Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 86
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Cheerios með mjólk, er það ekki íþróttanammi?“ „Við erum nokkrir saman sem höfum verið að hlaupa síðan í janúar,“ segir alþingismaðurinn Bjarni Benediktsson, sem ætlar að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkur- maraþoninu ásamt nokkrum félög- um sínum. „Það hefur gengið mis- jafnlega að koma sér virkilega vel í gang og ýmis meiðsl hafa verið að hrjá hópinn. Ég þurfti sjálfur að taka mér smá pásu en er allur að koma til,“ bætir Bjarni við. Reykjavíkurmaraþonið er hald- ið í ágúst en hlaupið sjálft er rúmir fjörutíu kílómetrar. Þetta þykir mikil þolraun og menn þurfa að vera í æði góðu formi til að kom- ast á leiðarenda. „Maður fer þetta á skapinu en ég ætla mér ekki að slá nein tímamet heldur bara kom- ast í markið,“ segir Bjarni. „Og ég vonast auðvitað til að komast meiðslalaus í gegnum undirbún- ingstímabilið.“ Bjarni segir að margir í hópn- um séu fyrrverandi handbolta- og knattspyrnukempur og því sé stutt í keppnisskapið. „Annars er þetta bara fín heilsurækt, að fara út að hlaupa með félögunum og ræða um leið um daginn og veginn,“ segir Bjarni, sem tekur þó skýrt fram að þeir félagar hlaupi ekki maraþon í hvert skipti sem þeir reima á sig hlaupaskóna. „Nei, þetta eru svona tíu til fimmtán kílómetrar hverju sinni og vonandi hleypur maður bara maraþon einu sinni,“ útskýr- ir Bjarni, sem var ekki í nokkrum vafa um að þetta ætti eftir að nýtast honum á fleiri stöðum en á hlaupa- brautinni. „Þetta verður fínt fyrir golfið í sumar enda aldrei gott að vera móður og másandi yfir bolt- anum áður en maður slær,“ segir Bjarni. Bjarni Ben ætlar að hlaupa maraþon „Hvað er lax að flækjast í Minni- vallalæk í Landsveit? Mér fannst hann reyndar laxlegur. Urrrlax,“ segir Sigurður Sveinsson, hand- boltakappi með meiru. Fréttablaðið greindi skilmerki- lega frá því að Sigurður hefði sett í býsna stóran fisk í Minnivallalæk, sem er frægur urriðaveiðistaður. Fimmtán punda bolta. En þegar menn til þess bærir fóru að rýna í myndina sem birtist af Sigga hróð- ugum með risaurriðann sinn, sem hann reyndar hélt fram að væri örvhentur, sáu menn að þarna var kominn lax en ekki urriði. „Já, veiðigeirinn segir að þetta sé vel alinn niðurgöngulax eða hoplax. Vel í holdum. Þegar ég fór að rýna betur í myndina kom þetta í ljós. Ég vissi bara ekki að það væri lax í Minnivallalæk. Hvað þá urrlax,“ segir Siggi spurð- ur hvernig það megi vera að jafn reyndur veiðimaður og hann hafi ruglað saman laxi og urriða. „Já, já, menn eru að hlæja að mér. Ég líka. Eins gott að hann fór ekki á platta þessi. En yfirleitt er lax orðinn bjartur á vorin en þessi var dökkur. Mjög urriðalegur. En ég er niðurbrotinn maður,“ segir Siggi. Og enn stendur það þá að stærsti urriðinn sem handboltakappinn snjalli hefur dregið er níu pund en ekki fimmtán og sá silungur var veiddur í Þingvallavatni. Örvhenti urriðinn reyndist lax „Ég hélt fyrst að það væri einhver að stríða mér þegar það var hringt í mig og spurt hvort ég vildi spila með Björk og fara í tónleikaferð með henni þannig að ég afþakkaði pent. Svo hugsaði ég smá um þetta og fattaði hvað ég hefði gert, hringdi til baka og endaði hér.” segir Valdís Þorkelsdóttir trompetleikari. Valdís er ein tíu stúlkna sem skipa blás- arasveit Bjarkar Guðmundsdóttur á komandi tónleikaferð hennar um heiminn. Eins og kunnugt er gefur Björk út sjöttu sólóplötu sína, Volta, sjöunda maí næstkomandi. Bergrún Snæbjörnsdóttir sem spilar á franskt horn hafði svipaða sögu að segja. „Ég var búin að týna símanum mínum og vera símalaus í viku og svo svona tíu mínútum eftir að ég kveikti á nýja símanum var hringt í mig og mér boðið að koma í prufu, það munaði rosa litlu að ég hefði misst af þessu.“ Bergrún og Valdís eru hluti tíu stúlkna blásarasveitar sem mun spila með Björk á tónleikaferðalagi hennar um heiminn til að fylgja eftir nýjustu breiðskífu hennar, Volta. Stelpurnar eru á aldrinum sautján til tuttugu og eins árs og voru vald- ar úr góðum hópi umsækjenda eftir viðtöl og prufur með Björk. Eftir prufurnar voru þær svo fengnar til að spila í tveimur af lögunum sem verða á plötunni og eru búnar að standa í ströngum æfingum síðan. Eins og allt liggur fyrir í dag lítur út fyrir að stelpurnar verði á far- aldsfæti næstu átján mánuði. „Þetta átti fyrst að vera ár en er alltaf að lengjast, sem er bara betra. Þetta er samt svolítið óraunveru- legt en náttúrulega rosalegt tæki- færi fyrir okkur,“ segja þær. „Svo verður það ekkert leiðinlegt að vera á þessum tónlistarhátíðum í sumar.“ Meðal þeirra staða sem þær munu spila á eru Hróarskelda í Dan- mörku, Glastonbury í Bretlandi og Coachella í Bandaríkjunum. Blásarasveitin samanstendur af þremur trompetum, þremur frönsk- um hornum, þremur básúnum og einni túbu. Báðar hafa stelpurn- ar lært á hljóðfæri frá því að þær voru ungar og þóttu á tímabili hálf kjánalegar að vera heima að æfa sig á hljóðfæri þegar þær hefðu getað verið úti í sjoppu að reykja eða eitt- hvað á þá lund „Maður er búinn að puðra í þetta frá því að maður var lítill og allir að gera grín að okkur og svo allt í einu erum við orðnar svalar,“ segja þær og hlæja. „Það var bara alltaf eitthvað sem togaði í mann að halda áfram.“ Aðspurðar um hvernig þeim lítist á nýju lögin sagði Bergrún: „Þetta er frábær tónlist, nýja platan er sjúk, alveg ótrúlega flott. Þegar ég kem heim eftir æfingar langar mig svo mikið að hlusta á sum lögin en ég get það ekki, því við erum auðvit- að ekki með diskinn.“ Valdís heldur áfram og segir: „Þetta er eitthvað alveg nýtt. Björk er náttúrulega alltaf langt á undan og maður held- ur að þetta hljóti að fara að hætta, hún geti ekki verið svona mikið á undan, en henni tekst það samt.“ Fyrstu tónleikarnir þar sem Björk mun flytja efni af Volta verða í Laugardalshöll núna á mánudag- inn. FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.