Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 1
Laugardagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í maí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
38%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
40%
70%
Forsvarsmenn Radis-
son SAS Hótel Sögu hafa fallist á
að greiða á fimmta tug einstakl-
inga upphæð sem nemur ferða-
kostnaði, kostnaði við gistingu og
vinnu vegna klámráðstefnu sem
þeir ætluðu að halda og sækja hér
á landi í mars síðastliðnum. Þeim
var meinuð vist af forsvarsmönnum
hótelsins en höfðu þá bókað gisti-
rými og kynnt ráðstefnuna.
Fréttatilkynning verður send út
þegar málið verður formlega frá-
gengið en eftir á að ganga frá
fáeinum lausum endum, að sögn
Árna Vilhjálmssonar, hæstaréttar-
lögmanns hjá Logos lögmanns-
stofu sem fer með málið fyrir
Hótel Sögu. „Það er alveg ljóst að í
þessu samkomulagi felst ekki
viðurkenning á skaðabótaskyldu,
heldur aðeins ákvörðun um að
leysa úr þessu máli með sáttar-
greiðslu,“ segir Árni. Ekki fæst
uppgefið hversu háa upphæð for-
svarsmenn hótelsins greiða en
samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins nemur hún nokkrum
milljónum króna.
Oddgeir Einarsson, lögmaður
hjá Opus lögmannsstofu sem
vinnur að málinu fyrir hönd
aðstandenda ráðstefnunnar, vildi
ekki tjá sig um samkomulagið.
Hrönn Greipsdóttir, hótelstýra á
Hótel Sögu, segist ánægð með að
málinu sé lokið en telur stjórn-
málamenn þurfa að fara varlega
við að beita áhrifum sínum gegn
fólki sem ætli að koma hingað til
lands í einkaerindum. „Það mynd-
aðist mikill þrýstingur á forsvars-
menn hótelsins að grípa inn í málið
enda var umræðan afar hávær
þegar þetta stóð sem hæst, og [Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson] borgar-
stjóri fór þar fremstur í flokki.
Það má spyrja sig að því hvort
stjórnmálamenn eigi að blanda sér
inn í svona umræðu með jafn
afgerandi hætti og ýmsir gerðu.“
Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna,
sem eru eigandi hótelsins, vill ekki
meina að í samkomulaginu felist
viðurkenning á því að samtökin
hafi í órétti komið í veg fyrir að
fólkið kæmi hingað sem ferða-
menn. „Eftir að hafa vegið málið
og metið varð það okkar niðurstaða
að farsælast væri að ljúka þessu
máli með sáttargreiðslu, utan
dómskerfisins. Það kostar tíma og
peninga að reka mál fyrir dóm-
stólum og því vorum við tilbúin að
fara þessa leið.“
Klámráðstefnufólk
fær milljónagreiðslu
Forsvarsmenn Hótel Sögu hafa fallist á að greiða á fimmta tug gesta sáttar-
greiðslu fyrir að slá af klámráðstefnu sem fram átti að fara á hótelinu. Ekki
viðurkenning á sekt, segir Sigurgeir Þorgeirsson hjá Bændasamtökunum.
Gestir veitingahúsa verða
ekki sektaðir fyrir að reykja á
börum eftir að reykingabann tók
gildi á veitingastöðum. Ef
starfsmenn kvarta undan
reykingum er eftirlitsmanneskja
frá heilbrigðiseftirlitinu send á
staðinn. Tíðkist reykingar á
veitingastaðnum fá eigendur
áminningu eða jafnvel sekt.
Bareigendum í Reykjavík
finnst harkalega að reykinga-
banni staðið á Íslandi. Athvarf
reykingamanna á Íslandi er
gangstéttin fyrir utan veitinga-
staðina og því hafa margir
bareigendur í Reykjavík brugðið
á það ráð að setja hitalampa í
portin við staðina.
„Yfirvöld gáfu eigendum
staðanna í raun ekkert svigrúm til
að skapa reykingasvæði utandyra
og flestir virðast vera upp á
gangstéttina komnir,“ útskýrir
Arnar Þór Gíslason, eigandi
Ólivers.
Vertar uggandi
um afleiðingar
Loftkastalinn hefur sennilega sjaldan hýst jafn stóra tísku-
samkomu og „made in iceland“ sem fór fram á fimmtudag.
Aðsókn innlendra og erlendra tískuspekúlanta var gífurleg.
HÖNNUNKraumandi hönnun í gamla Fógetahúsinu
INNLITVinnustofa í vélsmiðju
ANTÍKGlamúr gömlu daganna
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2007
hús&heimili
Karl Bjarni Guð-
mundsson, betur þekktur sem Kalli
Bjarni, sigurvegari fyrstu Idol-
Stjörnuleitarkeppninnar, var hand-
tekinn í Leifsstöð á fimmtudag með
tvö kíló af kókaíni í fórum sínum.
Hann var að koma frá Frankfurt í
Þýskalandi og fannst efnið í far-
angri hans. Hann var úrskurðaður í
þriggja vikna gæsluvarðhald í gær.
Kalli Bjarni náði þjóðarathygli
eftir sigur sinn í fyrstu Idol-keppn-
inni og naut í kjölfarið mikilla vin-
sælda fólks á öllum aldri. Hann
hefur komið fram opinberlega og
sagt frá erfiðleikum sínum vegna
neyslu áfengis og fíkniefna.
Embætti lögreglustjórans á
Suðurnesjum staðfestir að málið
hafi komið upp og að karlmaður
um þrítugt hafi verið úrskurðaður
í þriggja vikna gæsluvarðhald í
gær. Efnið fannst við hefðbundið
eftirlit Tollgæslunnar á Suður-
nesjum og rannsóknadeild lög-
regluembættisins á Suðurnesjum
annast rannsókn málsins, sem er á
frumstigi. Ekki fengust upplýs-
ingar um hvort fleiri einstaklingar
tengdust málinu en aðeins einn
hefur verið handtekinn.
Talið er að götuvirði tveggja
kílóa af kókaíni geti numið tugum
milljóna króna, eftir því hversu
hreint efnið er. Þetta er mesta
magn fíkniefna sem lagt hefur
verið hald á á Keflavíkurflugvelli
það sem af er þessu ári. Um átta-
tíu prósent af því kókaíni sem lagt
hefur verið hald á hér á landi síð-
ustu ár hafa verið tekin í Leifs-
stöð.
Tekinn með tvö kíló af kókaíni
Bátur tókst á loft þegar
hann losnaði aftan úr jeppa sem
var á leið austur Suðurlandsveg í
gær. Mildi var að enginn
slasaðist þegar báturinn kom
aftur niður á jörðina, því þá lenti
hann beint á Land Cruiser-jeppa
sem var að koma úr gagnstæðri
átt.
Lögreglan á Hvolsvelli segir
óhappið áminningu um að gæta
þurfi fyllsta öryggis þegar
tengivagnar séu aftan í bílum. Í
þessu tilfelli hafi gáleysið verið
ámælisvert, því báturinn hafi
ekki verið tryggilega festur
aftan í bíl eiganda síns.
Fljúgandi bátur
lenti á jeppabíl
Níutíu og átta ára
gömul kona, Alma F. Coate-Wilson,
varð ánægð þegar fjórir borgar-
starfsmenn í Ólympíu í Washing-
ton-ríki komu heim til hennar með
giftingarhringinn, sem hún hafði
óvart sturtað niður um klósettið
fyrir tveimur mánuðum.
Eftir óhappið skrifaði hún
borgarskrifstofunum og bað um
hjálp við að finna hringinn og var
ákveðið að verða við því. „Ég varð
hamingjusamasta stelpa í heimi,“
sagði hún eftir að hafa endur-
heimt hringinn.
Giftingarhring
náð úr klóaki