Fréttablaðið - 22.02.2007, Page 62
Fjölskylda og vinir popp-
prinsessunnar Britney
Spears sjá fram á bjarta og
betri tíð hjá söngkonunni
eftir að hún innritaði sig á
meðferðarheimili í Malibu á
þriðjudagskvöldið.
Hegðun Britney Spears hefur
vakið heimsathygli undanfarið
enda er hún ein frægasta tónlistar-
kona sinnar kynslóðar. Söngkonan
hefur verið í slúðurblöðunum upp
á dag hvern fyrir drykkjuvenjur
sínar og vandræðalega hegðan á
opinberum stöðum. Steininn tók
væntanlega úr þegar Spears mætti
á hárgreiðslustofu í miðborg Los
Angeles, rakaði af sér allt hárið og
bætti síðan um betur á húðflúrun-
arstofu skammt frá með því að
láta skreyta á sér hnakkann og úln-
liðinn.
Samkvæmt vefsíðunni TMZ.com
og glanstímaritinu People fór
Spears sjálfviljug í meðferð en
ekki er liðin vika síðan hún reyndi
fyrst að hætta ólifnaðinum. Aðrir
vefmiðlar greina frá því að fyrr-
verandi kærasti Britney, Justin
Timberlake, hafi keyrt til Engla-
borgarinnar og reynt að tala um
fyrir henni. „Ef ein-
hver getur
komið fyrir
hana vit-
inu
þá
er það Justin,“ var haft eftir einum
heimildarmanni tímaritsins More.
Vandræði Spears hófust fyrir
alvöru í nóvember á síðasta ári
þegar hún sótti um skilnað frá eig-
inmanni sínum, Kevin Federline.
Aðdáendur söngkonunnar gerðu
sér vonir um að skilnaðurinn
myndi hleypa nýju lífi í feril
Spears enda hefur þeim ætíð verið
í nöp við dansarann. Britn-
ey hóf að stunda skemmt-
analífið heldur ótæpi-
lega með partíljónum á
borð við Paris Hilton
og Lindsay Lohan.
Þetta var langur
vegur frá hegðun
þeirrar ljóshærðu
hnátu sem söng
sig inn í hug og
hjörtu heims-
byggðarinnar með
laginu Baby One
More Time 1998.
Spears féll síðan kylliflöt fyrir
Justin Timberlake en samband
þeirra varð ekki langlíft og kvaddi
söngvarinn spúsu sína með harm-
rænum tónum lagsins Cry Me a
River þar sem hann sakaði Britney
um framhjáhald.
Söngkonan hefur margoft
komið sér á forsíður slúðurblað-
anna og þá ekki bara fyrir nokkra
drykki á skemmtistöðum. Á MTV-
hátíðinni 2003 kyssti hún Madonnu
heldur innilegum kossi í opnunar-
atriðinu þannig að siðprúðar hús-
mæður í Bandaríkjunum supu
hveljur. Árið 2004 kom Spears
heimsbyggðinni aftur í opna
skjöldu þegar hún giftist æskuvini
sínum Jason Alexander í Las Vegas
en hjónabandið stóð einungis yfir í
55 klukkustundir. „Ég vildi bara
sjá hvernig það væri að vera gift,“
var útskýring Spears. Ári síðar
var hún trúlofuð Kevin Federline
en þau höfðu einungis verið saman
í þrjá mánuði. Söngkonan á með
honum tvö börn en fjölmiðlar hafa
lengi vel efast um hæfni Spears
sem móður og þá ekki síst eftir að
hún sást keyra með soninn Sean
Preston í kjöltu sinni. Talið er að
Spears afsali forræði sínu yfir
strákunum tveimur til móður sinn-
ar á meðan hún nær aftur fótfestu.
Þetta gerir hún til að tapa ekki for-
ræðisdeilu sinni og K-Fed sem nú
stendur yfir.
Sex börn tónlistarmannsins James
Brown, sem eru öll komin á full-
orðinsár, hafa komist að sam-
komulagi við ekkju hans, Tomi
Raye Hynie, um hvar eigi að jarða
hann.
Jarðarförin mun líklega fara
fram á næstu dögum. Ekki verður
greint opinberlega frá staðsetn-
ingunni að ósk barna Browns.
Soul-goðsögnin lést á jóladag,
73 ára að aldri. Deilur hafa staðið
yfir á milli Hynie og barnanna um
erfðaskrá Browns og hvar eigi að
jarða hann.
Jarðarför
samþykkt
Bubbi Morthens, rokkkóngur
Íslands, var í gær staddur niðri í
Hæstarétti þar sem var verið að
flytja mál hans á hendur tímarit-
inu Hér og nú, ritstjóra þess,
Garðari Erni Úlfarssyni, og
útgefandanum, 365 prentmiðl-
um.
Bubbi fer fram á 20 milljónir
vegna fyrirsagnar á forsíðu
tímaritsins þar sem sagði „Bubbi
fallinn“, myndar sem birtist á
forsíðunni þar sem gat að líta
Bubba í bíl sínum á götu í Reykja-
vík og myndaraðar inni
í tímaritinu. Þar
sat Bubbi í
bílnum og
var með
sígarettu í
munni.
Í
héraði
voru
Bubba
dæmdar
700 þúsund krónur miskabætur
vegna þess skaða sem hann telur
sig hafa orðið fyrir auk máls-
kostnaðar en málinu var áfrýj-
að.
Í Hæstarétti í gær var troð-
fullur salur áhorfenda. Fór þar
mest fyrir laganemum en málið
var prófmál bæði lögmanns
Bubba, Sigríðar Rutar Júlíus-
dóttur, sem og verjanda í málinu,
Gísla Hall. Þegar málflutningi
var lokið og dómararnir fimm
horfnir að tjaldabaki þrammaði
niður á mitt gólf Jónas dómvörð-
ur Marteinsson og ávarpaði
áhorfendur. Þakkaði hann laga-
nemum fyrir hversu prúð og
háttvís þau hefðu verið í sal –
skóla sínum til sóma. Hann lagði
þá til að viðstaddir myndu klappa
duglega fyrir lögmönnum sem
þarna voru að flytja prófmál
bæði tvö.
Mest mega líða fjórar vikur
þar til dómar eru kveðnir upp
frá því að mál eru munnlega
flutt. Þeir eru einungis kveðnir
upp á fimmtudögum og þá klukk-
an fjögur.
Bubbi trekkir í
Hæstarétti
STÓRDANSLEIKUR
ÁKI PAIN HITAR UPP
SÁLI
HÚSIÐ OPNAR KL. 24.00FORSALA MIÐA Á NASA
FÖSTUD. 23.FEB. FRÁ KL. 13-17 MIÐAVERÐ 1900 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
Gamanleikritið
–eftir Jim Cartwright