Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 70
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Ég reyni nú að hafa morgun- matinn svolítið fjölbreyttan, svo ég verði ekki leiður. En ég útbý kaffi latte handa mér og kærust- unni. Hita mjólk og freyði hana upp, set sterkt kaffi út í og geri dýrindis kaffi. Ég get ekki byrjað daginn án þess að fá mér þetta, það er nauðsynlegt.“ „Já, ég ætla að vera með og hef borgað hundrað þúsund krónur fyrir,“ segir Sigurður Valdimar Steinþórsson, eigandi vefsíðunnar klam.is, en hann verður meðal hundrað og fimmtíu gesta á kaup- og skemmtihátíðinni Snowgather- ing sem vakið hefur mikil og sterk viðbrögð í þjóðfélaginu. Þar ætla forkólfar klámiðnaðarins á netinu að hittast til að blanda geði hver við annan og skiptast á upplýsing- um. „Það verður örugglega mjög gaman að upplifa þetta,“ segir Sig- urður, en þetta verður í fyrsta skipti sem hann sækir slíka ráð- stefnu. „Ég hlakka mjög mikið til,“ bætir hann við. Klam.is er ein örfárra íslenskra vefsíðna sem bjóða eingöngu upp á erótíska afþreyingu og klám á netinu og segir Sigurður að áhug- inn og ásóknin í síðuna hafi aukist jafnt og þétt. „Það fjölgar á póst- listanum hjá okkur á hverjum degi,“ segir Sigurður. Andstaðan við komu þessara aðila hefur ekki farið framhjá Sig- urði. Hann segist ekkert skilja í þessari umræðu og tekur undir orð Vestur-Íslendingsins Scott Hjorleifsson, sem sagði í samtali við Fréttablaðið á mánudag að hann skammaðist sín fyrir þjóð- ernið. „Við erum búin að skjóta okkur rækilega í fótinn með þessu fjaðrafoki,“ segir Sigurður. „Þetta fólk er hvorki tengt barnaklámi né mansali,“ bætir hann við. „Við erum að hleypa inn í landið alls konar fólki en síðan á að meina þeim aðgang, þetta er fáránlegt,“ segir Sigurður, sem hafði heyrt af því að einhverjir ráðstefnugestir hefðu þegar afboðað komu sína hingað til lands sökum andstöð- unnar. Mikil og þétt dagskrá verður fyrir gestina og er ráðgert að fara í Bláa lónið, skoða Gullfoss og Geysi, fara á súlustað og kíkja á sýningu á Broadway. 100 þúsund krónur fyrir klámhvataferð „Ég hef víða farið og margt séð, marga fjöruna sopið í þessum sjónvarpsbransa, en aldrei séð aðrar eins áhorfstölur,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri. Páll er með glóðvolgar áhorfs- tölur frá Capacent sem sýna ótrú- legar áhorfstölur á leiki íslenska handboltalandsliðsins. En í pakk- anum slæddust með fyrir tilviljun tölur sem aldrei hafa verið birtar. Og taka til þess áhorfs sem Ára- mótaskaup sjónvarps nýtur og hefur notið undanfarin ár. Þær tölur eru með ólíkindum. Síðasta skaup mældist með 93,3 prósent í uppsafnað áhorf sem er aukning um tæpt prósent frá árinu áður. En árið 2002 fór það upp í 95,5 pró- sent. „Þetta er ótrúlegt,“ segir Páll dolfallinn. Og þorir næstum að fullyrða að svona sjónvarpsáhorf hafi aldrei mælst á Vesturlöndum. Heimsmet. „Örugglega er einsdæmi að fullyrða megi að heil þjóð sé að horfa á sömu sjónvarpsdagskrána samtímis,“ segir Páll og vísar til þess að allir þeir sem eru sjálfráð- ir gerða sinna séu að horfa. Þessar tölur segja sitthvað um þjóðarsálina en ljóst má vera að þegar mikið liggur við sameinast hún fyrir framan skjáina. Þannig geta íþróttaáhugamenn nú blásið á úrtölumenn sem þykir íþróttum allt of hátt gert undir höfði í dag- skránni. Á leik Íslands og Dan- merkur, sem var á dagskrá 30. jan- úar, horfðu 78 prósent þjóðarinnar. Lygilegar áhorfstölur eru einnig á aðra leiki íslenska liðsins. (Sjá meðfylgjandi töflu.) Nýkrýndur sigurverandi í Eurovi- son, Eiríkur Hauksson, verður áfram meðal álitsgjafa í samnor- rænum sjónvarpsþætti um Euro- vision-keppnina sem sænska rík- issjónvarpið framleiðir. Eiríkur fundaði með yfirmönn- um Ríkisútvarpsins í gær og ákvað þá að láta slag standa. Segir hann að Svíarnir hafi lagt hart að sér að halda áfram í þættinum. „Það er búið að senda út póst til allra Norð- urlandaþjóðanna út af þessu og RÚV hefur ekki fengið nein við- brögð frá öðrum þjóðum,“ segir Eiríkur. „Við erum búnir að ræða þetta fram og til baka og sjáum bæði kosti og galla á þessu. Það er bara í mínum höndum að gera þetta skemmtilega og fagmann- lega, þannig að enginn móðgist og allir geti brosað. Ég var búinn að ákveða að ef ég myndi vinna keppnina hérna heima myndi ég tilkynna það í fyrsta þætti að ég væri svo vel upp alinn að ég myndi þurrka út núllið. Þannig að enginn fær núll og þá er maður orðinn svolítið dipló,“ segir hann í léttum dúr. Tökur á þættinum fara fram dagana 29. og 30. mars. Fram að því verður Eiríkur önnum kafinn við undirbúning fyrir lokakeppn- ina í Helsinki og m.a. hefjast upp- tökur á laginu, Ég les í lófa þínum, á ensku í dag. „Ég og Sveinn Rúnar erum búnir að ákveða að það verð- ur vandað til verks með það. T.d. verður textinn prófarkalesinn af enskumælandi fólki því orð fá oft nýja merkingu á ensku og eitt orð getur eyðilagt ansi mikið.“ - Eiríkur Hauksson gefur engum núll FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.