Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 13
Lykilorð bloggara hjá blog.is birtust fyrir mistök á síðum þeirra í gær. Að sögn Árna Matthíasson- ar, starfsmanns hjá netdeild Morgunblaðsins, var villa í hugbúnaðaruppfærslu orsök þess að um stund mátti lesa lykilorð, kennitölu og aðrar upplýsingar um bloggara neðst á bloggsíðu hans. Aðspurður hvers vegna upplýsingar um notendur, þar með talin lykilorð, séu geymdar ódulkóðaðar í gagnagrunni segir hann að ekki hafi verið metin þörf á því, upplýsingarnar séu ekki svo leynilegar. Lykilorðum allra notenda var breytt eftir að mistökin voru leiðrétt. Birtu lykilorð allra bloggara Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra vill að vísindaleg sjónarmið og rök ráði ferðinni þegar Evrópusambandið leysir mál sem varðar bann á notkun fiskimjöls sem fóðurs fyrir jórturdýr. Hún átti á dögunum fund með Markos Kyprianou, sem fer með mat- vælamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel. Samkvæmt fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu sagði Kyprianou vandann við að aflétta fyrrnefndu banni vera pólitískan fremur en vísindalegan. Jónína lagði áherslu á að málið yrði leyst og að vísindaleg sjónarmið og rök réðu ferðinni við meðferðina. Vill að vísindi og rök ráði ferð Danska lögreglan fann 38 kíló af kókaíni við húsleit í einum stærsta fíkniefnafundi í Danmörku síðustu ár. Þrír menn voru handteknir. Hinir grunuðu, tveir Serbar og einn Króati, voru handteknir 13. ferúar þegar þeir skiptust á plastpoka með tveimur kílóum af kókaíni á aðallestarstöðinni í Kaupmannahöfn. Lögreglan réðst seinna inn í íbúð Króatans þar sem önnur 36 kíló voru. Áætlað söluvirði kókaínsins er vel yfir tvö hundruð milljónir króna. Lögreglan komst á spor hinna grunuðu eftir að vísbending barst frá lögreglunni í Svíþjóð þar sem Serbarnir búa. Gripnir á aðal- lestarstöðinni Um þrjátíu tonnum af olíu var dælt upp úr flutninga- skipinu Wilson Muuga í kör á dekkinu í gær og fyrrinótt og olían svo flutt með þyrlu í land. Í landi var olíunni dælt á bíla og ekið með hana í bæinn. Meirihlut- inn af þessum þrjátíu tonnum er hrein olía. Helgi Jensson, forstöðumaður hjá Umhverfisstofnun, segir að skipið eigi nú að vera því næst tómt af olíu. Nú sé verið að undir- búa hreinsun strandarinnar og koma búnaði til staðinn. Fjörurn- ar verði kannaðar á næstunni. Sýnin verði send í greiningu í dag eða á morgun og þá komi í ljós hvaðan olían í fjörunni og á fug- lunum er. Oddný Guðbjörg Harðardóttir, sveitarstjóri í Garði, segist hafa miklar áhyggjur af menguninni en sérfræðingar séu að rannsaka málin. „Við treystum því að þetta verði leyst farsællega,“ segir hún og leggur áherslu á að kannað verði hvaðan olían kemur. „Ég hef ekki fengið staðfest enn að olían komi frá Hvalsnesi.“ Hilmar Össurar, dýralæknir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, segir að æðarkollan sem flutt var í garðinn í fyrradag hafi verið þrifin í gær. Hún sé horuð en henni líði þokkalega og þurfi nú tíma til að ná sér og mynda eðli- legan fitubúskap í fiðrinu. Fjöruhreinsun undirbúin Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann á Hvolsvöll í gær. Bíllinn hans fauk út af veginum rétt fyrir ofan Vík í Mýrdal. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi og er að sögn ekki í lífshættu. Tilkynnt var um slysið klukkan eitt í gær, og var ákveðið að kalla til þyrlu eftir að maðurinn kenndi eymsla í baki. Vegna veðurs komst þyrlan ekki alla leið þangað og þurfti því að flytja hann til móts við þyrluna til Hvolsvallar, þar sem hún flaug með hann til borgarinnar Bíll fauk af vegi við Vík í Mýrdal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.