Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 52
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
Kindin Dolly kemst í fréttirnar
„Ef málfrelsið er tekið af
okkur er hægt að ráðskast
með okkur eins og lömb á
leið til slátrunar.“
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Theódórsson
Esjubraut 19, Akranesi,
andaðist á Landspítalanum Fossvogi mánudaginn 19.
febrúar.
Júlía Baldursdóttir
Baldur Ólafsson Auður Líndal Sigmarsdóttir
Ellen Ólafsdóttir Guðjón Theódórsson
Ragnhildur Í. Ólafsdóttir Birgir Guðmundsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Guðfinns Stefáns
Finnbogasonar
Miðhúsum, Kollafirði,
sem lést laugardaginn 10. febrúar sl.
Kristján Garðarsson Herdís Rósa Reynisdóttir
Rakel Guðfinnsdóttir
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigrún Gunnarsdóttir
seinast til heimilis að Lindasíðu 2,
Akureyri,
lést á dvalar og hjúkrunarheimilinu Hlíð, fimmtudag-
inn 15. febrúar. Hún verður jarðsungin frá Glerárkirkju
föstudaginn 23. febrúar kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Jónsson Jakobína Reynisdóttir
Hermann Ragnar Jónsson Sigurlaug Guðmundsdóttir
Guðný Jóhanna Jónsdóttir Óskar Sigurpálsson
Gunnar Jónsson Jóhanna Andrésdóttir
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Signý Stefánsdóttir
dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést hinn 19. febrúar 2007. Jarðarför fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 26. febrúar nk. kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofn-
anir.
Heiða Þórðardóttir Jón Geir Ágústsson
Signý, Þórður, Margrét, Þórdís, María Sigríður,
Jóhann Heiðar og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Elín Sigurðardóttir
hjúkrunarheimilinu Eir, Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík,
sem lést miðvikudaginn 14. febrúar verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.00.
Kristín Þorsteinsdóttir Þórður Jónsson
Sigríður Þorsteinsdóttir
Erla Þorsteinsdóttir Ágúst Haraldsson
Steinunn Þorsteinsdóttir Geir Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég verð fjarverandi á afmælinu, ég
heyrði að Kastró karlinn væri allur að
hressast og ætla að bregða mér til
Kúbu í tíu daga,“ segir Jóhann G.
Jóhannsson, tónlistar- og myndlistar-
maður, sem er sextugur í dag. Jóhann
segir það leggjast vel í sig að verða
sextíu ára, þótt honum finnist hann
eiginlega of ungur til þess. „Andlega
finn ég ekki fyrir aldrinum en svo lítur
maður í spegil og það fer ekki á milli
mála að maður hefur breyst í áranna
rás.“
Þótt hann verði fjarverandi á
afmælisdaginn ætlar Jóhann engu að
síður að fagna tímamótunum veglega
á sinn eigin hátt. „Ég ætla að halda
upp á daginn á netinu með því að opna
nýja heimasíðu sem ég hannaði í sam-
starfi við Netvistun. Hugmyndin er að
búa til módel að síðu sem gæti hentað
fleiri tónlistarmönnum. Með því að
tengja saman fleiri síður sem ég er
með, til dæmis MySpace og Broadjam,
reyni ég að skapa síðu sem stuðlar að
milliliðalausum viðskiptum við fólk
sem hefur áhuga á þeirri tegund tón-
listar sem ég býð upp á. Ég ætla sem
sagt að opna síðuna á afmælisdaginn
og veitingarnar verða í formi tónlistar
en það verður hægt að hala niður tíu
lög af jafnmörgum plötum. Svona vil
ég segja takk fyrir mig við fólk sem
hefur notið tónlistar minnar í gegnum
árin.“
Jóhann er með fleiri járn í eldinum,
til dæmis er plata sem hefur verið
lengi í bígerð væntanleg á árinu og
þar kemur netið líka við sögu. „Hug-
myndin er að fólk geti fylgst með gerð
plötunnar á heimasíðunni og sagt álit
sitt á lögunum og hvað það vill heyra.
Svo verða þarna líka myndbrot frá
ferli Óðmanna og demó-útgáfur af
þekktum lögum svo fólk geti áttað sig
á hvernig tónlistin þróast.“
Fáir tónlistarmenn af kynslóð
Jóhanns hafa tileinkað sér netið jafn
rækilega og hann en veraldarvefnum
kynntist Jóhann fyrst að ráði þegar
hann fór í raftónlistarnám í Tónlistar-
skólanum í Kópavogi árið 1995.
Jóhann segist ekki vera mikið
afmælisbarn en hélt þó veglega upp á
daginn þegar hann varð fimmtugur.
„Þá hélt ég myndlistarsýningu í Gall-
erí Borg. Mér finnst að þegar þeir sem
sýsla við listsköpun standa á tímamót-
um eigi þeir að bjóða upp á eitthvað af
hinu listræna sviði. Núna ákvað ég að
stíga einu skrefi lengra og bjóða upp á
netið.“ Hann kveðst þó ekki hafa hug-
mynd um hvernig hann toppi sextugs-
afmælið þegar hann verður sjötugur.
„Ætli ég verði ekki kominn í aðra
vídd.“
Slóðin á heimasíðu Jóhanns er
johanng.is.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Ólafsson
rafvirki, Ársölum 3, Kópavogi,
lést á Kanaríeyjum að morgni sunnudagsins 11. febrú-
ar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 23.
febrúar kl. 13. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Hjartavernd.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Stefánsdóttir.
Yndislegi pabbi minn, sonur okkar,
bróðir, mágur, frændi og unnusti,
Hlynur Heiðberg
Konráðsson
sem lést af slysförum fimmtudaginn 8. febrúar verður
jarðsunginn frá Seljakirkju föstudaginn 23. febrúar
klukkan 13.
Hugi Snær Hlynsson
Konráð Eggertsson Jakobína Guðmundsdóttir
Perla Lund Konráðsdóttir Högni Hallgrímsson
Salka Heiður Högnadóttir Katla Móey Högnadóttir
Rósa Hjörvar.