Fréttablaðið - 16.03.2007, Page 24
fréttir og fróðleikur
Nauðsynlegur
dagur
Hugmyndir um endurskipu-
lagningu Stjórnarráðsins
hafa komið fram frá for-
ystumönnum allra stjórn-
málaflokka að undanförnu.
Viðurkennt er að ráðuneyta-
skipanin sem lögbundin er
í stjórnarráðslögunum er
löngu úrelt og endurspegl-
ar í engu samfélag líðandi
stundar. Hugmyndir um
endurskoðun eru nálægt því
að vera jafngamlar lögun-
um en hafa litlu skilað.
Setning stjórnarráðslaganna árið
1969 markaði upphaf nýrra stjórn-
arhátta á Íslandi að ýmsu leyti.
Með nýjum lögum var löggjafinn
að bregðast við skipulagsleysi sem
hafði einkennt Stjórnarráðið meðal
annars í skjóli stjórnarskrárbund-
inna valdheimilda ríkisstjórna til
að skipta sjálfar með sér verkum.
Fjölgun ráðuneyta á fimmta og
sjötta áratug 20. aldar virðist þó
hafa verið meginástæða þess að
talið var nauðsynlegt að setja skýr-
ari reglur um skipulag Stjórn-
arráðsins. Síðan lögin voru sett
hafa hugmyndir um fækkun ráðu-
neyta verið ræddar í þaula en á
þeim tíma er viðamesta breyting-
in stofnun umhverfisráðuneytisins
árið 1990.
Það dylst engum að núverandi
skipan Stjórnarráðsins endur-
speglar ekki samfélagsaðstæð-
ur á neinn hátt. Við setningu lag-
anna 1969 var lögð á það áhersla
að nægilega mörg ráðuneyti væru
til skiptanna við stjórnarmyndan-
ir svo að auðveldara væri að finna
ákjósanlegt jafnvægi milli vænt-
anlegra stjórnarflokka. Minni
áhersla var lögð á að hafa fagleg-
an grundvöll að leiðarljósi. Einnig
var það yfirlýst markmið laganna
að hver höfuðatvinnuvega þjóðar-
innar, frumframleiðslugreinarn-
ar sjávarútvegur, landbúnaður, og
iðnaður, hefði sérstakt ráðuneyti
og er ein skýrasta birtingarmynd
þess hversu mikið dám lögin draga
að áherslum fyrri tíðar.
Gömlu atvinnuvegirnir skipta
sífellt minna máli en mikilvægi
þeirra var gífurlegt áður fyrr.
Ráðuneytin voru eftirsótt enda
lögð áhersla að dreifa þeim á milli
stjórnarflokka við stjórnarmynd-
anir. Oft er landbúnaðarráðuneyt-
ið tekið sem dæmi um afkáralega
skiptingu ráðuneyta á milli ein-
stakra málaflokka. Landbúnaður
leggur til um 1,5 prósent lands-
framleiðslunnar en hefur sérráðu-
neyti, net stofnana og háskóla. Á
sama tíma gefur hátækniiðnað-
ur um fjögur prósent landsfram-
leiðslunnar og ferðaþjónusta pró-
senti betur án þess að sérstaklega
sé tekið á málefnum atvinnugrein-
anna.
Forystumenn allra stjórnmála-
flokka eru sammála um að endur-
skoða beri lög um Stjórnarráð Ís-
lands. Samfylkingin hefur í tví-
gang lagt fram frumvarp á Alþingi
og nýafstaðið flokksþing fram-
sóknarmanna samþykkti afdrátt-
arlausa ályktun um fækkun ráðu-
neyta.
Stjórnarráðsnefnd Framsókn-
arflokksins lagði einnig fram til-
lögu að drögum að nýju frumvarpi
til laga um Stjórnarráðið. Hug-
myndir flokkanna gera ráð fyrir
fækkun ráðuneyta úr fjórtán í tíu
eða níu og hugmyndir um stofnun
eins atvinnuvegaráðuneytis. Sjálf-
stæðisflokkurinn samþykkti einn-
ig ályktun um sameiningu ráðu-
neyta á flokksþingi sínu 2005 svo
dæmi sé tekið. Vinstri hreyfingin
- grænt framboð hefur kynnt hug-
myndir sínar á Alþingi til dæmis
með tillögu um ráðuneyti lífeyris,
almannatrygginga og vinnumark-
aðsmála í mars 2005. Frjálslyndi
flokkurinn vill einnig endurskoð-
un og leggur áherslu á eitt at-
vinnuvegaráðuneyti og að trygg-
ingamál og heilbrigðismál verði
hugsanlega aðskilin.
Allir flokkar eru sammála um
að auka verði áherslu á umhverf-
ismál og mennta- og menningar-
mál. Snertifletirnir eru því fjöl-
margir og ekkert eftir annað en að
byggja á þverpólitískri sátt flokk-
anna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði í við-
tali við Fréttablaðið nýlega að helst
sé tækifæri til að endurskoða lögin
um Stjórnarráðið og verkaskipt-
ingu ráðuneyta í kringum kosning-
ar eða strax að loknum kosning-
um. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, vill
að breytingar verði gerðar á sum-
arþingi eftir kosningar og Stein-
grímur J. Sigfússon, formað-
ur vinstri grænna telur að mögu-
legt sé að mynda stjórn utan um
breytt skipulag strax eða manna
gömlu ráðuneytin á meðan end-
urskipulagningin fer fram. Álykt-
un flokksþings Framsóknar geng-
ur út á að flokkurinn taki ekki þátt
í að mynda ríkisstjórn með fleiri
ráðuneytum en tíu.
En staðan hefur verið þessi
síðan lögin voru sett og hugmynd-
irnar sem nú eru ræddar hafa
verið settar á oddinn hjá nokkrum
ríkisstjórnum og fjölda nefnda og
vinnuhópa frá árinu 1983, og jafn-
vel fyrr ef grannt er skoðað. Málið
er því fjarri því að vera einfalt.
Þegar pólitískur vilji var til þess að
hreyfa við þeirri lögfestu skipan
sem komið var á árið 1970 reynd-
ist það erfiðara verkefni en svo að
þær ríkisstjórnir sem að þeim til-
raunum stóðu gætu leitt þær hug-
myndir til lykta. Í upphafi tíunda
áratugarins fjaraði undan áhuga á
endurskoðun, kannski vegna mis-
heppnaðra tilrauna árin á undan.
Þar endurspeglast kannski best
áhrif laganna sjálfra því ráðu-
neytaskipanin er þar fyrirfram
ákveðin og erfitt að hreyfa við því
við myndun stjórnar að loknum
kosningum.
Allir flokkar eru þó sammála
um að þessar breytingar séu tíma-
bærar og nauðsynlegar og því erf-
itt að sjá fyrir sér að stjórnmála-
menn samtímans gangi ekki í það
verk að nútímavæða stjórnkerfið
í samhengi við breytingar samfé-
lagsins.
Nútímavæðing stjórnkerfisins
Verðbólga komin í 1.700 prósent
Höfðabakka 3 • Borgartúni 29 • Glerárgötu 34
Páskaföndur
Fæst einnig
í Skólavörubúðinni
að Smiðjuvegi 5