Fréttablaðið - 02.06.2007, Blaðsíða 91
Cleveland vann í fyrrinótt
fimmta leikinn í úrslitarimmu
liðsins gegn Detroit Pistons og
tók þar með forystu, 3-2. Tvífram-
lengja þurfti leikinn en óhætt er að
segja að LeBron James, leikmað-
ur Cleveland, hafi sett á svið eins
manns sýningu því hann skoraði
síðustu 25 stig liðsins í leiknum.
Alls skoraði hann 48 stig í leiknum
og þykir frammistaða hans ein sú
allra besta sem nokkru sinni hefur
sést í úrslitakeppni NBA-deildar-
innar.
„Ég er alveg búinn á því,“ sagði
James eftir leik. „Ég fæ morgun-
daginn til að jafna mig en það
verður erfitt með lítinn tveggja
ára gutta í húsinu. Vonandi getur
önnur hvor amma hans passað
hann,“ bætti hann við.
James skoraði sigurkörfuna
þegar 2,2 sekúndur voru eftir
af síðari framlengingunni með
því að keyra í gegnum vörn De-
troit og leggja boltann í körfuna.
Chauncey Billups hitti í kjölfarið
ekki úr skoti sínu á lokasekúndu
leiksins.
Detroit var með sjö stiga for-
skot þegar rúmar þrjár mínútur
voru eftir af venjulegum leiktíma
en hefur nú tapað þremur leikjum
í röð fyrir Cleveland eftir að hafa
unnið fyrstu tvo leikina.
LeBron James hitti úr átján af
33 skotum sínum, þar af báðum
þriggja stiga skotum sínum. Hann
nýtti tíu af fjórtán vítaköstum, tók
níu fráköst, gaf sjö stoðsendingar
og stal tveimur boltum.
Leiksins verður sennilega
minnst sem þeim þar sem James
varð að sannri NBA-ofurstjörnu,
bæði innan sem utan vallarins.
„Við reyndum allt til að stöðva
hann,“ sagði Billups eftir leikinn.
„Við bara gátum það ekki.“
Enginn af leikmönnum Detroit
spilaði illa og skoruðu allir byrjun-
arliðsmennirnir að minnsta kosti
tíu stig í leiknum. „Hann setti á
svið ótrúlega sýningu. Ég held að
ég hafi aldrei séð annað eins hjá
andstæðingi okkar í úrslitakeppni
nokkru sinni.“
Sjötti leikur liðanna fer fram á
heimavelli Cleveland í kvöld og
verður í beinni útsendingu á Sýn
klukkan 00.30.
Eins manns sýning
hjá LeBron James
Það er ekki bara ís-
lenska landsliðið sem er í eldlín-
unni í dag því Færeyingar fá það
verðuga hlutverk að taka á móti
heimsmeisturum Ítala í Þórs-
höfn.
Með færeyska liðinu leikur
Simun Samuelsen, leikmaður
Keflavíkur, en hann hefur farið
mikinn í upphafi Landsbanka-
deildarinnar. Hann fór til að
mynda á kostum gegn HK um
síðustu helgi en hætt er við því
að eigi erfiðara uppdráttar í dag.
„Því er ekki að neita að þetta
verður mikil breyting en ég bíð
spenntur eftir leiknum,“ sagði
Simun við Fréttablaðið en hann
fór frekar illa með Stefán Egg-
ertsson, bakvörð HK, í síðasta
leik. Hann mun eflaust eiga í
meiri vandræðum með Massimo
Oddo, sem mun að öllum líkind-
um dekka hann, en Oddo er ný-
krýndur Evrópumeistari með
AC Milan.
„Ég verð eiginlega bara kátur
ef ég kem fimm sinnum við bolt-
ann,“ sagði Færeyingurinn geð-
þekki í léttum tón.
Úr leik við HK í leik gegn
heimsmeisturunum
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI