Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 66
 Besti leikmaður NBA- deildarinnar tvö síðustu árin, Steve Nash, er áhugasamur um að kaupa hlut í Tottenham en hann álítur það vera mjög góða fjárfestingu. Nash hefur haldið með liðinu alla sína tíð og er mikill knattspyrnuáhugamaður en hann á ættir að rekja til Englands. Foreldrar Nash koma frá Norður-London en Nash er með kanadískt ríkisfang. Verði af kaupunum mun Nash fara fyrir hópi annarra fjárfesta. Sækist eftir hlut í Spurs Aðalfundur samtaka íþróttafréttamanna, SÍ, var haldinn í gær. Þar bar helst til tíðinda að tillaga um að útiloka íþróttamenn sem eru ekki í sérsambandi innan ÍSÍ frá kjöri íþróttamanns ársins var sam- þykkt. Það þýðir að kraftlyftinga- menn í Kraftlyftingasambandinu koma þar af leiðandi ekki lengur til greina eins og staðan er í dag. Tillaga um að opna kjör íþróttamanns ársins á þann hátt að allir atkvæðaseðlar væru birtir á heimasíðu SÍ, sportpress. is, var felld með miklum meiri- hluta. Atkvæðagreiðslan verður því áfram leynileg. Aðilar utan ÍSÍ útilokaðir Meistaradeild Evrópu: Enska úrvalsdeildin: SS-bikar karla: SS-bikar kvenna: Iceland Express-deild kvk: Fjölnir – Þór í dag kl. 19:15 Grafarvogsbúar og aðrir Fjölnismenn! Fallbaráttuslagur í kvöld! Mætum öll í Íþróttamiðstöðina við Dalhús og hvetjum okkar menn til sigurs. Við þurfum ykkar stuðning! Ætlar að klára tímabilið almennilega Bikarmeistarar Stjörn- unnar í karlaflokki og Vals í kvennaflokki tryggðu sér í gær sæti í úrslitaleik SS-bikarsins. Stjörnumenn unnu 27-24 sigur á ÍR-ingum en Haukastúlkur léku sér að Valsstúlkum á Ásvöllum. Hið unga lið ÍR-inga gafst aldrei upp og gerði Stjörnumönn- um lífið leitt allan leikinn en Garð- bæingar voru hins vegar með frumkvæðið allan tímann og sig- urinn var aldrei í mikilli hættu. Roland Eradze varði vel í marki Stjörnunnar og þeir Arnar Theó- dórsson og David Kekelia leystu það vel þegar ÍR-ingar tóku Tite Kalandadze úr umferð. Tite Kalandadze hélt annars uppi sókn- arleik Stjörnunnar framan af leik og skoraði mörg falleg mörk. Björgvin Þór Hólmgeirsson var hættulegasti leikmaður ÍR-inga en mátti sín lítils eftir að Stjörnu- menn fóru að klippa hann út úr. Reynsluboltarnir Ólafur Sigur- jónsson og Ragnar Már Helgason fóru báðir illa með færin og mátti hið unga ÍR-lið ekki við því. Haukastúlkur voru aldrei í vandræðum gegn Val og leikurinn var nánast búinn í hálfleik þegar Haukarnir voru komnir ellefu mörkum yfir, 14-3. Valsstúlkur náðu að minnka muninn í seinni hálfleik en sigurinn var aldrei í hættu og bikarmeistaranir er því komnir í úrslitaleikinn á móti Gróttu. Báðir bikarmeistararnir í Höllina Fyrri umferðin í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evr- ópu lauk í gærkvöldi. Stórleikur kvöldsins var viðureign Evrópu- meistara síðustu tveggja ára, Bar- celona og Liverpool. Eiður Smári Guðjohnsen sat á varamannabekk Barcelona sem tók á móti Liverpool á heimavelli sínum. Nou Camp. Félagarnir Craig Bellamy og John Arne Riise voru báðir í byrjunarliði Liver- pool en athygli vakti að hinn stóri og stæðilegi Peter Crouch sat á bekknum hjá gestunum. Leikurinn fór rólega af stað en eftir rúmlega tíu mínútna leik þyngdust sóknir heimamanna verulega og hurð skall nærri hælum að marki Liverpool hvað eftir annað. Eitthvað hlaut undan að láta og það gerðist á 14. mínútu þegar Deco skoraði með skalla eftir sendingu frá Zambrotta en John Arne Riise á sinn þátt í mark- inu enda stóð hann ekki vaktina gegn Deco nægilega vel og var í raun víðs fjarri þegar þessi smái Portúgali skallaði boltann í netið. Heimamenn tóku í kjölfarið öll völd á vellinum en náðu ekki að skapa sér almennilegt færi. Liver- pool vann sig rólega inn í leikinn og jafnaði þrem mínútum fyrir hlé með marki Bellamys af stuttu færi. Valdes markvörður bjargaði skalla hans inn í markinu, ýtti boltanum út og þá var Kuyt mætt- ur til að sjá endanlega til þess að Liverpool fengi mark. Bellamy fagnaði með því að taka golf- sveiflu og gerði þar með grín að umræðu síðustu daga en hann lamdi Riise félaga sinn með níu járni á dögunum. Liverpool-liðið hafði fært sig enn aftar á völlinn í síðari hálfleik og Barcelona gekk afar illa að skapa sér marktækifæri. Liver- pool fékk bestu færin framan af síðari hálfleik og munaði litlu að gestirnir tækju forystuna. Það var síður en svo ósann- gjarnt þegar John Arne Riise kom Liverpool yfir á 74. mínútu eftir sendingu frá „félaga“ sínum Craig Bellamy. Sá síðarnefndi bætti þar með að einhverju leyti fyrir bar- smíðarnar á hinum norska með sendingunni. Eiður Smári kom af bekknum þegar tíu mínútur lifðu leiks en hann leysti Saviola af hólmi sem ekkert hafði getað. Það breytti litlu fyrir Barcelona sem var í sömu vandræðunum og Liverpool fagnaði glæstum útisigri af ein- lægni. Í öðrum leikjum gerði Chelsea jafntefli, 1-1, á útivelli gegn Porto og Inter og Valencia gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik á San Siro. Roma og Lyon gerðu að lokum markalaust jafntefli í Róm. Craig Bellamy tók sér frí frá því að berja félaga sína í Liverpool í gær og barði í staðinn á Börsungum. Hann skoraði eitt mark og lagði annað upp fyrir mann- inn sem hann lamdi með golfkylfu á föstudag, John Arne Riise, í 1-2 sigri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.