útgefnum dvalarleyfum hjá Útlendingastofnun fjölgaði um 36 prósent milli áranna 2005 til 2006. Hún telur ýmsar skýringar geta verið á þessu. „Sumt fólk kemur hingað í ákveðinn tíma sem vinnuafl og kemst ekki inn í trygg- ingakerfið hér á landi. Stundum eru þetta lyf sem einfaldlega eru ekki til hér. Og svo getur vel verið að lyfin séu kannski ódýrari í heimalandinu þar sem lyfjaverð er háð efnahag þjóðanna.“ Hildur Sverrisdóttir, forstöðu- maður alþjóðasviðs Trygginga- stofnunar Íslands, segir mjög skýrar reglur gilda um það hve- nær einstaklingar séu sjúkra- tryggðir hér á landi og komist þannig inn í tryggingakerfið. „Þeir sem hafa verið með lögheimili á Íslandi í að minnsta kosti sex mán- uði eru sjúkratryggðir. Það er óháð ríkisborgararétti. Síðan eru það hinir, sem við köllum ferða- menn frekar en útlendinga, því að Íslendingar búsettir erlendis geta einnig tilheyrt þeim hópi. Það eru þeir sem koma hingað tímabundið án þess að vera með búsetu á Íslandi. Þeir eru ekki sjúkra- tryggðir.“ Útlendingar á Íslandi panta lyf að heiman Stærstur hluti þeirra lyfja sem tollgæslan leggur hald á eru venjuleg lyf fram- leidd erlendis. Útlendingar búsettir á Íslandi panta lyf frá heimalöndunum. Innflutningur slíkra lyfja eykst í takt við fjölda útlendinga á Íslandi. Riða er aftur komin upp á Hrafnkelsstöðum í Hruna- mannahreppi. Í þessum mánuði hafa tvær ær frá bænum greinst með riðu, en þar kom upp riða vorið 2001. Þá var öllu fénu fargað. Í tilkynningu segir að engin sjúkdómseinkenni hafi verið á kindunum sem nú hafa greinst með riðu, en hún fannst í heila- sýnum sem tekin voru vegna reglubundins eftirlits með sjúkdómnum. Landbúnaðarráð- herra hefur verið tilkynnt um málið og er nú unnið að undirbún- ingi niðurskurðar og samninga- gerð við ábúendur. Hrafnkelsstaðir með riðu á ný Róbert Trausti Árna- son, fyrrverandi varafastafull- trúi Íslands hjá NATO, vill ekki veita neinn aðgang að dagbókum þeim sem Þór Whitehead sagn- fræðingur vitnaði til í grein sinni í Fréttablaðinu hinn 20. október í fyrra. Í greininni var sagt frá meintri beiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar, þáverandi utan- ríkisráðherra, um að Róbert kann- aði, árið 1989, „hvort Svavar Gestsson hafi verið í hópi erind- reka STASI“. „Ég efast um að ég hleypi nokk- urn tíma nokkrum í þetta,“ segir Róbert. Þór hafi einungis verið sýndur afmarkaður kafli og með ströngum skilyrðum. „Sjálfur vil ég að allur þessi sannleikur fái að liggja í friði. Það er engum greiði gerður með því að rifja þetta upp.“ Aðspurður hvers vegna Þór hafi þá fengið að vitna í dagbækur Róberts, svarar hann því til að „fullyrðingar sem komu fram um skrímsladeild Sjálfstæðisflokks- ins og fullyrðingar um grófustu lögbrot gáfu fullt tilefni til þess að rifja upp óþægilegar staðreyndir vinstra megin við línuna“. Róbert segir ekki koma til greina að gefa út minningar sínar á bók síðar meir. „Nei, drottinn minn dýri. Alls ekki. [...] Ég hafði enga ánægju af því að minna Jón Baldvin á óþægilega hluti úr hans fortíð, sem hann auðvitað var búinn að steingleyma.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.