Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 38
BLS. 8 | sirkus | 5. APRÍL 2007 Þ að er ágætt að vera búin að brenna sig og geta þá breytt um stefnu,“ segir Eva María Jónsdóttir fjölmiðlakona og þriggja barna móðir sem er á leið í foreldra- orlof í sumar. Samkvæmt lögum eiga allir foreldrar rétt á 13. vikna ólaunuðu fríi áður en börnin ná 8 ára aldri og þar sem elsta dóttir Evu verður 8 ára á árinu er ekki seinna vænna fyrir hana en að nýta orlofið. Yngsta dóttirin er 18 mánaða og Eva segist vilja eyða eins miklum tíma með dætrunum og hún geti. Þegar hún hafi verið með eldri stelpurnar litlar hafi hún tekið vinnuna fram yfir fjölskylduna á löngum tímabilum. Nú verði hins vegar breyting á. „Ég vissi ekki um þetta foreldraorlof fyrr en ég fór í fæðingarorlof með yngstu stelpuna og fór að skoða lögin. Mér finnst þetta frábært og ætla að njóta sumarsins með dætrunum. Á sumrin eru flestir foreldrar að basla við að púsla öllu saman og koma börnunum í gæslu og á námskeið. Nú verða þær heima með mér nema þær óski þess sérstaklega að fara á námskeið,“ segir Eva og bætir við að börnum leiðist ekki nóg. „Dagurinn er byggður upp af prógrömmum svo þau hafa alltaf eitthvað fyrir stafni. Þau kunna ekki að gera ekki neitt og því held ég að þær hafi gott af svona tímabili þar sem þær verða að finna sér eitthvað úr engu og láta hugmyndaflugið ráða.“ Tvö ár urðu að 14 Eva María hefur starfað við fjölmiðla frá árinu 1993. Þá hóf hún starf sem skrifta hjá Ríkissjónvarpinu og hélt hún hefði landað draumastarfinu. „Ég ætlaði mér að vera þarna í tvö ár og halda svo áfram í háskólan- um en einhvern veginn fór þetta svona. Núna er ég að súpa seyðið af því,“ segir hún hlæjandi. „Mér finnst gott að hafa ákveðinn sveigjan- leika og leyfa hlutunum að gerast án þess að þvinga þá til þess. Á þessum fjórtán árum hef ég tekið þrjú eins árs fæðingarorlof sem hefur verið afar endurmenntandi auk þess sem ég hef prófað að vinna í útvarpi og á Stöð 2, svo þetta hefur verið viðburðaríkur tími.“ Í dag stendur Eva vaktina í Kastljósi á sunnudögum og mun gera það út maímán- uð. Í þættinum hefur hún sett sér það markmið að bæði karlar og konur hafi þar rödd og hún segir hlutfallið milli kvenkyns og karlkyns gesta nákvæmlega 50/50 og að það sé alveg jafn auðvelt að fá konurnar í viðtöl eins og karlana. „Í kjölfarið erum við að tala um hluti sem ekki er mikil hefð að tala um í sjónvarpi. Mér finnst gamaldags að hugsa um málefni fjölskyldunnar sem eitthvað einkamál eða feimnismál hvers og eins. Fjölskylda er eitthvað sem við eigum öll sameiginlegt og mér finnst við eiga að ræða hana og stöðu hennar eins og atvinnulífið og aðra merkilega hluti,“ segir Eva María og bætir við að hún ræði þau mál jafnt við karla sem konur. Forgangsröðunin er skýr Eva segist hafa gaman af þessari gerð dagskrárgerðar en hún njóti þess einnig að búa til framleitt efni og heildstæðari verk. „Reynslan hefur hins vegar sýnt mér að það er meiri skuldbinding og þótt það sé skemmtilegra á köflum, hentar svoleiðis vinna mér engan veginn núna. Ég kalla það ekki aftur yfir fjölskylduna. Þetta gengur upp svona. Við erum með þrjá litla þurfalinga á heimilinu og erum bæði útivinnandi hjónin, en með því að stilla atvinnunni í hóf er maður að mestu laus við þessa hræðilegu togstreitu og stöðuga samviskubitið. Forgangsröðunin er skýr, börnin koma fyrst og svo vinnan,“ segir Eva María brosandi. „Ég held að ef við ræðum þessi mál þá myndu flestir segjast setja fjölskylduna í forgang en samkvæmt rannsóknum þá sýnir klukkustundafjöldinn allt aðra niðurstöðu. Það er erfitt að breyta þessari þróun því við lifum í menningarsamfélagi sem upphefur fólk sem er duglegt að vinna og öflugt atvinnulíf er okkur öllum mikið kappsmál. En orð eru til alls fyrst og með því að velta þessu fyrir sér tekur maður næsta skref. Eru hlutirnir eins og ég vil hafa þá? Ef ekki, hvað get ég gert? Þannig breytist samfélagið smám saman.“ Tíminn er lífsgæði eins og peningar Eva segir lífsgæðin ekkert endilega minnka með minni vinnu. „Að einhverju leyti verður maður að draga saman seglin en það kostar líka peninga að vinna mikið. Tilbúinn matur sem skemmist í ísskápn- um, heimilishjálpin og öll þau þjónusta sem við kaupum því við höfum ekki tíma til að sinna málunum kostar sitt. Ef við vinnum minna getum við nýtt tímann og fjármunina öðruvísi. Tíminn er lífsgæði eins og peningar,“ segir Eva María og bætir við að sjálfri sé henni sama þótt hún eigi ekki æðisgenginn bíl eða flatt og flott sjónvarp. „Kannski er ég eitthvað fötluð í þessum lífsgæðamálum. Sjónvarp- ið okkar datt í gólfið og nú sjást bleikir og bláir blettir á skjánum. Við sjáum samt myndina þótt gæðin séu ekki þau bestu,“ segir hún en viðurkennir að þekkja lífsgæðakapphlaupið af eigin reynslu. „Ég stóð mig að því að fylgjast með nágrannanum bera nýtt flott grill heim til sín og fann innra með mér gríðarlega þörf fyrir að fá alveg eins grill. Ég hrökk upp af þessum hugsunum og áttaði mig á hvað er auðvelt að dansa með í munalostanum. Síðan hef ég bara átt einnota grill.“ Lúxusbíll eða lúxus fjölskyldulíf Aðspurð segir hún ekki skynsamlegt að segja fólki hvernig það eigi að lifa sínu lífi en það sé um að gera að hvetja fólk til að velta því fyrir sér hvernig það vilji hafa hlutina. „Það eina sem þarf er að vera heiðarlegur við sjálfan sig, setja fremst það sem maður metur mest. Í manninum er ákveðið hjarðeðli, við spáum ekki mikið ótilneydd í hlutina heldur rúllum áfram af gömlum vana, það þekki ég. Það er um að gera að týna sér ekki í efnishyggjunni og athuga hvort hugmyndir okkar um lífsgæði fari saman við líf okkar og hvað við getum gert til að öðlast þau lífsgæði sem við viljum. „Hvort viljum við lúxusbíl eða lúxus fjölskyldulíf ?“ spurði ein kona um daginn, og mér finnst það mjög góð spurning. Það eru áreiðanleg einhverjir sem velja bílinn og við verðum þá að umbera það. Ég hef hins vegar heyrt í svo mörgum sem eru í svipuðum pælingum og ég held að það sé ákveðin vitundarvakning á meðal minnar kynslóðar. Hingað til hefur aflaklónum og útrásarpostulum verið mest hampað, en það er hægt að gera það gott á svo margan annan hátt. Fyrirtækin sem við störfum hjá eru innt eftir fjölskyldustefnu og er þá ekki ágætt að fjölskyldurnar sjálfar hafi sína stefnu svo við vitum eftir hverju við erum að slægjast.“ Nýr spennandi kafli framundan Eva María hlakkar til foreldraorlofsins en auk þess að hugsa um dæturnar ætlar hún að skrifa lokaritgerðina sína í Háskóla Íslands svo það verður nóg að gera. „Ég hef engar áhyggur af því að hafa ekkert að gera. Þegar við hjónin tókum fæðingaror- lof fannst okkur foreldrahlutverkið og heimilisverkin full vinna fyrir okkur bæði,“ segir hún hlæjandi og bætir við að hún sé nú komin með konu sem hjálpi þeim með heimilisverkin. „Ég er með „aðkeypta ömmu“ sem er nýhætt að starfa sem tannlæknir og er þýsk að uppruna og án hennar gætum við þetta ekki. Ég er spennt að byrja á þessum nýja kafla. Það verður sumar í lofti, ég verð með þrjú börn á fæti, ritgerð í kollinum og þýskan tannlækni í seilingarfjarlægð. Maðurinn minn verður í tökum svo ég verð kvikmyndaekkja eins og það kallast svo þetta á eftir að verða eftirminnilegt sumar.“ indiana@frettabladid.is Setur börnin ofar starfsframanum EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR Eva tók vinnuna fram yfir fjölskylduna á löngu tímabili. Nú hefur hún lagar forgangsröðun- ina. SIRKUSMYND/VALLI SJÓNVARPSDROTTNINGIN EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR ER ÞRIGGJA BARNA MÓÐIR. EVA MARÍA ER Á LEIÐINNI Í 13 VIKNA ÓLAUN- AÐ FRÍ OG HLAKKAR TIL AÐ EYÐA SUMRINU MEÐ DÆTRUNUM. EF VIÐ VINNUM MINNA GETUM VIÐ NÝTT TÍMANN OG FJÁRMUNINA ÖÐRUVÍSI. TÍMINN ER LÍFSGÆÐI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.