Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
27. júlí 2007 — 202. tölublað — 7. árgangur
Veitingastaðurinn Gló verður opnaður í Listhús-
inu við Laugardal um helgina, en þar er boðið
upp á lífrænt hráefni.
„Við munum leggja mikið upp úr lífrænu hráefni og
komum til með að bjóða upp á ferska safa, hveitigras
og súpur frá Örlygi Ólafssyni hjá Súpubarnum,“
segir Guðlaug Pétursdóttir, eigandi og rekst
Gló, sem einnig reku R
gerum þetta út frá hjartanu og höfum fengið til liðs
við okkur brasilíska listakokkinn Inacio Pacas da
Silva Filko, sem er á sömu bylgjulengd.“
Að sögn Guðlaugar verður áhersla lögð á grænmet-
isrétti, fisk og kjöt að einhverju marki, rétt dagsins,
ásamt tveimur súpum til að velja á milli, salat, heima
bakað spelt-brauð, hummus og lífAuk þe
Hæfilegur skammtur af ást og kærleik
Hinar vinsæludönsku bókahillur komnar aftur
Tekk - Kirsuberja - Hlynur
Hringið og biðjið um mynda- og verðlista
VEÐRIÐ Í DAG
699
KR.
U2
18 singles
VEITINGASTAÐURINN GLÓ
Hæfilegur skammtur
af ást og kærleik
Matur Tilboð
Í MIÐJU BLAÐSINS
FERÐAHELGIN
Verslunarmanna-
helgin um allt land
Sérblað um verslunarmannahelgina ofl.
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR:
Ástin er öllu
yfir sterkari
FY LGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
27. JÚLÍ 2007
Nörd í kröppum dansi Ari Magg kaupir íbúðir Stormurinn á jeppa
Ragna Lóa Stefánsdóttirkona Hemma Hreiðars
ÁSTIN ER ÖLLU YFIRSTER
ferðahelginFÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ 2007 Hátíðir kortlagðarHelstu viðburðir sem í boði eru um verslunar-mannahelgina BLS. 8FRÉTTABLAÐIÐ
/G
VA
Með breskan þjálfara
Björgólfur Thor Björ-
gólfsson vekur athygli
í Laugum, þar sem
einkaþjálfari hans
fylgir honum hvert
fótmál.
FÓLK 42
Lag á nýrri plötu vekur
spurningar
Áhöld eru um hvort
lagið sé aðför að
Bubba Morthens.
FÓLK 34
LÍKNARMÁL „Það er náttúrlega
draumur ef maður getur unnið við
það að hjálpa öðrum,“ segir
söngkonan Birgitta Haukdal sem
stendur að samtökunum Navia í
félagi við þrjá aðra Íslendinga.
Navia eru norræn góðgerðarsam-
tök sem safna fé fyrir bágstadda.
Fyrsta verkefnið verður að
stofna norræna stúlknahljómsveit
sem ferðast um og safnar fé til
góðra verka. -hdm/ sjá síðu 42
Söngkonan Birgitta Haukdal:
Stofnar norræn
góðgerðarsamtök
HEILBRIGÐISMÁL Eftir að reykinga-
bann var sett á hefur heilbrigðiseft-
irlitið fengið kvartanir frá íbúum
fjölbýlishúsa vegna reykinga
nágranna.
„Það hafa aldrei jafn margir
kvartað undan reykingum nágrann-
ans áður. Þetta er nýtt fyrir okkur,“
segir Gunnar Kristinsson heil-
brigðisfulltrúi.
Gunnar telur þetta til marks um
að almenningur sé meðvitaðri um
rétt sinn. Erfitt sé þó að banna
fólki að reykja úti á svölum. „Við
sendum húsfélögum bréf um að
kvörtun hafi borist og að taka skuli
tillit til nágranna. - kóþ / sjá síðu 8
Áhrif reykingabannsins:
Fólk í fjölbýli
kvartar meira
REYKJAVÍK Smartkortakerfi Reykja-
víkurborgar og Strætó bs. verður
líklega ekki tekið í notkun. Hálfum
milljarði króna hefur þegar verið
varið til verkefnisins.
Borgarráð samþykkti að innleiða
smartkortakerfið árið 2002 en það
hefur ekki verið tekið í notkun
nema að litlu leyti. Framkvæmda-
stjóri Strætó segir að ef viðræður
við einkaaðila um að reka þjónust-
una takist ekki verði kerfið lagt
niður.
Smartkortin eru tegund greiðslu-
korta sem innihalda örgjörva, en
þau átti að nota til að greiða far-
gjald í strætisvagna, aðgang að
sundstöðum og fleira.
Strætó bs. keypti smartkortales-
ara í strætisvagna fyrir hundrað
milljónir, en fyrirtækið Smartkort,
sem sá um þróun kerfisins, varð
gjaldþrota.
„Strætó bs. á ekki að standa í því
að þróa eða reka slíkan búnað,“
segir Reynir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó bs. „Ef við
getum ekki náð samningum við
aðila sem sjá viðskiptatækifæri í
þessu, þá leggjum við kerfinu.“
Reykjavíkurborg og Strætó bs.
hafa skipt kostnaðinum á milli sín í
grófum dráttum. Reynir segir að
heildarkostnaður Strætó sé að nálg-
ast 250 milljónir og gerir ráð fyrir
að kostnaður borgarinnar sé sam-
bærilegur. „Eftir að við keyptum
búnaðinn í vagnana hafa líklega
farið aðrar 400 milljónir í verkefn-
ið,“ segir Reynir.
Kostnaður Strætó bs. hefur verið
þróunarkostnaður, laun starfs-
manna, viðhald á búnaði, ísetning
kerfisins og verkefnisstjórnun.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
fulltrúi Reykjavíkurborgar í stjórn
Strætó bs., er þeirrar skoðunar að
kerfið sé búið að kosta borgarbúa
of mikla fjármuni.
Verkefnishópur hefur til athug-
unar hvort bjóða eigi framhalds-
og háskólanemum á höfuðborgar-
svæðinu frítt í strætisvagna og
nota til þess smartkortalesarana.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins er ólíklegt að af þessu verði,
enda sé það kostnaðarsamt. - sgj
Hálfur milljarður króna
í ónýtt smartkortakerfi
Smartkortakerfi Reykjavíkurborgar og Strætó, sem nota átti til að greiða fargjöld í
strætisvagna, ferðir í sund og aðra þjónustu, verður ekki tekið í notkun. Kerfið hef-
ur kostað um hálfan milljarð og því verður lokað ef einkaaðilar taka það ekki yfir.
Fleira ríkt fólk!
„Ríkt fólk notar ráðstöfunarfé sitt
eftir skatt ýmist til fjárfestingar
eða neyslu. Það sem rennur til
fjárfestingar hleypir fjöri í atvinnu-
lífið,“ segir Hannes Hólmsteinn
Gissurarson.
Í DAG 22
SJÁVARÚTVEGUR Útgerðarfélög um allt land þurfa að
bregðast við skerðingu aflaheimilda með breyting-
um á skipakosti sínum eða útgerðarmynstri.
Útgerðarmenn telja óumflýjanlegt að selja skip til
að mæta skerðingunni og þegar hefur verið hætt
við áætluð skipakaup vegna skerðingarinnar. Ný og
glæsileg skip koma til landsins á næstunni sem
ætlað er að gera veiðar arðbærari.
„Útgerðarfélög um allt land munu þurfa að fækka
skipum hjá sér, það bara hlýtur að vera. Ég vil kalla
þetta nauðvörn hjá útgerðarfélögunum,“ segir
Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja.
Andrés Guðmundsson, útgerðarstjóri hjá
Þorbirni fiskanesi hf., segir að fyrirtækið hafi hætt
við skipakaup þegar fréttist af væntanlegri
kvótaskerðingu, og það hafi selt eitt af skipum
sínum í mars. „Ætli við styttum ekki úthaldið hjá
okkur frekar og sjáum svo til; vonum að menn sjái
villu síns vegar og auki kvótann aftur,“ segir
Andrés.
Brimnesið, nýr frystitogari útgerðarfélagsins
Brims hf., kom til hafnar í gær frá Noregi. Þormóð-
ur rammi-Sæberg hf. fær afhenta tvo eins togara
og Brimnesið árin 2008 og 2009. Fyrirtækið hefur
selt einn eldri togara fyrirtækisins og hyggst selja
tvo til viðbótar. Skipin eru tæknilega fullkomin og
mun hagkvæmari í rekstri en eldri skip í íslenska
flotanum. - ifv / sjá síðu 18
Útgerðir neyðast til að breyta skipakosti til að mæta skerðingu aflaheimilda:
Nauðvörn útgerðanna hafin
BANDARÍKIN Skyggn köttur, sem
býr á elliheimili í Rhode Island í
Bandaríkjunum, hefur spáð fyrir
um hvaða vistmenn séu við það
skilja við.
Kötturinn Oscar skríður upp í
til vistmanna stuttu fyrir andlát
þeirra og hefur í 25 tilfellum
síðastliðið ár reynst sannspár.
Þetta hefur orðið til þess að
starfsfólkið hringir í fjölskyldur
vistmanna þegar Oscar leggst hjá
þeim. „Hann gerir sjaldan mistök
og margar fjölskyldur kunna að
meta þetta,“ segir David Dosa
læknir. - sgj
Skyggn köttur á elliheimili:
Köttur forspár
um dauða fólks
KOMIÐ INN TIL LENDINGAR Hin alþjóðlega Rey Cup-knattspyrnuhátíð hófst með pomp og prakt í gærmorgun í blíðu veðri.
Krakkar á öllum aldri frá 31 íþróttafélagi munu etja kappi og skemmta sér saman í Laugardalnum um helgina. Margt er í boði
þótt fótboltinn sé í fyrirrúmi. Sundlaugarpartíið sem haldið var í Laugardalslauginni í gærkvöld er aðeins forsmekkurinn af því
sem koma skal. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þrír efstir og jafnir
Íslandsmótið í höggleik hófst á
Hvaleyrinni í gær.
Þrír léku best allra á
þremur höggum undir
pari í gær.
ÍÞRÓTTIR 36
Þurrt vestanlands - Áframhald-
andi milt veður um allt land, og
væta víðast hvar, en þó þurrt að
mestu vestanlands. Hiti 8-15 stig á
láglendi.
VEÐUR 4