Fréttablaðið - 22.02.2007, Page 18

Fréttablaðið - 22.02.2007, Page 18
fréttir og fróðleikur Breyta þarf löggjöf um nálgunarbann. Kerfið sem nú er notað er of þungt í vöfum til að það nýtist til að veita þolendum ofbeld- is nægilega vernd og er seinvirkt hjálpartæki fyrir lögreglu. Þetta kom meðal annars fram í máli Ásu Ólafsdóttur, lögfræðings og réttargæslumanns, en hún flutti erindi á morgunverð- arfundi kvennahreyfing- anna á Íslandi í gær. Um- ræðuefnið var kynbundið ofbeldi og aðgerðir gegn því. Nálgunarbann er aðallega notað í málum sem varða heimilisofbeldi og er aðeins heimilt að fara fram á það ef rökstudd ástæða þykir fyrir því að þolanda stafi hætta af annarri manneskju. Ása Ólafsdóttir, lögfræðingur og réttargæslumaður, segir að til þess að þetta úrræði virki sé nauð- synlegt að skýrar reglur séu um nálgunarbann. Í fyrsta lagi sé óviðunandi að það sé algerlega háð mati lögreglu hvort farið sé fram á nálgunarbann. Þá taki málsmeðferðin oft of langan tíma. Auk þess hefur brotaþoli ekki nokkra aðild að málinu og viti í mörgum tilfellum ekki um afdrif beiðnarinnar, það eigi sérstaklega við um konur af erlendum upp- runa. Ása bendir einnig á að henni þyki lögreglan of sjaldan fara fram á nálgunarbann, jafnvel þótt aðstæður séu alvarlegar og raun- hæf ástæða sé til þess að óttast um líf og heilsu brotaþola. Sigurbjörn Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lög- regluembættis höfuðborgarsvæð- isins, tekur undir orð Ásu um að nauðsynlegt sé að breyta lögum um nálgunarbann. „Að mínu mati þarf að breyta fyrirkomulaginu. Kerfið er seinvirkt þegar kemur að þessum málum,“ segir Sigur- björn. Honum þykir réttara að beiðnir um nálgunarbann yrðu færðar til ákæruvalds lögreglu- stjóra og það gæti í beinu fram- haldi tekið ákvörðun um hvort af því yrði. Málið yrði svo fært fyrir dómara sem gæti þá úrskurðað um hvort rétt væri að halda því eða aflétta. Eins og staðan er nú þarf þol- andi ofbeldis að leggja fram kröfu um nálgunarbann við lögreglu. Lögregla metur hvort rétt sé að krefjast þess fyrir dómi að ein- staklingur skuli sæta nálgunar- banni. Sá einstaklingur hefur svo frest í tvo sólarhringa til að and- mæla. Það fyrirkomulag segja Sigurbjörn og Ása bæði of sein- legt. Heimilisofbeldi eru talin ein algengustu afbrot sem framin eru hér á landi. Andrés Ólafsson, sál- fræðingur í verkefni mennta- málaráðuneytisins Karlar til ábyrgðar, hefur sagt að talið sé að um 1.100 konur verði árlega fyrir líkamlegu heimilisofbeldi hér á landi. Málin eru þó þung í vöfum í kerfinu og eru erfiðleikar við að fá fram nálgunarbann á þolanda talið eitt þeirra atriða sem gera þau enn erfiðari viðfangs. Eins og staðan er nú er þolandi ofbeldis- ins venjulega sá sem þarf að fara af heimilinu. Það þykir Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmda- stýru Kvennaathvarfsins, öfug- snúið og verða til þess að þoland- inn, sem nánast alltaf er konan í sambandinu, verður fyrir enn frekara álagi við að flýja af heim- ili sínu fyrir utan það sem hún hefur þegar hlotið af ofbeldinu. Ef börn séu í sambandinu fylgi þau venjulega mæðrum sínum og skapi flutningarnir oft mikið rask fyrir þau. Á meðan geti gerandinn verið um kyrrt á heimilinu. Sigþrúður telur að virkari notkun á nálgunarbanni myndi skila miklu. Úrræði skorti til að koma í veg fyrir að karlmenn ónáði og hóti konum sem þeir hafa lagt hendur á. Fréttablaðið greindi frá því í fyrra að árið 2005 komu tæplega 300 heimilisofbeldismál á borð lögreglunnar. Hafa verður í huga að ekki eru öll tilkynnt tilvik skráð í málaskrá þar sem þessum málum er oft lokið sem dagbókarfærslu. Aðeins var eitt prósent þeirra mála tekið til ákærumeðferðar. Á árinu 2006 voru 445 heimilis- ofbeldismál skráð en of snemmt er að segja til um hvar þau mál eru nú stödd í kerfinu. Dökkur litur undirstrikar alvarleikann Mikilvægt að stýra áhorfi Nálgunarbann of þungt í vöfum Gleðilegar ræstingar – og farsælan vinnudag! R V 62 26 Rekstrarvörur 1982–200725ára TASKI Swingo 450 Einstakleg lipur vél sem hentar vel þar sem er þröngt. Raunhæf afköst 450m2/klst TASKI Swingo 1250 B Hentar meðalstórum fyrirtækjum og stofnunum. Raunhæf afköst 1250m2/klst Nánari upplýsingar veita sölumenn og ráðgjafar hjá RV

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.