Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 47

Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 47
Ég á mér draum um að Samfylk-ingin leiði næstu ríkisstjórn. Í þeim draumi er kona forsætisráð- herra í fyrsta skipti í sögu lýðveld- isins og áherslurnar í þjóðarbú- skapnum taka mið af sjónarmiðum beggja kynja. Ekki er lengur leikið einungis eftir leikreglum strák- anna. Ég vil vakna upp af þeirri mar- tröð að stjórnmálaflokkur með pilsnerfylgi sé með ríkisstjórnar- áskrift af 30 ára gömlum vana og mér finnst nóg komið af einkavina- væðingu Sjálfstæðisflokksins. Ég vil nýja ríkisstjórn, ríkisstjórn Jafnaðarmanna. Leiðtogi Sam- fylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, verður nú fyrir árásum úr ýmsum áttum. Ég get skilið það af hverju andstæð- ingunum er svona mikið í mun að gera hana ótrúverðuga. Það er auð- vitað af því að þeir eru hræddir við hana. Hún ógnar núverandi vald- höfum vegna þess að hún er greind og klár, stefnuföst og rökföst og er lang sterkasti leiðtogi stjórnarand- stöðunnar, nógu sterk til að geta leitt nýja ríkisstjórn með glæsileg- um hætti. Hún náði borginni af íhaldinu á sínum tíma og þeir gera allt til að koma í veg fyrir að henni takist það sama í landsmálapólitík- inni. Þetta er taktík sem er í raun mjög skiljanleg. Þeir reyna að taka hana úr umferð. Á hinn bóginn er ekki eins skilj- anlegt af hverju margir fyrrum stuðningsmenn og ekki síst fylgis- konur Samfylkingarinnar hafa hætt stuðningi sínum við flokkinn og ætla að gefa öðrum flokkum atkvæði sitt í kosningunum í vor. Skýringarnar sem ég heyri eru ótrúlegar og ein skýring er ansi líf- seig. Margir hafa enn ekki „fyrir- gefið“ Ingibjörgu Sólrúnu að hún skyldi hætta sem borgarstjóri og fara í framboð til Alþingis. Við þetta fólk segi ég: „Get over it!“ Hvað ætlar fólk að velta sér lengi upp úr þessu? Ingibjörg Sólrún tók áskorun og áhættu af því að það var lagt hart að henni að gera það. Frá- farandi bæjarstjóri á Akureyri gerði það sama og ég get ekki betur séð en að allir séu búnir að fyrir- gefa honum það. Ef Ingibjörg hefði nú eitthvað verulega krassandi á samviskunni myndi ég hugsanlega skilja þessa bræði. Ég myndi alveg skilja það að fólk væri fúlt ef Ingi- björg Sólrún hefði gefið ríkisbank- ana á tombóluverði, komið í gegn eftirlaunafrumvarpi til að tryggja afkomu sína, ef hún hefði nú t.d. stutt Íraksstríðið, klúðrað varnar- málunum eða stigið stór skref í að einkavæða RÚV. Ég myndi líka skilja það að öryrkjar eða eldri borgarar væru argir út í Ingibjörgu Sólrúnu fyrir að bæta ekki kjör þeirra ef hún hefði setið í ríkis- stjórn undanfarin þrjú kjörtímabil. En málið er að hún hefur ekki setið í ríkisstjórn og hefur ekki fengið að taka til hendinni í ríkisbúskapnum. Við ættum að einbeita okkur að því sem Ingibjörg Sólrún hefur gert og fyrir hvað hún stendur fremur en að velta okkur upp úr því að við misstum góðan borgar- stjóra fyrir nokkrum árum. Það er búið og gert og var ekkert stórmál í samanburði við allt svínaríið sem viðgengst hjá ríkisstjórnarflokkun- um sem sæta engri ábyrgð hvað varðar mýmörg alvarleg mistök. Við ættum einnig að einbeita okkur að því sem Ingibjörg Sólrún getur gert og mun gera nái Samfylkingin að leiða næstu ríkisstjórn. Þá verð- ur gaman að lifa. Höfundur er sölustjóri og félagi í Samfylkingunni. Nokkur orð um árásirnar á Ingibjörgu Það fer vænt-anlega ekki framhjá neinum sem ekur um borgina á góð- viðrisdögum, að loftið er mengað svifryki frá bíla- umferðinni. Ryk þetta er að mestu ættað úr kverkum götu- og gang- stéttakanta, en þar safnast fyrir malbikssalli af götunum. Nagla- dekkin fræsa niður göturnar og á hverju ári þarf að malbika þar sem umferðin er hvað mest. Þrátt fyrir viðleitni borgarinn- ar við að benda á að ekki sé nauð- synlegt að vera með nagla í dekkj- um ef einungis er ekið innanbæjar og þrátt fyrir að bifreiðum á nagla- dekkjum hafi fækkað, þá dugir það ekki til. Og hvað er þá til ráða? Eigum við bara að bíða eftir að veðráttan skoli hroðanum burtu eða eigum við að leyfa honum að liggja þar til malbikað verður næst? Reykjavíkurborg á sópara og eflaust hafa vegfarendur séð til þeirra að sumarlagi. Spurningin er hins vega hvort ekki megi sópa göturnar og hreinsa árið um kring? Í dag, í miðjum febrúar- mánuði, eru allar kverkar fullar af malbikssalla. Og þó svo rigni skolast hann ekki nema að litlu leyti burtu, heldur situr þar áfram og bíður þess að honum verði þyrl- að upp af bílaumferðinni, næsta þurrviðrisdag. Er ekki ráð að borgin fari að sópa? Þessir sóparar hljóta að geta gengið þótt kalt sé í veðri? Borgin á þetta ráð að þrífa göturnar og af hverju þá ekki bara að gera það? Höfundur er fulltrúi Frjálslynda flokksins í framkvæmdaráði Reykjavíkurborgar. Hvar eru sóp- ararnir í Reykj- víkurborg?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.