Fréttablaðið - 30.03.2007, Qupperneq 92
Bandaríski upptökustjór-
inn Timbaland er einn
af áhrifamestu tónlistar-
mönnum síðustu tíu ára.
Undanfarið hefur verið
mikið fjallað um hlut hans á
næstu plötu Bjarkar, Volta,
en á mánudaginn kemur
önnur sólóplatan hans,
Shock Value, í verslanir.
Trausti Júlíusson skoðaði
afrekaskrána hans.
Stundum finnst manni að hug-
tök eins og „snillingur“ og „frum-
kvöðull“ séu mjög frjálslega notuð
í umfjöllunum um popptónlist, en
bandaríski pródúserinn Timba-
land er að mínu mati einn af þeim
sem standa fullkomlega undir
þeim báðum. Þó að hann hafi lítið
verið sjálfur í sviðsljósinu er hann
maðurinn á bak við marga af flott-
ustu smellum síðustu ára. Undan-
farin tíu ár hefur hann verið ótrú-
lega frjór og hugmyndaríkur. Það
hefur stundum verið meiri sköp-
unargleði í einu lagi frá Timb-
aland heldur en á öllum rokk-
plötunum í 30 efstu sætunum
vinsældalistanna og aðrir pródús-
erar hafa verið duglegir að stæla
hann. Timbaland sendi frá sér
sína fyrstu sólóplötu árið 1998,
en plata númer tvö er væntanleg
eftir helgina.
Timbaland heitir réttu nafni Timot-
hy Z. Mosely og er fæddur 10. mars
1972 í Norfolk í Virginiu. Hann
fékkst við eitt og annað í tónlist-
inni framan af, spilaði meðal ann-
ars sem plötusnúður undir nafn-
inu DJ Tiny Tim og var meðlim-
ur í upptökustjórateyminu S.B.I.
(Surrounded by Idiots) ásamt ann-
arri tilvonandi stórstjörnu í þeim
bransa, Pharrell Williams. Þegar
leið á tíunda áratuginn fór hann að
vekja athygli sem pródúser. Orðið
pródúser er notað hér þar sem upp-
tökustjórar í hip-hop og r&b geiran-
um semja yfirleitt taktana og gera
mun meira en bara að stjórna upp-
tökum; þeir taka virkan þátt í laga-
smíðunum sjálfum.
Fyrsti Timbaland-smellurinn var
lagið Pony með Ginuwine, en lög
með Aaliyah, Jay-Z og Missy Elliott
fylgdu í kjölfarið. Það sem einkenn-
ir þau lög sem Timbaland pródús-
erar eru óvenjulega samsettir takt-
ar og tilraunir með framandi hljóð
og hljóðfæri. Best heyrir maður
þetta kannski á plötum mennta-
skólasystur hans, Missy Elliott. Lög
eins og Get Yr Freak On, Work It og
Gossip Folks eru góð dæmi. Þau eru
nú hætt að vinna saman. Síðustu ár
hefur Timbaland unnið mikið með
Justin Timberlake og er eiginlega
maðurinn á bak við hans velgengni.
Eins og áður segir er Shock Value
önnur plata Timbaland, en hann
hefur reyndar gert þrjár plötur í
samstarfi við rapparann Magoo.
Það er greinilegt á plötunni að
Timbaland langar inn í sviðsljós
poppstjörnunnar.
Á meðal þeirra sem koma við
sögu á plötunni eru Justin Timber-
lake, Nelly Furtado, 50 Cent, Elton
John, Fallout Boy og sænsku rokk-
ararnir í The Hives, en bandarískar
hiphop-stjörnur virðast hafa óbil-
andi trú á þeim.
Svo verður gaman að heyra Timb-
aland lögin á Volta, en Timbaland
segir í nýlegu viðtali að samstarfið
við Björk muni sanna það að hann
geti unnið með hverjum sem er og
sé sá besti: „Hún er eins og ég. Nátt-
úruundur ...“
Niðurhal tónlistar á netinu er gamalt og nýtt deilumál sem er líklegast
ekki á leiðinni neitt í burtu. Frá upphafi hef ég verið fylgjandi þessari
bylgju og tel hana vera af hinu góða. Netið hefur reynst sem ótæmandi
safn tónlistarinnar sem er ógjörningur að skoða til hlítar. Oftast hef
ég hagað málum þannig að ég niðurhel nokkru magni af stökum lögum
með tónlistarmönnum og síðan, ef mér líst vel á varninginn, þá kaupi
ég plötuna, hvort sem er á netinu eða úti í búð. Þetta hefur gert það að
verkum að ég kaupi mun meira af plötum en líka miklu meira af góðum
plötum þar sem kaupin eru betur ígrunduð en áður og maður þarf ekki
að treysta á umsagnir annarra og útlit plötunnar.
Að undanförnu finnst mér samt niðurhalsbylgjan vera að taka á sig
nýja mynd. Fyrir aðeins örfáum misserum síðan þóttu það stórtíðindi
þegar plötur láku á netið fyrir formlega útgáfu þeirra. Í dag er hægt
að finna nær allar plötur á netinu, oft nokkrum mánuðum áður en þær
koma út. Besta dæmið er líklegast nýjasta plata Arcade Fire, Neon
Bible. Platan hafði lekið inn á netið í desember en þó kom platan ekki
út fyrr en í byrjun mars. Enginn poppspekúlant var því maður með
mönnum nema hann hafði heyrt nýju Arcade Fire plötuna strax í jan-
úar, febrúar. Ég var einn af þeim og fannst ekki mikið til plötunnar
koma enda ekki skrítið, platan hafði lekið í svo ömurlegum gæðum að
þegar ég loksins fékk alvöru eintak af plötunni blasti við mér algjör-
lega allt önnur plata, með hljóðheim sem ég hélt að ætlaði aldrei að
enda. Svipaða sögu má reyndar líka segja af síðustu plötu The Shins,
Bloc Party, Modest Mouse og fleirum.
Nú spyr ég, af hverju þarf maður endilega að vera búinn að heyra
þessar plötur löngu áður en þær koma út, oft í slökum gæðum? Af
hverju ekki að bíða eftir því að þær komi út, fara hugfanginn heim með
alvöru eintak og njóta þess að heyra plötuna í fyrsta skiptið? Persón-
lega er ég reyndar mjög mikið fyrir að eiga alvöru eintak og ég einfald-
lega þoli ekki að eiga plötur eingöngu á stafrænu formi, sérstaklega
þegar þær eru góðar. Tónlist er jú samt sem áður alltaf tónlist en mér
finnst hún þurfi að vera hlutlæg líka. Að tónlist sé hlutlæg er líka ein
af stærstu ástæðum fyrir tilvist hennar, peningalega séð allavega. Ég
er því hættur að niðurhala plötum löngu fyrir útgáfu þeirra (að mestu
leyti). Ég bíð bara spenntur í staðinn og nýt annarrar tónlistar á meðan.
Þarf maður að vera fyrstur?
Benni Hemm Hemm er á svo-
kölluðum „heitum lista“ í nýj-
asta tölublaði bandaríska tón-
listartímaritsins Rolling Stone.
Þar segir: „Ef Sufjan Stevens
myndi flytja til Íslands og
ganga til liðs við Sigur Rós
myndi sú ofursveit gefa út
álíka tignarlegt og léttleikandi
popp og þetta. Rokkaðu áfram,
Benedikt H. Hermannsson og
líka þið hinir ellefu Skandin-
avíubúar.“
Forsprakkinn Benedikt Her-
mann Hermannsson er mjög
ánægður með þessi viðbrögð. Stefnir hann
á tónleikaferð um Bandaríkin í sumar, en
platan Kajak kemur út þar í landi í maí. „Ég
er spenntur að sjá hvernig þeir fíla þetta
því platan er ekki komin út þar í landi,“
segir Benni. Hann segir að
nýafstaðin tónleikaferð um
Evrópu hafi gengið vonum
framar. „Hún gekk frábær-
lega vel og vonandi náum
við síðan að fara til Banda-
ríkjanna í sumar. Það verður
spennandi að sjá hvað ger-
ist þar.“ Bætir hann því við
að hugsanlega verði einnig
farið í tónleikaferðir til Eng-
lands og Svíþjóðar.
Í veftímaritinu Drowned
in Sound fá Benni og félag-
ar 9 af 10 fyrir tónleika sína
í Paradiso í Amsterdam, sem voru liður í
tónleikaferðinni um Evrópu. „Falleg tón-
list sem þandi hverja einustu taug út í ystu
æsar. Ég var hreinlega í sjokki eftir tónleik-
ana,“ sagði í dómnum.
Á heitum lista