Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 25
Agnar Már Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Opinna kerfa, hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri hins
nýstofnaða fyrirtækis Titan
Invest. Þá mun hann jafnframt
taka sæti í stjórn Titan ehf.
Markmið
Titan er að leita
uppi fjárfest-
ingartækifæri
erlendis á sviði
upplýsinga-
tækni, þar sem
veitt er sam-
bærileg þjón-
usta og Titan
veitir á Íslandi.
Þetta kemur
fram í fréttatil-
kynningu frá félaginu. Titan er
upplýsingafyrirtæki sem einbeitir
sér að lausnum fyrir stærri fyrir-
tæki, auk þess að bjóða þjónustu
þeim erlendu fyrirtækjum á
Íslandi sem nota Orange Business
Solutions.
Titan Invest er í eigu Símans og
F. Bergson Holding.
Nýr stjóri hjá
Titan Invest
Stjórnendur Alfesca gera ráð
fyrir að ráðast í stór fyrirtækja-
kaup á næstu tólf til átján mánuð-
um, þegar og ef rétt tækifæri
gefst. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu með uppgjöri félagsins fyrir
annan fjórðung reikningsársins
sem var birt í gær.
Stjórnendur félagsins áætla
jafnframt að kaupa minni félög á
næstu mánuðum til að styðja við
ytri vöxt sinn. Í fyrradag tilkynnti
Alfesca um kaup á franska rækju-
framleiðandanum Adrimex fyrir
1,9 milljarða íslenskra króna.
Alfesca hagnaðist um 19,4
milljónir evra á öðrum fjórðungi
reikningsárs síns. Það jafngildir
um 1,7 milljörðum króna, sem er í
takti við spár greiningardeilda
bankanna.
Sala á öðrum ársfjórðungi nam
235 milljónum evra, um 20,5 millj-
örðum íslenskra króna. Er það 6,1
prósents aukning frá síðasta ári.
Rekstrartekjur fyrir afskriftir
(EBITDA) á öðrum ársfjórðungi
námu 34,7 milljónum evra, eða
rúmum þremur milljörðum
króna.
Síðasti ársfjórðungur var sá
mikilvægasti í rekstri Alfesca.
Sextíu til sjötíu prósent af fram-
legð félagsins myndast á því tíma-
bili. Í fyrrahaust lækkaði laxa-
verð á mörkuðum eftir að hafa
hækkað mjög á fyrri hluta ársins
2006. Það voru félaginu góð tíð-
indi enda kom fjörutíu prósent af
veltu félagsins frá sölu á reyktum
laxaafurðum á síðasta ári. Í
fréttatilkynningu frá Alfesca
segir að margt bendi nú til þess
að laxaverð sé að ná meiri stöðug-
leika.
Alfesca stefnir að stórum kaupum
MP Fjárfestingarbanki varð aðili
að OMX-kauphöllinni í Stokkhólmi
frá og með gærdeginum. Fyrir var
bankinn aðili að kauphöllunum í
Reykjavík, Tallin, Ríga og Vilníus.
Haft er eftir Styrmi Þór Braga-
syni, forstjóra MP Fjárfestingar-
banka, í fréttatilkynningu að þetta
sé í samræmi við þá stefnu bank-
ans að auka við starfsemi sína
erlendis. Unnið sé að því að fá
aðild að öllum OMX-kauphöllun-
um. Tíðinda sé að vænta af því
innan skamms.
Aðild að OMX
í Stokkhólmi
Metafkoma varð af rekstri
Frjálsa fjárfestingarbankans í
fyrra þegar félagið skilaði 694
milljóna króna hagnaði. Það er
ríflega fimmtungi meiri hagnað-
ur en árið áður.
Hreinar rekstrartekjur jukust
meira en önnur rekstrargjöld.
Alls námu hreinar rekstrartekjur
1.345 milljónum króna og hækk-
uðu um 14,4 prósent. Hreinar
vaxtatekjur bankans voru 827
milljónir króna, þjónustutekjur
103 milljónir og aðrar rekstrar-
tekjur 415 milljónir.
Önnur rekstrargjöldu voru
437 milljónir og hækkuðu um 10,1
prósent. Kristinn Bjarnason,
framkvæmastjóri Frjálsa, segir
að mikill útlánavöxtur hafi verið
árin 2005 og 2006 og býst við að
sama verði uppi á teningnum í ár.
Útlánasafnið er traust en 99 pró-
sent útlána er bundið í fasteign-
um. „Vanskil eru lág í sögulegu
samhengi en hafa þó verið að auk-
ast lítillega á síðustu mánuðum,“
segir hann í fréttatilkynningu.
Eignir Frjálsa, sem eru útlán
að langmestu leyti, stóðu í 55,3
milljörðum í árslok sem var 47,4
prósenta aukning.
Eiginfjárhlutfall (CAD) var
13,3 prósent.
Frjálsi hagnast
Stjórnendur búast við áframhaldandi útlánavexti.
Morgan Stanley hefur breytt ráð-
gjöf sinni á Kaupþingi úr mark-
aðsvogun í yfirvogun og hækkar
verðmatsgengið um fimmtung frá
fyrra verðmati. Verðmatsgengið
hækkar því úr 884 krónum á hlut
(94 SEK) í 1.062 (113 SEK).
Sérfræðingar Morgan Stanley
horfa fram á gott ár á sviði fjár-
festingabankastarfsemi á Norður-
löndum þar sem Kaupþing hefur
náð styrkri fótfestu. Þóknunar-
tekjur af fjármálastarfsemi ættu
að aukast verulega frá fyrra ári og
þá hefur dregið verulega úr óvissu
um fjármögnun bankans.
Gengi bréfa Kaupþings stóð í
972 krónum við lokun markaða í
gær.
Kaupþing verð-
metið á 1.062
Sögusýning Landsbankans er þátttakandi
í Vetrarhátíð Reykjavíkurborgar. Sýningin er til húsa í Aðalstræti 6
og spannar 120 ára sögu bankans og þjóðarinnar. Allir velkomnir.
Sögusýning Landsbankans
Aðalstræti 6 (húsnæði TM). Sími: 410 4300
Opið virka daga kl. 11:00-17:00, um helgar kl. 13:00-17:00
Enginn aðgangseyrir - Barnahorn – Alltaf heitt á könnunni
Fimmtudagskvöld opið kl. 20:00-23:00:
Leiðsögn í boði kl. 21:00
Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur,
og Sveinbjörn Guðbjarnarson deila sérfræði-
kunnáttu sinni á sýningargripum og gefa aukna
innsýn í sögu banka og þjóðar.
Laugardagur kl. 15:00:
Leiksýningin Brot úr sögu banka,
leikdagskrá í léttum dúr þar sem rakin er saga
Landsbankans í tónum og tali.
Á Sögusýningu Landsbankans er margt markvert
að sjá og skoða, ekki aðeins úr bankasögunni
heldur eru dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri
tíðar enda saga bankans og þjóðarinnar sam-
tvinnuð á ýmsan hátt.
Á sýningunni má m.a. sjá skrifstofuherbergi frá
árinu 1886, nýtt líkan sem sýnir miðbæinn eftir
brunann mikla 1915, tækniþróunina allt frá
pennastöng til samskiptatækja nútímans og líkan
af framtíðarskipulagi miðborgarinnar.
Landsbankinn
120 ára
SÖGUSÝNING
Vetrarhátíð í kvöld
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
B
I
36
36
4
02
/0
7