Fréttablaðið - 21.05.2007, Page 39
Tónleikar bandarísku rokkaranna
í hljómsveitinni Incubus á Ís-
landi sem haldnir voru í vetur eru
fyrirferðarmiklir í myndbandi
nýjustu smáskífu sveitarinnar,
Love Hurts. Myndbandið, sem er
að miklu leyti gert af hljómsveitar-
meðlimunum sjálfum, sýnir
myndskeið frá uppákomum í tón-
leikaferðalagi þeirra um Evr-
ópu og er meðal annars sýnt frá
heimsókn hljómsveitarmeðlima í
Bláa lónið. Þar leika þeir sér við
að kaffæra hver annan og maka
botnleðju lónsins á líkamann. Um
er að ræða fína auglýsingu fyrir
Bláa lónið, en lagið hefur meðal
annars náð töluverðum vinsæld-
um í Þýskalandi þrátt fyrir að
Bandaríkjamenn hafi ekki kveikt
á því enn sem komið er.
Íslensku tónleikagestirnir fá
einnig að láta ljós sitt skína í
myndbandinu þar sem nokkur
myndbrot eru frá tónleikunum
sjálfum í Laugardalshöllinni.
Þrátt fyrir að Incubus sé einna
þekktust fyrir rokk í þyngra
kantinum er Love Hurts róleg
ballaða og er lagið að finna á nýj-
ustu skífu sveitarinnar, Light
Grenades.
Íslandsferð Incubus í
nýju myndbandi
Leikarinn Gerard Butler, sem fór
með aðalhlutverkið í hasarmynd-
inni 300, er á bólakafi í verkefn-
um um þessar mundir. Hann hefur
tekið að sér hlutverk í Capone Ris-
ing, sem á að gerast á undan The
Untouchables sem kom út fyrir
tuttugu árum. Leikstjóri verður
Brian De Palma, sem einnig stýrði
The Untouchables.
Nicolas Cage leikur glæpafor-
ingjann Al Capone, sem Robert De
Niro lék í fyrri myndinni. Butler
mun leika Jimmy Malone, sem
Sean Connery túlkaði á sínum
tíma og hlaut Óskar fyrir.
Butler ætlar einnig að leika
í framtíðartryllinum Game þar
sem hugarstjórnun ræður ríkjum
í heiminum. Auk þess mun hann
leika á móti Jodie Foster í ævin-
týramyndinni Nim‘s Island sem
er byggð á samnefndri barnabók.
Butler sést næst á hvíta tjaldinu í
P.S. I Love You þar sem mótleik-
kona hans er Hilary Swank.
Butler á bólakafi
Safnplatan Óskalög sjómanna
kemur út hinn 29. maí í tilefni sjó-
mannadagsins 3. júní. Platan, sem
er tvöföld, inniheldur fjörutíu sígild
lög um sjómenn og sjómennsku.
Á safnplötunni er að finna lög
frá árinu 1953 til dagsins í dag.
Rjóminn af lögunum er með flytj-
endum sem gerðu garðinn fræg-
an á árum áður og eru öll lögin
orðin sígild í dag. Mörg af þessum
lögum hafa ekki áður komið út á
geislaplötu eða hafa verið ófaáan-
leg í mörg ár. Á meðal laga á safn-
plötunni má nefna Ship-o-hoj, Ó,
María mig langar heim, Simbi sjó-
maður, Á sjó, Kátir voru karlar og
Gvendur á Eyrinni.
Sígild lög um sjómenn
Rokkarinn Ozzy Osbourne verð-
ur í júlí fyrstur allra til að fá nafn
sitt á frægðarstétt Birmingham-
borgar í Eng-
landi. Ozzy, sem
ólst upp í út-
hverfinu Aston
í Birmingham,
verður við-
staddur athöfn-
ina hinn 6. júlí.
Ozzy fékk
nafnið sitt á
frægðarstétt
Hollywood
árið 2002 en
segir hina nýju frægðarstétt mun
mikilvægari. „Nafnið mitt er til
á frægðarstétt Hollywood en að
eiga stjörnu í heimaborg minni
skiptir mig miklu meira máli,“
sagði Ozzy.
Skipuleggjandi athafnarinnar
í Birmingham er hæstánægður
með komu Ozzy. „Ozzy er af flest-
um talinn frægasta manneskjan
frá Birmingham.“
Osbourne á
frægðarstétt
TÓPAS TIL FÓLKSINS
TÓPAS ER FRAMTÍÐIN!