Fréttablaðið - 22.02.2007, Qupperneq 10
Einn sakborninga í
Baugsmálinu upplýsti við skýrslu-
gjöf fyrir héraðsdómi í gær að
hann hafi fengið þau skilaboð við
yfirheyrslur hjá lögreglu að ef
hann hjálpaði til við að „ná“ Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra
Baugs Group, sem einnig er
ákærður, myndi afstaða lögreglu
til meintra brota hans breytast.
Við lok skýrslutöku af Tryggva
Jónssyni, fyrrum aðstoðarfor-
stjóra og síðar forstjóra Baugs, í
Héraðsdómi Reykjavíkur spurði
Gestur Jónsson, verjandi Jóns
Ásgeirs, hvort Tryggva hafi verið
boðinn einhvers konar samn-
ingur eða samkomulag í skipt-
um fyrir upplýsingar við
rannsókn lögreglu. „Það
kom oft fram fyrstu mán-
uði rannsóknarinnar að
þeir væru ekki á eftir mér,
ég væri aukaleikari, eða fórn-
arlamb, og þeir vildu gjarnan að
ég segði satt og rétt frá, því þá
myndi staða mín breytast. Þetta
sögðu þeir í mín eyru,“ sagði
Tryggvi.
Hann minntist þess að í desem-
ber 2002, þegar yfirheyrslu yfir
honum hjá lögreglu var að ljúka,
hafi Arnar Jensson, fyrrverandi
starfsmaður efnahagsbrotadeild-
ar ríkislögreglustjóra, óskað eftir
því að fá að ræða í einrúmi við lög-
mann Tryggva, sem á þeim tíma
var Andri Árnason.
Tryggvi sagði í réttarsal í gær
að eftir fundinn hafi Andri borið
honum þau skilaboð frá Arnari „að
staða mín myndi breytast ef ég
segði satt og rétt frá, og þeir gætu
náð Jóni Ásgeiri“.
Andri sagðist í gær kannast við
að hafa rætt við Arnar, en þar hafi
þeir rætt stöðu Tryggva í rann-
sókninni almennt, sem oft sé gert.
Rétt sé að taka fram að á engum
tímapunkti hafi Tryggva verið
boðið samningur um að staða hans
breyttist frá því að vera sakborn-
ingur í það að verða vitni.
Gestur Jónsson sagði í samtali
við Fréttablaðið að lögreglu og
ákæruvaldi sé ekki heimilt að gera
einstaklingi sem sé til rannsóknar
tilboð um að litið verði framhjá
mögulegu saknæmu athæfi gegn
því að viðkomandi aðstoðaði við
rannsókn lögreglu. Auðvitað sé
ekki ólöglegt að biðja menn um að
skýra satt og rétt frá, en ef það
sé gert í því samhengi að þeir
geti allt í einu orðið vitni en
ekki sakborningar geti þeir
sýnt fram á sök annars
manns sé það annað
mál.
Sigurður Tómas
Magnússon, settur ríkissaksókn-
ari, sagði við fjölmiðlamenn eftir
ummæli Tryggva að svo virðist
sem Tryggvi sé að draga þessar
ályktanir, fremur en að eitthvað
hafi verið gefið í skyn. „Ef menn
segja satt og rétt frá verður staða
þeirra miklu betri, samkvæmt
almennum hegningarlögum er það
refsilækkunarástæða.“
Jakob Möller, verjandi Tryggva,
segir að Tryggva hafi verið gefin
vísbending um að hann hafi átt
þennan möguleika. „Samkvæmt
því sem hann segir var honum svo
gert ólögmætt tilboð um að það
yrði litið framhjá sekt hans ef
hann segði sannleikann um Jón
Ásgeir, á þeim grundvelli að Jón
Ásgeir hafi verið höfuðpaurinn en
Tryggvi aukanúmer.“
Voru ekki á
eftir Tryggva
Einn sakborninga í Baugsmálinu segir að sér hafi
verið gert tilboð um breytta afstöðu lögreglu til
meintra brota ef hann hjálpaði til við að upplýsa
þátt Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í lögbrotum.
Arnar Jensson, fyrrver-
andi aðstoðaryfirlögregluþjónn
hjá ríkislög-
reglustjóra,
hafnar því
algerlega að
hann hafi boðið
Tryggva Jóns-
syni, einum sak-
borninga í
Baugsmálinu,
einhvers konar
samning við
rannsókn málsins, eins og Tryggvi
hélt fram fyrir héraðsdómi í gær.
„Ég get fullyrt að þetta er gjör-
samlega úr lausu lofti gripið,“
segir Arnar. „Það er algerlega af
og frá að Tryggva, eða nokkrum
öðrum í þessu máli, hafi verið
boðið eitthvað slíkt.“
Hann staðfestir að það sé ólög-
legt að bjóða einstaklingi sem sé
til rannsóknar samning um refsi-
lækkun eða annað í þeim dúr gegn
því að viðkomandi aðstoði við
rannsókn.
Hann segir að sakborningar
séu að sjálfsögðu áminntir um að
segja satt og rétt frá við yfir-
heyrslur, og sérstaklega sé þeim
gert grein fyrir því í upphafi rann-
sóknar að játi þeir á sig það sem
þeir eru grunaðir um geti það haft
áhrif á endanlega refsingu, verði
þeim gerð refsing.
Úr lausu lofti gripið
BAUGS M Á L I Ð
www.lysi.is
Omega-3
F I S K I O L Í A
Gjöf náttúrunnar til þín
Má taka með lýsi.
Omega-3 fiskiolía byggir upp ónæmiskerfið
á marga vegu og hefur jákvæð áhrif á:
Omega-3 fiskiolía inniheldur hátt hlutfall Omega-3
fitusýra, einkum EPA og DHA sem eru okkur
lífsnauðsynlegar.
Fjöldi rannsókna víða um heim hafa sýnt fram á
jákvæða eiginleika þeirra fyrir heilsuna.
sjón
hjarta og æðakerfi
blóðþrýsting
kólesteról í blóði
liði
rakastig húðarinnar
minni
andlega líðan
námsárangur
þroska heila og
miðtaugakerfis
á meðgöngu
Fi
to
n/
S
ÍA