Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 54

Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 54
Dag ... Hvað er að gerast? Á fætur fyrir tólf og sjarminn skrúfaður upp! Já vina, ef þú heldur rétt á spilunum getur þessi kroppur orðið þinn ... Því miður, rétt í þessu er ég orðin lesbía. Hmmm ... sturta Flott .. Heyrðu ég var að ... „sápa“ mig í sturtunni og fór að hugsa að ef þú vilt fá dömu til að búa hérna þá er það ekkert mál .... En tilboðið mitt stendur enn Jói viltu loka hurðinni Kemur þessi ógeðslega lykt héðan? Hvaða ógeðslega lykt? Lykt af súru skyri sem er búið að vera úti í sólinni í marga daga? Eða lykt af blautri ull? Angrar það þig ekkert að herbergið þitt lyktar svona? Ég er 15, líkaminn er bara ein lyktarsprengja á þeim árum Það er við hæfi að gefa pappír þegar við fögnum pappírsbrúðkaupi ... Þú getur því átt von á pappírum frá lögfræðingnum mínum í tilefni dagsins. Nei eg heyri ekkert ... Nákvæmlega Mamma má ég fá smáköku? Þetta er þriðja skiptið sem þú spyrð! Ég myndi sleppa því að spyrja aftur ef ég væri þú. En ef ég væri þú þá værir þú ég og þá þyrfti ég ekkert að spyrja til að byrja með ... Íslendingar eru fljótir að tileinka sér nýjungar, því verður ekki neitað. Heið- bláu fótanudd- tækin, flatskjá- ir, og farsímar, allt var þetta rifið úr örmun- um á sölumönnum með því offorsi sem ein- kennir okkur sem þjóð. Fólk spól- aði úr hlaði moldarkofans á Lödu sport og upp í fimm hundruð fer- metra einbýlishallir á örskots- stundu, með stuttri viðkomu hjá bílasalanum þar sem Lödunni var skipt út fyrir splunkunýjan Lexus. Þessi hraði getur verið stór- skemmtilegur og það er ekki laust við að maður fyllist þjóðarstolti þegar útlendingurinn gapir af undrun yfir hamaganginum. Eins kemur þó að því að maður fyllist þreytu. Og þá má þakka fyrir hvað það er enn þá stutt í sveitastemn- inguna og fuglasönginn, bæði í árum og kílómetrum. Ég lagði land undir bíldekk um daginn og keyrði norður á bóginn. Ég þurfti ekki langt að fara fyrr en tölvupósturinn minn (sem var þá óðum að fyllast af ruslpósti, eins og ég uppgötvaði þegar ég sneri aftur) var algerlega gleymd- ur og grafinn. Skömmu síðar kom ég því ekki alveg fyrir mig hvaða gráa taska þetta var þarna aftur í, þó að ég og innihaldið, heittelskuð fartölvan, hefðum verið óaðskilj- anleg í nokkur ár. Þegar síminn hringdi rétt fyrir utan Akureyri kannaðist ég ekkert við hljóðið, og leyfði batteríinu bara að fjara út á næstu dögum. Ég hreyfði ekkert af þessum tólum í fimm daga, og lét eins og ég myndi ekki að hleðslutækin væru öll á sínum stað í skjóðunni minni. Ég mæli sterklega með slíkri ferð, burt frá pípi og hringitónum og batteríum. Þá gefst manni tími til að hlaða sín eigin. En ég neita því ekki heldur að það var gott að koma heim og skella tánum í heið- blátt fótanudd á meðan ég rúllaði í gegnum ólesin sms. Það er eðli fullra battería að þau þurfa að tæmast.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.