Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 80

Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 80
Eggert er ekki búinn að loka veskinu Lið Fram í Landsbanka- deildinni hefur ákveðið að semja við þýska framherjann Henry Nwosu, en hann kom til reynslu í Safamýrina á dögunum. Leikmað- urinn er ættaður frá Nígeríu og hefur meðal annars leikið í þýsku úrvalsdeildinni. Þá eiga Framarar von á dönskum miðjumanni, Henrik Eggerts að nafni, sem kemur til með að æfa með liðinu í nokkra daga með hugsanlegan samning í huga. Henrik er á mála hjá liðinu Nordsjælland í heimalandi sínu. Þýskur sóknar- maður til Fram Kjartan Henry Finnboga- son fer á sunnudaginn til úrvals- deildarliðsins Viborg í Danmörku á viku reynslutíma. „Félagið hefur sýnt mér mikinn áhuga og ég er spenntur þrátt fyrir að vita ekki margt um það,“ sagði Kjartan við Fréttablaðið í gær en Rúrik Gíslason samdi nýverið við félagið. „Það er gaman að Rúrik sé hjá þeim, við þekkjumst auðvitað. Þetta er búið að vera langt sumar hjá mér, ég er búinn að þurfa að hugsa mikið og margt. Ég er í góðu formi núna og vonandi get ég sýnt mínar bestu hliðar.“ Fer til Viborg Topplið norsku úrvals- deildarinnar, Brann, tapaði nokkuð óvænt fyrir Viking í 16- liða úrslitum bikarkeppninnar þar í landi í fyrradag, 2-0. Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson léku allan leikinn fyrir Brann en Ármann Smári Björnsson kom inn á þegar um 10 mínútur voru eftir. Hannes Sigurðsson kom inn á undir lok leiksins hjá Viking en Birkir Bjarnason sat allan tímann á bekknum. Jóhannes Harðarson lék fyrstu 60 mínúturnar fyrir Start í 1-0 tapi gegn Haugesund en Emil Hallfreðsson lék allan tímann fyrir Lyn þegar liðið vann Bodo- Glimt, 1-0. Þá lék Haraldur Guðmundsson í vörn Aalesund í 1-0 tapi liðsins gegn Lilleström. Viking lagði Brann óvænt Heimamaðurinn Björgvin Sigurbergsson Jóhannes Ármanns- son úr GB og Örn Ævar Hjartar- son úr GS léku manna best á Íslandsmótinu í golfi sem hófst á Hvaleyrarvelli í gær. Þeir léku allir á þremur höggum undir pari. Björgvin fór illa að ráði sínu á lokaholum sínum í gær. Hann par- aði fyrstu fimm holurnar sínar og fékk svo fjóra fugla á sjö holum. Hann fékk aftur á móti tvo skolla, á 167. og 17. braut, og endaði á þremur höggum undir pari. Jóhannes er nokkuð óvænt meðal efstu manna. „Þetta var mjög góður hringur, ég get ekki verið annað en sáttur. Ég byrjaði vel, fékk fugl og spilaði svo jafnt og gott golf. Völlurinn í heild sinni er mjög erfiður, flatirnar eru hraðar og þetta er krefjandi. Þetta snýst um að staðsetja sig og ég náði því auk þess að setja nokkur pútt ofan í. Vonandi næ ég að halda þessu áfram, þetta snýst bara um eitt högg í einu,“ sagði Jóhannes. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Sigmundur Einar Másson, var ekki par sáttur þegar Frétta- blaðið ræddi við hann eftir hring- inn í gær. „Nei, ég er langt frá því að vera sáttur,“ sagði Sigmundur, sem spilaði á 75 höggum. „Púttin voru ekki nógu góð, lengstu púttin sem ég setti í voru bara um 40 sentimetrar og þá þarf maður að slá ansi vel til að ná lágu skori. Ég átti nokkur mjög léleg högg og þarf að ná takti í sveifluna mína aftur. En ég ætla svo sannarlega ekki að gefast upp og mun berjast fyrir því að verja titilinn,“ sagði Íslandsmeistarinn. Hinn margreyndi Úlfar Jóns- son fór illa að ráði sínu í gær og kom inn á 82 höggum. „Mér leið mjög vel fyrir hringinn, tók góða upphitun, fékk léttan fugl á fyrstu holu og létt par á annarri en missti svo alveg taktinn. Ég var ekki nógu öruggur með sveifluna og var að slá mjög illa. Ég kom mér í vandræði í hrauninu, var að fá víti og fleira. Svo var ég að fara illa með léttu holurnar líka. Ég segi samt bara eins og konan mín sem er að byrja í golfi, þó svo að það hafi ekkert gengið var þetta samt gaman,“ sagði Úlfar, brosmildur þrátt fyrir erfiðan dag. Heiðar Davíð Bragason lék með Úlfari og Sigmundi og lék á einu höggi yfir pari. Sigurpáll Geir Sveinsson fékk fugl á fyrstu fjór- ar holurnar en missteig sig svo illa. Hann fékk meðal annars tvo skramba og lauk keppni á 74 högg- um. Birgir Leifur Hafþórsson byrj- aði illa, lék á tveimur höggum yfir pari á fyrstu holunni og fékk síðan skolla áður en hann lét veru- lega til sín taka. Birgir sýndi frábært golf og kom sterkur til baka og endaði á tveimur höggum undir pari, 69 höggum. Birgir fékk sex fugla í gær, þar af fjóra á síð- ari níu holum sínum. Þrír leikmenn leiða Íslandsmótið í golfi sem hófst á Hvaleyrarvelli í gær. Þeir léku allir á þremur höggum undir pari í strekkingsvindi. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra lék á 75 höggum og var ekki sáttur með sig. Það voru sviptingar í keppni í meistaraflokki kvenna á fyrsta- degi Íslandsmótsins í höggleik í gær en ef marka má stöðuna eftir fyrsta hring verður hart barist um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Heimakonan Anna Jódís Sigur- bergsdótir og hin átján ára gamla Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni á Akranesi eru efstar og jafnar eftir fyrsta dag en báðar léku þær á 75 höggum eða fjórum yfir pari. Anna Jódís, sem er systir Björg- vins Sigurbergssonar sem er í efsta sæti hjá körlunum, lék mjög jafnt og gott golf í gær og paraði meðal annars 13 af 18 holunum. Valdís lék frábærlega allt þar til að síðustu fjórum holunum þegar að hún fékk fjóra skolla í röð. Val- dís er ein af þremur átján ára stelpum meðal níu efstu en hinar eru Heiða Guðnadóttir úr GS og Ragna Björk Ólafsdóttir úr GK. Fjórfaldi Íslandsmeistarinn Ragnhildur Sigurðardóttir og Íslandsmeistarinn Helena Árna- dóttir úr GR eru í þriðja sætinu höggi á eftir forustukonunum og eru því báðar líklegar til afreka í framhaldinu. Helena var í góðri stöðu eftir fyrri hring sem hún lék á einu undir pari. Hún fékk hinsvegar fjóra skolla og einn skramba á fyrstu sjö holunum á seinni níu en náði sér aftur á strik á tveimur síðustu holunum og því eins og Ragnhildur höggi á eftir efstu konum. Nína Björk Geirsdóttir úr Kili og Heiða Guðnadóttir úr GS léku einnig á fimm höggum yfir pari og því munar aðeins einu höggi á sex efstu konunum. Heimakonan Þórdís Geirsdóttir var með forustu eftir fyrir þrjár síðustu holurnar en á þeim fékk hún einn skolla og tvo skramba og datt alla leið niður í 8. sætið. Anna og Valdís léku best allra

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.