Fréttablaðið - 05.04.2007, Page 17

Fréttablaðið - 05.04.2007, Page 17
Frjálslyndi flokkurinn metur mikils vinnuframlag erlends fólks við uppbyggingastarf í íslensku samfélagi. En Frjálslyndi flokkurinn vill að mun ákveðnari og meiri stjórn verði höfð með því hve margir innflytjendur koma til landsins á hverjum tíma. Afar mikilvægt er að nýir borgarar aðlagist samfélaginu sem best og kynnist menningu þjóðarinnar og tungu. Frjálslyndi flokkurinn mun beita sér fyrir því að undanþága sú, sem samið var um í EES- samningnum, varðandi innflutning verkafólks frá aðildalöndum EES, verði nýtt og honum stjórnað – öllum til góðs. Kjóstu F ! forysta fyrir íslenska þjóð www.xf.is VILJUM VIÐ SITJA UPPI MEÐ SÖMU VANDAMÁL OG AÐRAR ÞJÓÐIR SEM HAFA LEYFT ÓHINDRAÐAN INNFLUTNING ERLENDS VINNUAFLS? • Hver verða kaup og kjör íslenskra iðnaðar- manna og byggingaverkamanna þegar um hægist á vinnumarkaði? Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni var meðaltalshækkun launa meðal iðnaðarmanna 8,8% árið 2006, en 10,3% hjá öðrum stéttum. Þetta er eina atvinnugreinin þar sem verulegt frávik er frá meðaltalinu og einnig sú atvinnugrein þar sem hlutfall erlendra starfsmanna er hæst. • Erum við að leggja of mikið á velferðar- kerfið með ótakmörkuðum innflutningi erlends vinnuafls á skömmum tíma? Hætta er á því að álagið á ýmsa innviði íslenska velferðarkerfisins verði of mikið í því ástandi sem nú blasir við okkur. Að auki má nefna að nú búa hátt í þrettán hundruð manns í atvinnuhúsnæði sem er óíbúðarhæft og ósamþykkt sem slíkt. Þessu fólki ber okkur skylda til að búa viðunandi skilyrði á öllum sviðum. • Hlutfallslega eru margfalt fleiri erlendir ríkisborgarar starfandi á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum Árið 2006 voru erlendir ríkisborgarar um 9% af vinnumarkaðnum hér á landi. Um 11.000 erlendir starfsmenn komu til Íslands á síðasta ári. Sambærilegar tölur fyrir hin Norðurlöndin sýna að straumurinn hingað hefur verið gífurlegur. Hlutfall erlendra ríkisborgara á vinnumarkaði árið 2006: Ísland 9% | Finnland 2% | Danmörk 4% | Svíþjóð 5% | Noregur 4,5% • Geta okkar til að kenna öllu því fólki íslensku, sem flyst til landsins, er takmörkuð Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt fram skýrar tillögur um hvernig standa skuli að stóraukinni íslensku- og samfélagsfræðikennslu fyrir það fólk sem hingað kemur til starfa. Eins og ástandið er í dag erum við ekki í stakk búin til að uppfylla þá sjálfsögðu kröfu að erlendir ríkisborgarar, sem hingað koma til starfa, sæki grunnnám í íslensku.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.