Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.02.2007, Qupperneq 64

Fréttablaðið - 22.02.2007, Qupperneq 64
!óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á NOTES ON A SCANDAL kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA PAN´S LABYRINTH kl. 8 og 10.15 B.I. 16 ÁRA LITTLE CHILDREN kl. 8 og 10.30 B.I. 14 ÁRA LITTLE MISS SUNSHINE kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 7 ÁRA KÖLD SLÓÐ/COLD TRAIL kl. 5.45 ENGLISH SUBTITLES B.I. 12 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30 THE NUMBER 23 kl. 8 HEIMSFORSÝNING NOTES ON A SCANDAL kl. 8 og 10 B.I. 12 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.30, 8 og 10.30 ANNA AND THE MOODS ENSKT TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND / ÓTEXTUÐ ANNA & SKAPSVEIFLURNAR ÍSL. TAL kl. 4 og 4.45 STUTTMYND ROCKY BALBOA kl. 10.30 B.I. 12 ÁRA VEFUR KARLOTTU ÍSL. TAL kl. 3.40 NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5.40 KÖLD SLÓÐ kl. 5.45 B.I. 12 ÁRA GHOST RIDER kl. 5.40, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA THE PURSUIT OF HAPPYNESS kl. 5.40 og 10.15 THE NUMBER 23 kl. 8 HEIMSFORSÝNING TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI SVALASTA SPENNUMYND ÁRSINS JIM CARREY Í SVAKALEGUM SÁLFRÆÐITRYLLI HEIMSFORSÝNING Í SMÁRABÍÓ OG BORGARBÍÓ. MIÐASALA HAFIN Á Q bar kemur formlega út úr skápn- um í kvöld, þegar nýjar áherslur í rekstri staðarins verða kynntar. „Við erum að fara að innleiða meiri partí- og stuðstemningu, í staðinn fyrir þá afslöppuðu stemn- ingu sem hefur ríkt hérna. Með því erum við líka að stíla inn á samkynhneigða hópa, þó að stað- urinn sé ekki eingöngu fyrir þá,“ sagði Óli Hjörtur Ólafsson, nýr rekstrarstjóri Q bar. „Markhópur- inn verður samkynhneigðir, en auðvitað eru allir velkomnir. Við viljum bara fá alla og búa til eitt stórt partí,“ sagði hann. Óli hefur unnið hörðum hönd- um að því að veita staðnum smá- vægilega andlitslyftingu síðustu daga. „Við erum búin að setja upp alveg rosalega flott plötusnúða- búr, og ég er ekki frá því að plötu- snúðarnir eigi eftir að slást um að fá að spila hérna,“ sagði hann kátur. „Svo hafa Ásgrímur Már Friðriksson og Haffi Haff líka lagt hönd á plóginn, og Ási bjó meðal annars til listaverk á speglana fyrir mig,“ bætti hann við. Óli segist finna fyrir gríðarlegri eftir- væntingu og eftirspurn eftir stað á borð við hinn nýja Q bar. „Það vantaði hreinlega klúbb fyrir sam- kynhneigða, og hefur vantað mjög lengi. Ég hef fundið fyrir alveg gríðarlegri eftirspurn, og við erum að svara henni,“ sagði Óli. Hann kveðst ábyrgjast að mikið verði um dýrðir í opnunarpartí- inu, sem hefst klukkan níu í kvöld. „Kitty, sem hefur séð um nineties- kvöldin ásamt Curver, mun ýta þessu úr vör. Svo verða Natalie og Gísli Galdur hérna annað kvöld, og leynigestur á laugardaginn,“ sagði hann. „En ég ítreka að það eru allir velkomnir á Q bar og við viljum sjá sem flesta í kvöld. Hér eru öll dýrin í skóginum vinir,“ bætti hann við. Q bar kemur út úr skápnum Hjalti Jakobsson sendi frá sér tölvuforritið Peel í byrj- un mánaðar. Hann segir megintilgang þess vera að finna nýja tónlist og kynna hana fyrir notendum. „Á undanförnum tveimur, þremur árum hefur mp3-blogg orðið að ákveðnum kúltúr. Þar er fólk að skrifa um tónlist, og setja inn lög eða tengja í lög á heimasíðum hljómsveita. Það sem ég gerði með forritinu mínu er að taka þetta allt saman, svo það sé aðgengilegt á einum stað,“ sagði Hjalti. Hann stundar nám í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík, og kveðst vera tölvu- og tónlistarnörd í einum pakka. „Ég er rosalegur tónlistarnörd og var farinn að pirra mig á því hvað ég eyddi miklum tíma í að flakka á milli svona tónlistarblogga til að fylgjast með nýjungum. Inni í forritinu gerist maður áskrifandi að bloggunum, og svo sér forritið sjálft um að fylgjast með nýjungum og finna lögin,“ útskýrði Hjalti. „For- ritið lætur þig vita, nánast eins og póstforrit, þegar það eru komin inn ný lög sem þú átt eftir að hlusta á. Svo ýtirðu bara á play og það spilar lögin, bara eins og önnur tónlistar- forrit,“ bætti hann við. Með því að ýta á einn hnapp geta notendur Peel jafnframt lesið sér til um lögin, eða hlaðið þeim inn í tón- listarforrit á borð við iTunes. Þegar forritið er sótt er þar þegar að finna nokkur mp3-blogg, en notendur geta auðveldlega bætt við og hent út. „Það eru til svo mörg og ólík blogg, maður getur bara sett það inn sem maður hefur mestan áhuga á,“ sagði Hjalti. Peel er eingöngu til handa Macintosh-notendum að svo stöddu, en Hjalti segir útgáfu fyrir PC-notendur vera í burðarliðnum. „Eins og er er forritið í ókeypis prufu á netinu, það er hægt að sækja það á getpeel.com,“ sagði Hjalti. „En það eru einhverjir smá hnökrar á þessu og lokaútgáfan er væntanleg eftir svona einn, tvo mánuði. Þá sel ég það kannski á svona þúsundkall,“ sagði Hjalti, sem hefur nú þegar fengið góð við- brögð frá notendum. „Já, þessu virðist vera mjög vel tekið. Ég er búinn að sjá tvær greinar á Wired og aðeins af viðbrögðum á blogg- um,“ sagði hann kátur. Nafn forrits- ins vísar aftur í áhuga Hjalta á tón- list. „Peel þýðir náttúrlega að taka utan af einhverju, og komast þannig að einhverju nýju. Og svo er það líka smá skírskotun í útvarpsmann- inn fræga John Peel. Þetta er svona aðeins til heiðurs honum,“ sagði hann. Pakkatilboð HR4011 bor- og brotvél 6270DWDE 12V rafhl.borvél Kr. 69.900- Tilboðið gildir til 28. 02. 2007 eða meðan birgðir endast. Útsölustaðir: Sandblástur og málmhúðun - Akureyri Þór hf - Lónsbakka - Akureyri Þór hf - Ármúla 11 - Reykjavík 12V MAKITA rafhlöðu- borvél fylgir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.