Fréttablaðið - 22.02.2007, Side 29
Ég man þá tíð þegar ég var að vinna í St. Germain des Près hverfinu
í París. Þá gerðum við grín að japönsku stúlkunum sem fóru um í
hópum milli tískuhúsanna, uppstrílaðar, á hælum og jafnvel opnum
sandölum – í sokkum. Sokkarnir voru í ýmsum litum og áttu því vel
við sérstakan stíl þeirra. Nú hlær ekki nokkur maður lengur að Jap-
önunum því skyndilega varð það aðalmálið í vetur í tískuheiminum
að vera í sokkum og hælaskóm, helst með opinni tá. Svo mikil varð
breytingin að undirfata- og sokkaframleiðandinn Dim hefur marg-
faldað sölutölur á alls kyns sokkum undanfarin misseri. Í stóru versl-
unarhúsunum hér í borg eru sokkarnir nýjungin sem hvað best hefur
selst í vetur.
Það eru góðar fréttir af sumartískunni fyrir íslenskar konur því
sokkarnir halda velli sumarið 2007. Það þarf því engin að vera fót-
köld þetta árið í hráslagalegu íslensku sumri, jafnvel þó að rigni.
Þessi tíska á sér auðvitað sínar skýringar. Það er engin frétt að tískan
hefur mikið leitað til sjöunda og áttunda áratugarins undanfarin
misseri þar sem finna mátti allar útgáfur af sokkum og sokkabuxum.
Líklegt er að með mínítískunni hafi konum verið dálítið kalt og þannig
hafi sokkabuxur úr blúndu, hekli og netefni komist í notkun.
Sama skýring gæti átt við að þessu sinni en það er Karl Lagerfeld
sem tekur aftur upp blúndusokkabuxurnar fyrir sumarið 2007 í tísku-
línu sinni sem hann hannar undir eigin nafni og eru þær í svörtu og
hvítu. Reyndar var sagt í hálfkæringi um tískulínu Karls fyrir Chanel
fyrir sumarið 2007 að svo stutt væri síddin að í raun væru engir
neðripartar! Sokkabuxurnar minna hvorki á brúður, hjúkrunarkonur
né ekkjur heldur klæða fótinn fallega.
Hjá Castelbajac eru sokkabuxurnar með hjörtum og stjörnum en
einnig einlitar í skærum litum. Ekki er hægt að mæla með þeim fyrir
þær sem eru þéttar á velli. Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent veðj-
ar á netsokkabuxur en nú eru þær ekki lengur eins óþægilegar og
áður var þar sem örþráðum er blandað í efnið. Gaultier er meira í
leggings-stílnum í anda Madonnu og „Confessions on a Dancefloor“
og litirnir eru ekki til að láta lítið á sér bera. Christian Lacroix fer
alla leið og býður upp á samfellu með skálmum algjörlega úr blúndu-
efni, dömum skal þó bent á að kannski er rétt að skella yfir sig pilsi
og bol áður en farið er að heiman.
Í sumar geta forfallin tískufórnarlömb verið vel búin til fótanna
og þegar vorhreingerningarnar hefjast er óþarfi að setja sokkana
upp á geymsluloft með vetrarfötunum. Sokkarnir og sokkabuxurnar
verða í notkun í allt sumar.
Breska fyrirsætan Kate Moss hefur
gert 647.400.000 milljóna króna
samning við snyrtivörufyrirtækið
Coty um framleiðslu á eigin ilm-
vatni.
Í viðtali við tímaritið Hello Mag-
azine segist Moss vera ánægð með
að hafa gert samninginn við Coty,
sem hún hefur átt í farsælu sam-
starfi við um árabil. Um þessar
mundir er hún einmitt andlit kynn-
ingarherferðar á snyrtivörulínu
fyrirtækisins, Rimmel, í London.
Sala á nýja Moss-ilmvatninu
hefst í haust í Evrópu, Ástralíu og
Miðausturlöndum áður en það fer í
dreifingu á Bandaríkjamarkaði.
Ekki er vitað hvað ilmvatnið kemur
til með að heita. Sumum þykir nafn-
ið „Cocaine“ vel við hæfi, en sú
nafngift kallast á við „Opium“ ilm-
vatnið frá Yves Saint Laurent.
Kate Moss kynnir
nýtt ilmvatn
Gerir hundraða milljóna króna samning við Coty.
Vesturlandsvegur
Reykjavík
Mosfellsbær
Húsasmiðj
an
Nóatún
Toppskórinn
Margt Smátt
Vínlandsleið
Sport Outlet
Vínlandsleið 2–4, efri hæð
Grafarholt Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 12 – 18
Laugardagar kl. 12 – 16
Hanskar fyrir dömurog herra - 500 kr.Rétt verð: 2.500 kr.
COMB &CARE
Fæst í apótekum um land allt.
Sjampó og næring til varnar flóka
• Mild formúla sem svíður ekki undan.
• Sterkt flókavarnarefni fyrir sítt hár.
• Hárið verður hreint, mjúkt
og viðráðanlegt.
• Endingargóður ilmur.
Flókasprey
og flókahárkrem
• Verndar raka hársins
með B5 vítamíni.
• Fjarlægir flóka, auðveldar greiðslu
og verndar hreinlæti hársins.
• Endingargóður ilmur.
Auðvelt í notkun – frábær árangur
(Lúsaforvörn) Lúsin helst síður í vel hirtu hári. Inniheldur rósmarín sem fælir lúsina frá.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI