Fréttablaðið - 22.02.2007, Side 12
Himinháar hagnaðartölur breskra
banka hafa verið hitamál í breskum fjölmiðl-
um nú í vikunni.
Neytendasamtök í Bretlandi beina spjótum
sínum einkum að gífurlega háum þjónustu-
gjöldum sem bankarnir taka af viðskiptavinum
sínum. Samkvæmt dagblaðinu Guardian inn-
heimta bankarnir 5.000 krónur fyrir hvern
innistæðulausan tékka og rúmlega 3.600 krón-
ur á dag fyrir yfirdrátt í heimildarleysi.
Tilefni umræðunnar í Bretlandi var að Barc-
leys-bankinn sendi frá sér tilkynningu um að
gróðinn á síðasta ári hefði slegið öll met og
væri 23 prósentum meiri en árið áður. Bankinn
sagði hagnað sinn eftir skatta hafa numið 4,7
milljörðum punda, en það samsvarar um 611
milljörðum íslenskra króna. Dagblaðið Daily
Mirror leikur sér aðeins með þessar gróðatöl-
ur og kemst að því að Barcleys hafi grætt 226
pund á hverri sekúndu síðastliðið ár, og það
„þrátt fyrir mikla aukningu óæskilegra skulda
og minnkandi gróða af kreditkortum“.
Guardian hvetur lesendur sína til þess að
krefja bankana um endurgreiðslu þjónustu-
gjalda. Blaðið segir að fjölmargir viðskiptavin-
ir banka hafi haft þar erindi sem erfiði og feng-
ið hundruð eða jafnvel þúsundir punda til
baka.
Á næstunni er von á úrskurði frá samkeppn-
iseftirlitinu í Bretlandi um þjónustugjöld
banka og er fastlega reiknað með því að bönk-
unum verði gert skylt að hafa hemil á sér í inn-
heimtu þjónustugjalda. Samkeppniseftirlitið
hefur nú þegar gert kreditkortafyrirtækjum
að lækka hámarksgjöld niður í 12 pund.
Bankar sagðir okra á þjónustugjöldum
Fyrsta flugið í fjölþjóðlegu rannsóknarverk-
efni sem miðar að bættum veðurspám fór frá
Keflavíkurflugvelli í gær. Hópur vísindamanna flaug
að suðurodda Grænlands til að mæla ofsaveður við
strendur landsins.
Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur við háskól-
ann í Austur-Anglíu í Bretlandi, var eini Íslendingur-
inn sem flaug í gær en auk hennar taka Jón Egill
Kristjánsson, prófessor í veðurfræði við háskólann í
Ósló, og Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur við
Veðurstofu Íslands, þátt í verkefninu. Verkefnið er
unnið í samstarfi við breska, kanadíska og norska
vísindamenn.
Haraldur segir flugið ekki hafa verið neina
skemmtiferð, enda þurfi að fljúga í gegnum ofsaveðr-
ið til þess að geta mælt það. Vélin sé sérútbúin
mælum og mælitækjum auk þess sem hún sé
fjögurra hreyfla öryggisins vegna. Hún lenti aftur á
Keflavíkurflugvelli um klukkan fjögur í gær.
„Hugmyndin er að niðurstöður þessa verkefnis
verði til þess að bæta veðurspár, bæði til styttri og
lengri tíma,“ segir hann. „Ég held að þetta sé eitt
stærsta verkefni af þessu tagi sem farið hefur fram
hér á landi.“
Vísindamennirnir leggja aftur í hann í dag, en þá
verður flogið um strendur Íslands til þess að mæla
vindstrengi.
Borgarstjórn harmar
að Reykjavíkurborg verði
vettvangur ráðstefnu framleið-
enda klámefnis í næsta mánuði.
Yfirlýst stefna borgarinnar sé að
vinna gegn klámvæðingu og
vændi. Það sé því í mikilli óþökk
borgaryfirvalda verði ráðstefnan
haldin.
Í ályktun borgarstjórnar frá
því á þriðjudag er einnig ítrekuð
ósk borgarstjóra um að lögreglu-
embættið rannsaki hvort
þátttakendur í hópi ráðstefnu-
gesta kunni að vera framleiðend-
ur barnakláms eða annars
ólögmæts klámefnis.
Haldin í óþökk
borgaryfirvalda
Breskir njósnarar eru
óttalegir klaufabárðar, ef marka
má nýja skýrslu um hleranastarf-
semi leyniþjónustustofnana í
Bretlandi.
Það er Swinton Thomas,
fráfarandi umsjónarmaður með
hleranastarfinu, sem tók saman
skýrsluna og hefur afhent hana
breska þinginu. Þar kemur meðal
annars fram að meira en 4.000
mistök hafi verið gerð við hleranir
síðustu 15 mánuði.
Meðal annars hafi rangir símar
verið hleraðir og fylgst með pósti,
sem berst á heimilisfang grunaðra
manna, jafnvel eftir að þeir eru
fluttir.
Breska sjónvarpsstöðin Sky
skýrði frá þessu, og segir greini-
legt að beskir njósnarar líkist
miklu frekar Jacques Clouseau
heldur en James Bond.
Líkari Clouseau
en James Bond
Passat 100% lán
VW Passat 1,6 Basicline
Beinsk. árg. 04 ek. 72.000
Verð áður 1.350.000 kr. Verð 1.190.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 16.678 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 03 ek. 62.000
Verð áður 1.490.000 kr. Verð 1.320.000 kr.
Afborgun pr. mán. 21.164 kr. Í 72 mán.
VW Passat 1,6 Basicline
Beinsk. árg. 00 ek. 92.000
Verð áður 950.000 kr. Verð 840.000 kr.
Afborgun pr. mán. 19.365 kr. Í 48 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 03 ek. 70.000
Verð áður 1.390.000 kr. Verð 1.220.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.565 kr. Í 72 mán.
Klettháls Klettháls KletthálsKlettháls
VW Passat 4x4 2,0 Trendline
Beinsk. árg. 04 ek. 20.000
Verð áður 2.190.000 kr. Verð 1.890.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 26.454 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Beinsk. árg. 03 ek. 61.000
Verð áður 1.390.000 kr. Verð 1.220.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 19.565 kr. Í 72 mán.
VW Passat 2,0 Trendline
Sjálfsk. árg. 04 ek. 25.000
Verð áður 1.990.000 kr. Verð 1.750.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 28.036 kr. Í 84 mán.
VW Passat 2,0 Comfortline
Sjálfsk. árg. 01 ek. 102.000
Verð áður 1.090.000 kr. Verð 890.000 kr.
Afborgun pr. mán.: 16.819 kr. Í 60 mán.
KletthálsKlettháls Klettháls Klettháls