Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 22
hagur heimilanna
Virðisaukaskattur á veitingahúsum og matsölustöð-
um lækkar úr 24,5 prósentum í sjö prósent frá
næstu mánaðamótum. Gert er ráð fyrir að lækkunin
nemi um sex prósentum á skyndibitastöðum og
svipuðum stöðum en tíu til tólf prósentum á veit-
ingastöðum með meiri þjónustu.
Veitingahús hafa búið við sérstakt endurgreiðslu-
kerfi virðisaukaskatts. Sá hluti söluverðsins sem er
vegna þjónustu hefur borið 24,5 prósenta virðis-
aukaskatt en maturinn hefur borið 14 prósenta virð-
isaukaskatt. Þetta kerfi fellur niður um næstu mán-
aðamót.
Gert er ráð fyrir að verðlækkunin verði mismun-
andi eftir þjónustustigi veitingastaðanna. Þannig
má búast við að lækkunin verði meiri eftir því sem
þjónustustigið er hærra og verður þá, eins og áður
segir, mest um tólf prósent á veitingastöðum með
háu þjónustustigi.
„Við ætlum að lækka matarverð að minnsta kosti
um tólf prósent en stefnum í fjórtán prósent yfir
línuna og ég er búinn að endurreikna verðið miðað
við það. Prentarinn bíður bara eftir að prenta út,“
segir Jón Páll Haraldsson, rekstrarstjóri á veitinga-
staðnum Einari Ben í miðborg Reykjavíkur.
Jón Páll segir að ekki sé búið að ákveða skatta-
lækkun á víni en bendir á að SAF, Samtök ferða-
þjónustunnar, hafi þrýst mikið á að virðisaukaskatt-
ur á víni verði lækkaður þannig að sami
virðisaukaskattur verði á mat og víni. Verð á víni
helst því væntanlega óbreytt.
Lækkar um allt að 14 prósent
Lítil hrifning með súperslicer Ægir Þór Eysteinsson, fréttamaður
Ríkissjónvarpsins á Austurlandi, vill
hafa borðbúnaðinn sinn skínandi.
Áhrif tollalækkunar á
kjötverð skýrist líklega
ekki fyrr en í vor eða
sumar. Stórkaupmenn
segja útfærsluna vanta
og telja tollana ekki leiða
til verðlækkunar. Niður-
felling vörugjalda kemur
ekki fram fyrr en eftir tvo
mánuði.
Óljóst er hversu mikið innflutt,
hrátt kjöt lækkar í verði eftir mat-
arskattsbreytingarnar sem taka
gildi 1. mars og hversu mikið tolla-
lækkunin hefur áhrif til verðlækk-
unar. Virðisaukaskattur á kjöti
lækkar úr fjórtán í sjö prósent og
mun það skila sér til neytenda.
Óljóst er hins vegar hvernig og
hvenær tollalækkunin kemur til
neytenda, að mati innflytjenda.
Helgi Ein-
arsson, fram-
kvæmdastjóri
Dreifingar,
sem er lang-
stærsti inn-
flytjandinn á
hráu kjöti,
segir að verð á
innfluttu,
frystu græn-
meti muni
lækka um
þrjátíu pró-
sent 1. mars
en ekki sé hægt að segja til um
verðlækkun á kjöti fyrr en fyrsta
kjötútboðið hefur farið fram.
„Þetta kemur ekki í ljós 1. mars
því að það tekur líklega um tvo
mánuði að undirbúa útboð og
kemur því ekki í ljós fyrr en í
sumar hvort verðlækkanir eiga
sér stað og þá á hvaða vörutegund-
um.“
Helgi telur að ríkisstjórnin sé
ekki búin að samþykkja tollalækk-
anirnar og segir að beðið sé eftir
samþykki ríkisstjórnarinnar.
Hann bendir á að samkvæmt sam-
komulaginu við Evrópusambandið
verði tollar lækkaðir á tæplega
800 tonnum af hráu kjöti meðan
mesta þörfin sé á tollalækkun á
unnu kjöti. „Þetta skýrist þegar
maður fer að sjá hvað fyrirtæki
ætla að sækjast eftir miklu magni
af innfluttu
kjöti því pró-
sentan í toll-
flokkunum
skiptir ekki
svo miklu máli
heldur aðal-
lega þessi 800
tonn.“
Andrés
Magnússon,
framkvæmda-
stjóri Félags
íslenskra stór-
kaupmanna,
segir að kaupmenn telji að verð á
matvöru lækki um 8,5 til níu pró-
sent og þá sé eftir að taka tillit til
áhrifa niðurfellingar á vörugjöld-
um og tollalækkunar. „Við teljum
að tollarnir leiði ekki til neinnar
lækkunar. Stjórnvöld hafa ekki
spilað út enn þá með hvaða móti
þau ætla að ná þeirri 1,5 prósenta
lækkun með þessari aðgerð,“
segir hann.
Niðurfelling á vörugjöldum
telur hann að taki einn til tvo mán-
uði að koma fram. „Það fer eftir
veltunni á algengum, innfluttum
þurrvörum eins og kaffi, te og
hveiti hve langan tíma það tekur
að koma fram,“ segir hann.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, segir að ekki
sé búið að kynna með hvaða hætti
tollalækkun á kjöti eigi að koma
fram. „Verið er að pakka vörum
sem ná fram yfir 1. mars þannig
að við höfum áhyggjur af því
hvernig þetta á að koma fram.“
Niðurfelling tolla skilar
sér ekki strax í kjötverði