Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 42
hús&heimili Elín Sigríður Ingimundardóttir hefur safnað málverkum frá tvítugsaldri. Hún á orðið fleiri málverk en veggi til að hengja þau upp á. Elín Sigríður Ingimundardótt- ir, fjármálastjóri, hótelstjóri og verslunareigandi, er kona sem kann gott að meta. Upp úr tví- tugu hóf hún upp á sitt eins- dæmi að sækja myndlistarsýn- ingar í þeim tilgangi að fjár- festa og fegra heimili sitt, en í dag á hún fleiri verk en veggi til að hengja þau á. Eftirlæt- is verk hennar er eftir Gunn- ar Kr. Jónasson frá Akureyri, en það keypti hún fyrir tæpum tíu árum þegar Gunnar var með sýningu í Gilinu. „Ég fór fyrst á sýninguna með systur minni og leist svo rosalega vel á verk- ið að ég doblaði bóndann til að koma með mér aðra ferð. Við settumst niður með Gunnari og áttum góða stund sem end- aði með því að við keyptum þetta verk sem hefur svo fylgt okkur síðan og mun gera það um ókomna tíð,“ segir hún og bætir við að það séu helst litirnir og lífsgleðin í verkinu sem heilli hana. „Ég brosi alltaf þegar ég horfi á þetta verk enda gefur það mér mikið.“ Elín segist reyna að kaupa sér verk þegar hún hefur efni á, en hún mælir með að slík kaup fari fram beint í gegnum lista- mennina ef á því gefst kostur. „Myndlist gefur heimilinu hlýju og oft er ákveðinn kærleikur í henni þó að misjafnt sé hvern- ig fólk túlki hana. Sjálf sæki ég í list sem mér finnst gefa hlýju og birtu.“ Það er óhætt að segja að Elín hafi mörg járn í eldinum. Hún er bæði fjármálastjóri hjá fyrir- tækinu Rafstuð, hótelstjóri hjá Fosshótelinu við Suðurgötu á sumrin og svo á hún hlut í versl- uninni Nóru í Bankastræti 14. „Þar seljum við franskar sveita- vörur sem ýta undir rómantík heimilisins. Allt frá húsgögnum yfir í margs konar smáhluti sem auka á rómantíkina. Allar vör- urnar eru keyptar í Frakklandi og þar sem þær eru sveitalegar og sætar myndi ég segja að þær gætu hentað sérlega vel í sum- arbústaðinn,“ segir þessi róm- antíski listunnandi að lokum. mhg@frettabladid.is Kærleikur í myndlist Elín Sigríður Ingimundardóttir byrjaði að kaupa myndlist fyrir heimili sitt þegar hún var um tvítugt. Hún segir að gefist þess kostur sé einfaldast að hafa beint samband við listamanninn hafi fólk áhuga á að kaupa verk eftir hann. Forsíðumynd: Anton Brink tók myndina á vinnustofu Erlu Sigurðardóttur myndlist- arkonu. Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristi- neva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundsson S.5175724 og Ásta Bjartmarsdóttir S. 5175724 Útlitshönn- uður: Kristín Agnarsdóttir kristina@ frettabladid.is. fyrir börnin HÖNNUN nær nú ekki aðeins inn í betri stofuna á heimilum fólks heldur alla leið í barnaherbergið. Hönnuðir leggja nú í meiri mæli áherslu á að hanna hluti fyrir smáfólkið og hér eru nokkur dæmi um það. Robin Delaere hannaði fallegan ruggustól fyrir börn sem hluta af Italic- línunni. Í þeirri línu er lögð áhersla á sterkar línur og endingargott efni. Spænski hönnuðurinn Javier Mariscal hannaði litríka stóla sem kallast Julian. Stólarnir eru úr endingar- góðu plastefni og má einnig nota sem leikföng inni og úti. Hvolpurinn (Puppy) er eftir finnska hönnuðinn Eero Aarnio. Þeir sem þekkja til vita að hvolpurinn er hundrað prósent í anda Aarnio en „stóllinn“ er úr línu Aarnios fyrir börn „me too collection“. Hund- urinn er úr plastefni og hentar bæði innandyra og utan. Hann má fá í fjórum stærðum og nota sem stól, styttu, leikfang eða hvað sem ímyndunaraflið býður. www.sabz.fr 2. JÚNÍ 2007 LAUGARDAGUR2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.