Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.02.2007, Blaðsíða 16
INNBLÁSTUR FYRIR SKÖPUNARGLEÐINA Ókeypis Panduro Hobby föndurlisti á íslensku! Einnig fáanlegur í Skólavörubúðinni. Borgartúni 29 Höfðabakka 3Glerárgötu 34 „Lögðum okkar síðasta blóðdropa í samtökin“ Samfélagsverðlaun Frétta- blaðsins verða afhent síð- degis í dag. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru afhent en hlutverk þeirra er að draga fram jákvæða hluti í samfélaginu, að sögn Steinunnar Stefánsdóttur, aðstoðarritstjóra blaðsins og formanns dómnefndar. Samfélagsverðlaun Frétta- blaðsins voru fyrst afhent í fyrra, en verða nú afhent í annað sinn í dag. Mikill fjöldi tilnefninga barst frá almenningi og dómnefnd útnefndi þrjá til fimm í hverjum hinna fimm flokka, en auk þeirra eru veitt ein heiðursverðlaun. „Það var að sjálfsögðu úr mjög vöndu að ráða fyrir dómnefndina,“ segir Steinunn. „Allar ábendingar sem koma frá almenningi eru verðugar og allar eiga í raun skilið að verða útnefndar til verðlauna.“ Dóm- nefndina skipuðu að þessu sinni Alma Geirdal, fulltrúi Forma, sam- taka átröskunarsjúklinga, en þau samtök hlutu Samfélagsverðlaun- in í fyrra, Gísli Marteinn Baldurs- son borgarfulltrúi, Hildur Peter- sen, stjórnarformaður Sparisjóðs Reykjavíkur, Svanfríður Jónas- dóttir, bæjarstjóri á Dalvík, og Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðar- ritstjóri Fréttablaðsins. „Mark- miðið með þessum verðlaunum sem nú eru veitt í annað sinn er að draga fram í dagsljósið örlítið brot af öllu því góða sem gert er í sam- félaginu,“ útskýrir Steinunn. „ Það er alltaf freistandi fyrir fjölmiðil að ná í góðar sögur, það er þeirra hlutverk. En það er algengt að fjöl- miðlar séu ásakaðir um að vilja aðeins segja neikvæðar fréttir. Þetta er okkar viðleitni í þá átt að draga fram eitthvað jákvætt, skemmtilegt og gott í dagsljósið. Á bak við góðverk liggja iðulega góðar, fallegar og oft skemmtileg- ar sögur.“ Steinunn segir að með verðlaununum sé líka verið að benda á allan þennan fjölda fólks sem lætur gott af sér leiða öðrum til eftirbreytni, og breiða út ákveð- inn boðskap. „Við fengum gífur- lega jákvæðar viðtökur í fyrra og það er eins í ár. Fólk verður svo innilega glatt þegar það fær sím- talið um að það hafi verið tilnefnt til samfélagsverðlaunanna. Það eru allir sammála um það að það sé jafnmikilvægt að vera tilnefnd- ur til þeirra eins og að vinna verð- launin. Mjög margir þeirra sem eru útnefndir eru almenningi lítt kunnir og taka aldeilis ekki við viðurkenningum á hverjum degi.“ Sjálf Samfélagsverðlaunin eru ein milljón króna en verðlaunin í hinum flokkunum eru gjafabréf sem Iceland Express hefur látið í té og tölvuverðlaun. „Við erum afskaplega þakklát Iceland Express fyrir örlæti þeirra í þessu góða málefni, ferðavinningana þrjá sem þeir lögðu til í ár,“ bætir Steinunn við. Verðlaunaafhending- in fer fram kl. 17 á Hótel Nordica, í sal H/ I á 2. hæð. Samfélagsverðlaunin – Forma, samtök átröskunarsjúklinga á Íslandi, fyrir að vekja þarfa athygli á viðkvæmu máli í samfélaginu. Til atlögu gegn fordómum – Toshiki Toma, prestur inn- flytjenda á Íslandi fyrir óeig- ingjarnt starf til að bæta íslenskt samfélag með því að benda á fordóma og beina umræðu um innflytjendamál og trúmál inn á nýjar brautir. Hvunndagshetjan – Guðbjörn Magnússon er sá Íslendingur sem hefur gefið mest blóð, en hann hafði gefið blóð 150 sinn- um á síðasta ári. Ung hetja - Gylfi Bragi Guð- laugsson blaðberi sem upp- götvaði eld í íbúðarhúsi, hringdi í Neyðarlínu og vakti íbúa. Uppfræðari ársins – Hjónin Þráinn Hafsteinsson og Þór- dís Lilja Gísladóttir fyrir framúrskarandi frjálsíþrótta- starf meðal barna og ungl- inga. Framlag til æskulýðsmála – Forvarnarverkefnið Blátt áfram fyrir vinnu gegn kyn- ferðislegu ofbeldi á börnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.