Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 38
Stórir lúxusbílar renna nú út
eins og heita lummur, rándýrar
heitar lummur. Audi Q7 fellur
undir þennan hóp og þegar
kemur að útliti og krafti þá er
hann fremstur meðal jafningja.
Böggull fylgir þó skammrifi.
Audi hefur búið til kraftmestu
fjöldaframleiddu V8-díselvél í
heimi og nú á að koma henni fyrir
hvar sem mögulegt er. Q7 4,2 TDI
er þar á meðal enda við fyrstu sýn
um fullkomið hjónaband að ræða.
V8-vélin skilar heilum 326 hest-
öflum og ótrúlegum 760 Nm í tog.
Þetta þýðir að Q7 er 6,4 sekúnd-
ur upp í hundrað með öll sín 2.450
kg í eftirdragi. Þrátt fyrir allan
þennan kraft eyðir hann aðeins
11,1 lítra á hundraðið í blönduð-
um akstri. Enginn Yaris svo sem
en miðað við kraftinn og stærðina
gengur eyðslan kraftaverki næst.
Q7 með sitt risastóra grill er
grimmur í útliti og lítur út eins
og hann ætli að éta næsta smábíl.
Þegar komið er inn í bílinn hróp-
ar lúxusinn á mann. Ekki bara efn-
isvalið heldur hönnunin. Mælarn-
ir sem líta út eins og bíllinn sé að
fara svo hratt að þeir leka út til
hliðanna eru svo punkturinn yfir
I-ið.
Miðað við stærð vélarinnar er
hún ótrúlega hljóðlát, svolítið
eins og að horfa á Jurassic Park
á „mute“. Hún er líka kraftmik-
il, eins og tölurnar sýna svart
á hvítu, en allur þessi kraftur
kemur ekki án vandamála. Bíll-
inn kann að vera 6,4 sekúndur
upp í hundrað en á tímanum milli
þess að stigið er á bensíngjöfina
og haldið er af stað er hægt að
fara í sturtu, fá sér kaffi, hringja
í mömmu og ganga frá skatt-
framtalinu. Forþjöppuhikið er
svo mikið. Þegar búið er að yfir-
stíga það leggur bíllinn af stað af
ótrúlegum krafti og þú þrýstist
niður í sætið.
Q7 er frábær bíll, enda hefur
hann farið langt fram úr vænting-
um Audi. Vel heppnað útlit, akst-
urseiginleikar að ógleymdri loft-
púðafjöðrun Q7, sem gerir hann
að mjúku fari hvort sem er á mal-
bikinu eða holóttum malarvegi,
gera Q7 af frábærum valkosti.
Í hreinskilni sagt gerir kraft-
aukningin honum hins vegar lítið.
Vissulega geturðu dregið stærsta,
flottasta og dýrasta hjólhýsið upp
á reginöræfi en ef þú hefur efni á
þessum bíl þá hefurðu efni á nótt
á næsta lúxushótel.
Aðlaðandi steratröll
SMUR- BÓN OG DEKKJAÞJÓNUSTAN
SÆTÚNI 4 • SÍMI 562 6066
SUMARDEKK
HEILSÁRSDEKK
OLÍS SMURSTÖÐ
BÓN OG ÞVOTTUR
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
RAGEYMAÞJÓNUSTA
BREMSUKLOSSAR
PÚSTÞJÓNUSTA
KERRUÖXLAR
Í ÚRVALI
og hlutir
til kerru-
smíða
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000