Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.05.2007, Qupperneq 23

Fréttablaðið - 21.05.2007, Qupperneq 23
fasteignir Mest lesna fasteignablað landsins Hringdu í 550 5600 ef blaðið berst ekki - mest lesið 21. MAÍ 2007 Einstakt timburhús á Vatnsleysuströnd þar sem gert er ráð fyrir heitum potti í turni er til sölu hjá Remax Center. Að utan líkist húsið ævintýralegum kastala en það er hannað af núverandi eiganda. Húsið er heilsárshús á tveimur hæðum sem stendur á sjávarlóð þar sem útsýni er einstakt. Aftan við húsið sést til Keilis en til Snæfellsjökuls að framanverðu. Húsið er smíðað úr fyrsta flokks timbri frá Lettlandi og gluggar eru frá Kanada. Komið er inn á neðri hæð í forstofu. Þar er gert ráð fyrir stofu, borðstofu, eldhúsi, skála, búri, þvottahúsi og geymslu. Á efri hæð er gert ráð fyrir tveimur svefnherbergjum, fataherbergi, skála, vinnustofu og baðherbergi. Aðalhurð, svalahurð og þvottahús eru úr mahóní. Húsið er timburhús á steinsteyptri plötu. Eigninni fylgir 1.500 fermetra ræktuð eignarlóð. Gert er ráð fyrir hita í gólfi á neðri hæð en ofnar eru á þeirri efri. Enn fremur er gert ráð fyrir heitum potti í öðrum turninum og arni í stofu á neðri hæð. Eignin skilast fullfrágengin að utan og fokheld að innan. Ævintýralegt hús við sjóinn Eign sem er engri lík á sjávarlóð er til sölu hjá Remax Center.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.