Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 58

Fréttablaðið - 22.02.2007, Síða 58
! „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR Miðasala á Nasa frá kl. 13-16 Einnig á www.nasa.is og www.midi.is Gamanleikritið Leikstjóri: Gunnar I. Gunnsteinsson Steinn Ármann Magnússon Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir Aðalhlutverk: –eftir Jim Cartwright Frumsýning: fös. 23. feb. kl. 20 2. sýn. sun. 25. feb. 3 sýn. fös. 2. mars 4. sýn. sun. 4. mars. UPPSELT Nú rennur upp Vetrarhátíð í höfuðborginni en viðburð- ur sá hefur fest sig í sessi sem kærkomin tilbreyting í skammdeginu. Þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin en að þessu sinni er á henni meginlandsslag- síða því í kvöld hefst einnig franska menningarkynning- in Pourqoui pas? Það verður því heimsborgarbragur á dagskránni í ár. Setningar hátíðanna tveggja verð- ur á Austurvelli kl. 19.45 í kvöld en á slaginu átta mun franski gjörninga- og tónlistarmaðurinn Michel Moglia leika exótískt for- spil hátíðarinnar með tilheyrandi eldglæringum og sjónarspili. Honum til fulltingis verða slag- verkspiltarnir í Steintryggi og plötusnúðurinn Gísli Galdur. Síðan tekur við fjölbreytt dagskrá, Vetr- arhátíð stendur fram á sunnudag en franska menningarkynningin fram á vorið svo sýnt er að engum þarf að láta sér leiðast á næst- unni. Höfuðborgarstofa skipuleggur Vetrarhátíðina en á í samstarfi við fjölmarga aðila og menningar- stofnanir. Til dæmis er morgun- dagurinn kenndur við Safnanótt þar sem söfn og stofnanir opna dyr sínar fyrir áhugasömum gest- um. Markmið hátíðarinnar er að höfða til sem flestra og því ættu gestir á öllum aldri að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Þannig verð- ur sérstök menningarhátíð eldri borgara í Breiðholti og Heimsdegi barna verður fagnað í Gerðubergi á laugardaginn. Leikskólar í Reykjavík taka virkan þátt í hátíð- inni og láta í sér heyra á morgun og í Hinu húsinu verður vegleg dagskrá þar sem listræn ung- menni og upprennandi listamenn láta ljós sitt skína í kvöld. Allar listgreinar munu eiga sinn hlut í dagskrá Vetrarhátíðar. Af dansviðburðum má nefna komu hinna mögnuðu belgísku meyja í La Guardia Flamenca sem bland- ar saman ástríðu flamengódans- ins og heraga majorettanna en hópurinn kemur fram í Hafnar- húsinu í kvöld. Í næsta nágrenni verður sannkölluð dansveisla á skemmtistaðnum Nasa þar sem nemendur og kennarar Kramhúss- ins sýna takta ásamt frumlegum gestum. Á laugardag heldur Dans- leikhús með ekka upp á tíu ára afmæli sitt í Kartöflugeymslun- um í Ártúnsbrekku en þar munu líka fleiri listgreinar skjóta rótum um helgina. Brúðumeistarinn Bernd Ogrod- nik bregður á leik með persónur sínar og flytur Pétur og úlfinn í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn en sýning sú er einkum ætluð nýbúa- börnum. Af vettvangi myndlistarinnar er vert að geta þess að ófáar sýning- ar verða opnaðar nú um helgina. Í Ráðhúsinu verður í kvöld opnuð fjölþætt sýning helguð íslensku myrkri og annað kvöld endurtek- ur myndlistarmaðurinn Andrew Burgess umbreytingu sína á alþingishúsinu og gæðir það nýju lífi með ljósum og myndvörpun. Þá opnar ljósmyndasýning franska listamannsins Etienne de France í Listasafni ASÍ á föstudagskvöldið en samlandar hans sýna einnig ljósmyndir í Grófarhúsinu. Í Hafn- arhúsi Listasafns Reykjavíkur sýnir hinn heimsþekkti Pierre Huyghe verk sín en öll þessi söfn verða aukinheldur með fjölbreytta dagskrá alla helgina. Tónlistin skipar stóran sess en meðal hátinda hennar verða tón- leikar Hlaupanótunnar í Hafnar- húsinu á föstudagskvöld þar sem boðið verður upp á bræðing af því nýjasta í íslensku tónlistarlífi. Organistar leika undir frönskum áhrifum í Dómkirkjunni í kvöld sem og Tríó Björns Thoroddsen á Kjarvalsstöðum á morgun. Í kvöld syngur líka Bjargræðiskvartett- inn í Fríkirkjunni og hörpuleikar- inn Marion Herrera kynnir fransk- ar perlur í Iðnó. Þá verða skammdegistónleikar í Söngskól- anum í Reykjavík á laugardag og vegleg dagskrá í Ráðhúsinu sem eldri borgarar standa fyrir. Vetr- arhátíð lýkur síðan með tónleikum frönsku hljómsveitarinnar Dion- ysos sem leiðir hlustandann í und- ursamlegt ferðalag með frumlegri blöndu af poppi og þjóðlagarokki. Tónleikar þeirra verða í Hafnar- húsinu kl. 22 á laugardagskvöld. Dagskrá Vetrarhátíðar má nálgast á heimasíðunni www.vetr- arhatid.is en síðan er um að gera að vera sem mest á ferli þessa fjóra daga því það er aldrei að vita á hvað eða hvern má rekast næstu daga. Kl. 22.00 Hljómsveitin Hundur í óskilum heldur tónleika á Domo við Þing- holtsstræti. Hljómsveitin er skipuð Eiríki G. Stephensen og Hjörleifi Hjartarsyni. Hljómsveitin hefur starfað óslitið síðan á síðustu öld og spannar tónlist hennar allar nótur tónstigans. Hljómsveitin hefur víða komið við á ferli sínum og hvarvetna vakið lukku.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.