Fréttablaðið - 05.04.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 05.04.2007, Síða 22
Í slenskt launafólk eyðir að meðaltali rúmlega 13 pró- sentum ráðstöfunartekna sinna í að kaupa og reka húsnæði. Hlutfallið hefur hækkað á undanförnum árum, en það var nokkuð stöðugt á bilinu 11 til 12 prósent af ráð- stöfunartekjum þar til á síðustu árum. Í kjölfar breytinga á húsnæðis- lánakerfinu árið 2004 hefur stað- an á markaðnum tekið gríðar- legum breytingum. Það hlutfall tekna sem fólk eyðir í húsnæði hefur hækkað, en það segir bara hálfa söguna. Erfiðleikar þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð, eru jafnvel að reyna að komast út af leigumarkaðinum, hafa vaxið verulega, þrátt fyrir að hlutfall lána Íbúðalánasjóðs hafi verið hækkað og bankarnir hafi komið á markaðinn. Ástæðan ætti ekki að vefjast fyrir þeim sem velta fyrir sér framboði og eftirspurn. Fram- boð á lánsfé jókst verulega en framboðið á íbúðarhúsnæði jókst ekki í réttu hlutfalli. Húsnæðis- verð hefur því rokið upp undan- farin ár, sér í lagi á höfuðborgar- svæðinu. Hækkunin á húsnæðisverði er augljós þegar meðalverð kaup- samninga undanfarin ár er skoð- að. Fyrir 10 árum, árið 1997, hljóð- aði meðalsamningur upp á tæp- lega 7,9 milljónir króna. Verðið hefur hækkað fremur reglulega ár frá ári, og fram til ársins 2004 var hækkunin á bilinu 0,5 til 1,5 milljónir króna milli ára. Árið 2004 kom stökk, meðal- kaupsamningurinn hækkaði um tvær milljónir frá árinu 2003, og var kominn upp í 15,8 milljónir króna, tvöfalt hærri en árið 1997. Hækkunin var svo enn meiri árið á eftir, meðalkaupsamningur árið 2005 hljóðaði upp á 19,7 milljón- ir króna, og hafði hækkað um 3,9 milljónir frá árinu 2004. Með því að skoða upplýsingar frá ríkisskattstjóra um framtelj- endur síðastliðin 10 ár má leggja gróft mat á ráðstöfunartekjur einstaklinga, þær tekjur sem fólk á eftir í veskinu eftir að skattar og gjöld hafa verið innt af hendi. Þegar tölurnar eru skoðað- ar kemur í ljós að ráðstöfunar- tekjurnar fyrir tíu árum voru að meðaltali um 104 þúsund krónur á mánuði. Meðalskattgreiðandinn átti sem sagt 104 þúsund krónur í veskinu til að greiða allan kostn- að sem til fellur við að reka sjálf- an sig, fjölskyldu, bíl og eignast þak yfir höfuðið. Segja má að mánaðarlegar ráðstöfunartekjur skattgreið- enda hafi að meðaltali aukist um í kringum 12-15 þúsund krónur á mánuði á milli ára síðastliðinn áratug, mismikið þó. Árið 2006 kom svo verulegur kippur, og ráð- stöfunartekjurnar jukust um tæp- lega 34 þúsund krónur frá árinu 2005, og meðalmaðurinn átti um 244 þúsund eftir af laununum eftir skatta og gjöld. Þegar útgjöld vegna húsnæðis eru skoðuð sem hlutfall af ráð- stöfunartekjum síðastliðin 10 ár sést að útgjöldin sem fylgja því að kaupa og eiga eigið húsnæði haldast því sem næst í hendur við ráðstöfunartekjur. Það er ekki hlaupið að því að reikna út meðalkostnað við að kaupa húsnæði og borga af lánum. Hagstofa Íslands hefur reiknað þennan kostnað út og kallar reiknaða húsaleigu. Reikn- uð húsaleiga felur í sér greiðslur vegna eigin húsnæðis sem væru hluti af leiguverði væri viðkom- andi á leigumarkaði. Hægt er að bera þessa reikn- uðu húsaleigu saman við ráðstöf- unartekjur til að fá út hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöf- unartekjum meðal skattgreið- andans. Eins og með öll meðal- töl verður þó að gæta þess að það geta verið miklar sveiflur milli einstaklinga, sem ekki sést í svo einföldum samanburði. Hlutfall húsnæðiskostnaðar af ráðstöfunartekjum á árunum frá 1997 til 2000 var stöðugt um 11,5 prósent, en eftir það lækk- aði hlutfallið nokkuð árið 2001 og 2002. Þannig greiddi dæmigerð- ur íslenskur skattgreiðandi lægra hlutfall en áður af sínum tekjum í húsnæði, eða í kringum 11 pró- sent. Árið 2003 hækkaði hlutfall- ið í 11,7 prósent. Greinileg aukning er á því hvað meðalmaðurinn eyddi í að koma sér upp og reka húsnæði árið 2005, árið eftir að breytingar voru gerðar á íbúðalánakerfinu. Hlutfallið af ráðstöfunartekj- um sem runnu í húsnæðismál fór þá upp í 13,4 prósent. Hlutfallið var svipað á síðasta ári, 13,3 pró- sent, 1,8 prósentustigum hærra en fyrir 10 árum síðan. Þótt þessar tölur verði að skoða með fyrirvara um þær miklu sveiflur sem eru á því hvað mis- munandi einstaklingar greiða fyrir húsnæði, má þó draga af þeim nokkrar ályktanir. Þó ráð- stöfunartekjur hafi aukist veru- lega undanfarinn áratug hefur sú aukning ekki haldist í hendur við þá gríðarlegu hækkun sem hefur orðið á húsnæðisverði frá árinu 2004. Meðalmaðurinn eyðir því hærra hlutfalli af því sem hann aflar í húsnæði nú en fyrir nokkr- um árum. Tekjur úr takti við húsnæðishækkun Flestir sem eru að reyna að kaupa íbúð eða eru að greiða af íbúð kannast við hækkun á húsnæðisverði undanfarin ár. Brjánn Jónasson kynnti sér hversu stór hluti ráðstöfunartekna almennings hefur farið í að greiða af húsnæði síðastliðin tíu ár. Á áratug hefur hlutfall ráðstöfunartekna sem renna í hús- næðismál aukist úr 11,5 prósentum í 13,3 prósent.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.