Fréttablaðið - 21.05.2007, Side 46

Fréttablaðið - 21.05.2007, Side 46
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Gó› rá› og gagnlegar uppl‡singar um heita vatni› www.stillumhitann.is „Ég hlusta bara á allt sem Bylgjan býður upp á. Ég er mest fyrir að hlusta á eitthvað létt og gamalt, sjómannalög og svona. Mér finnst Ívar alltaf rosalega góður og þremenn- ingarnir í Reykjavík síðdegis eru alveg ómissandi.“ Jón Gnarr er nú á góðri leið með að leggja lokahönd á sjálfstætt framhald bókarinnar Indjáninn og hyggst hann gera upp pönkið í sínu lífi í næstu bók en hún verður ögn fræðilegri en Indjáninn. „Pönkið var mjög merkilegt tímabil í lífi mínu og reyndar sögu íslenska lýð- veldisins,“ útskýrir Jón og segir að sér finnist allt sem hafi verið skrifað um pönkið hingað til hafa verið séð frá sjónarhóli þess sem stóð fyrir utan. „En ég er að skrifa um þetta innan frá,“ bætir Jón við og segist ætla að beina kastljósinu að anarkismanum og lífsstílnum sem einkenndi pönkarana. „Fólk hefur alltaf séð fyrir sér tónlist og tísku en fyrir mér var þetta fyrst og fremst heimspeki. Ég var til að mynda mjög mikið á móti þess- ari markaðsvæddu pönktísku,“ út- skýrir hann. Jón hefur greinilega lagst í miklar pælingar fyrir bókina sem verður skrifuð í minningarstíl en ekki sem upplifun eins og Ind- jáninn. „Á árunum 1977 til 1981 var mikill níhilismi í gangi. Kalda stríðið var í algleymingi og kjarn- orkustyrjöld virtist einhvern veg- inn á næsta leiti og það lá í loftinu þetta framtíðarleysi,“ segir Jón og inn í það hafi pönkið komið. „Fólk án hugsanlegrar framtíðar,“ bætir hann við. Jón var einn af fyrstu Hlemmur- unum eins og þeir voru kallaðir en það voru krakkar sem létu daginn líða á strætisvagnabiðstöðinni við Hlemm. Jón segir að þau hafi orðið fyrir barðinu á miklum fordómum, sumir hafi talið þau vera glæpa- gengi á meðan aðrir voru nokk- uð vissir um að þau notuðu eitur- lyf. „En við vorum bara krakk- ar á aldrinum 13-15 ára og vorum ekkert í slíku,“ segir Jón. „Flestir þeirra sem voru þarna voru mjög skapandi enda eru flestir starfandi listamenn í dag. Við settum upp leikrit og lékum okkur í Role Play,“ segir Jón sem býst við því að bókin verði klár fyrir haustið en það er Edda útgáfa sem gefur út. Rithöfundurinn hefur annars haft í nógu að snúast og er meðal annars nýbúinn að leika í sjón- varpsþáttaröðinni Næturvaktin en hún var að mestu leyti tekin upp að næturlagi. „Þetta var mjög skemmtilegt en um leið mjög erf- itt því ég veiktist alveg heiftar- lega þegar tökunum var lokið og var lagður inn á spítala sökum of- þreytu,“ segir Jón sem tekur þó skýrt fram að hann hafi ekki feng- ið þyrlu til að flytja sig, líkt og sumir. Kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur, Sveitabrúðkaupið, hefur verið seld ítalska dreifingaraðilan- um Fortissimo Films til dreifing- ar utan Norðurlandanna. Þetta kemur fram á kvikmynda- vef Screen Daily. Eins og fram kom í Fréttablaðinu á föstudaginn er Valdís stödd hér á landi við upptök- ur en hún hefur að undanförnu verið að leggja lokahönd á klipp- ingu myndanna Martian Child og Vantage Point þar sem Forest Whitaker, Matthew Fox og Sigourney Weaver eru í helstu hlut- verkum. Sveita- brúðkaupið er frumraun Valdís- ar í leikstjóra- stólnum en hún er margverðlaun- aður klippari. Til stendur að mynd- in verði til fyrir Cannes-hátíðina á næsta ári. Val- dís vildi hins vegar ekki tjá sig við Frétta- blaðið um málið þegar eftir því var leitað. Meðal framleiðenda myndarinnar er Jim Stark sem síðast gerði Factot- um með þeim Matt Dill- on og Marisu Tomei í aðalhlutverkum. Samkvæmt heim- ildum Fréttablaðs- ins verður tökulið- ið statt úti á Malar- rifi á Snæfellsnesi yfir helgina en Sveitabrúðkaupið segir frá hópi Íslendinga sem halda út á land til að vera viðstadd- ir brúðkaup. Á vef Screen Daily kemur fram að hinn virti leikhópur Vesturports verði í helstu hlut- verkum, þar á meðal þau Nína Dögg Filippusdóttir, Gísli Örn Garðarsson, Ingvar E. Sigurðsson og Björn Hlynur Haraldsson. Auk þeirra hefur Fréttablað- ið heimildir fyrir því að Rúnar Freyr Gísla- son og Ágústa Eva Er- lendsdóttir verði í öðrum stórum hlutverk- um. Sveitabrúðkaupið selt til Ítalíu Nýaldarverslunin Orkusteinninn var opnuð í Aðalstræti á Ísafirði á laugardag. Það eru mæðgurn- ar Ólöf Hildur Gísladóttir og Guð- björg K. Ólafsdóttir sem reka búð- ina. Þetta hefur verið langþráð- ur draumur hjá þeim mæðgum og létu þær hann loks verða að veru- leika. Verslunin mun selja nýald- arvörur frá öllum heimshornum og er ef til best lýst sem „norna- búð“, þeirri fyrstu á Vestfjörðum svo vitað sé til í háa herrans tíð. Enda voru Vestfirðir einn helsti vettvangur nornabrenna á fjór- tándu öld. Ólöf Hildur segist hins vegar ekkert óttast að hún endi á báli enda séum við öll nornir inn við beinið. „Þessi menning hefur alltaf verið til staðar og það eru allir nornir og seiðkarlar sem búa á Vestfjörðum. Þeir hafa þetta alla vega í sér,“ segir Ólöf og hlær. Ólöf segir þær mæðgur hafa fengið mikið af fyrirspurnum og fólk hafi verið verulega forvitið hvað færi þarna fram. Þær hafi hins vegar hulið alla glugga með dagblöðum til að halda spennunni sem mestri. Og það kom líka á daginn þegar verslunin var opnuð á laugardaginn því húsfyllir var og Ísfirðingar flykktust til að sjá hvað væri þarna á seyði. Ólöf segir það koma vel til greina að hefja einhvers konar samstarf við Galdrasafnið á Ströndum sem hefur um árabil verið vinsæll ferðamannastaður. „Við útilokum ekki neitt og sjáum bara til hvernig gengur hérna,“ segir Ólöf. Nornabúð opnuð á Ísafirði

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.