Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 27.07.2007, Qupperneq 72
Sviðslistahátíðin artFart hefst um helgina, með frumsýningu á dansverkinu Moment Seen í Tjarnarbíói. Samband ungra sviðslista- manna stendur að hátíðinni, sem hóf göngu sína í fyrra. Tilurð artFart er nátengd sumar- starfi Hins hússins. „Í fyrra voru mörg okkar í skapandi sumar- starfi Hins hússins. Við vorum flest að fara að frumsýna verk á svipuðum tíma, og fannst sniðugt að skella þessu saman undir ein regnhlífasamtök, sem eru art- Fart,“ útskýrði Ásgerður G. Gunn- arsdóttir, sem heldur utan um hátíðina í ár ásamt þeim Karli Ágústi Þorbergssyni, Sigurði Arent Jónssyni og Hannesi Óla Ágústsyni. „Okkur langaði að þróa hátíðina áfram og búa til vettvang fyrir ungt fólk í sviðslistum. Um leið virkar hátíðin hvetjandi á fólk,“ sagði Ásgerður. ArtFart vakti mikla athygli í fyrra, þegar hóparnir sem tóku þátt héldu til í húsi Ó. Jónsson og Kaaber verksmiðjunnar við Sæbraut. Í ár hefur Listaháskóli Íslands styrkt hátíðina og lánað þátttakendum húsnæði til æfinga og sýninga, sem allar fara fram í Smiðjunni, gamla nemendaleik- húsi skólans að Sölvhólsgötu. Art- Fart hefur jafnframt hlotið styrki frá Reykjavíkurborg og Minning- arsjóði Margrétar Björgólfsdótt- ur. Þátttakendur í hátíðinni eru um sjötíu í ár, en sýningar eru fimmt- án. Þar má meðal annars geta frumsýningar á leikritinu Heteró- hetjur: Með fullri virðingu fyrir Ashley Cole, og uppsetningu á verkinu Bubbi kóngur. Í ár verður bryddað upp á nýj- ungum í formi vinnustofu og mál- fundar. „Erna Ómarsdóttir verður með vinnustofu í byrjun ágúst, og svo aftur í lok mánaðar. Hún er fyrir fólk í sviðslistageiranum, en ekki eingöngu þá sem taka þátt í hátíðinni,“ útskýrði Ásgerður. Þá sér Karl Ágúst Þorbergsson um málfund um tilraunir í listum 12. ágúst næstkomandi. Danshópurinn Samyrkjar ríður á vaðið á artFart og sýnir verkið Moment Seen, við undirleik stór- hljómsveitarinnar Tepokans, í Tjarnarbíói klukkan 20 á morgun og sunnudagskvöld. Hópurinn samanstendur af sex dönsurum frá Íslandi, Finnlandi og Svíþjóð og mun hann sýna verkið í Mod- erna Dansteatern í Stokkhólmi um verslunarmannahelgina. Nánari upplýsingar um dagskrá artFart og miðasölu má nálgast á vefsíðunni www.myspace.com/ artfarticeland og í síma 8217987. Í fótspor MöðruvallamunkaKl. 17 Í dag sýna gestalistamenn Sambands íslenskra myndlistarmanna í júlímánuði afrakstur dvalar sinnar hér á landi, í sýningarsal SÍM að Seljavegi 32. Gestalistamennirnir eru Rakel Bernie, Sharon Houkema, Leila A. Leder Kremer, Rose Schulze, Gerald Zahn og David Maher. Sýningin stendur einungis í kvöld. Helgi Þórsson og Morgan Betz opna í dag samsýninguna Berm- uda Love Triangle: the story of Doctor Son and Mister Bates, í 101 Gallerí að Hverfisgötu 18a. Sýn- ingin er samstarfsverkefni þeirra Helga og Morgans, sem hafa, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu, lengi bundist vináttubönd- um. Þeirri spurningu er varpað fram hvort vináttunni auðnist að endurspeglast í list þeirra. Í staðinn fyrir að stilla verkum sínum upp hlið við hlið völdu Helgi og Morgan að vinna að öllum verk- um í sameiningu. „Í því ferli hefir þó allur upphaflegur ásetningur týnst og hugmyndirnar hafa brenglast,“ segir í tilkynningu. Þar segir að afrakstur samvinn- unnar sé samansafn frábrugðinna karaktera sem allir eru á ferðalagi heim. Sýningin opnar klukkan 17 í dag. Vinir í 101 gallerí Hekla Dögg Jónsdóttir opnar einkasýningu í Nýlistasafninu í dag. Sýningin ber heitið „Limina- lity; alveg á mörkunum“ og stend- ur til 19. ágúst. „Liminality” vísar til millibilssvæðis eða griðastaðar sem áhorfanda gefst færi á að dvelja í, að því er segir í fréttatil- kynningu. Hekla Dögg gefur gest- um tækifæri á að sjá og upplifa ný verk í bland við eldri, og þannig gefst almenningi kostur á að kynna sér feril Heklu Daggar. Hekla Dögg er tilnefnd til Sjón- listaorðunnar 2007 fyrir verkið „Foss“ á samnefndri sýningu á Kjarvalsstöðum, röð verka í sýn- ingunni „Ljósaskipti“ í Gallerí Kling og Bang ásamt „Fireworks for LA“ sem hún sýndi nýverið í Los Angeles. Hún býr og starfar í New York og Reykjavík. Einkasýning Heklu Bjartur útgáfa gaf út tvær skáldsögur Gunnars Gunnarssonar, Svartfugl og Aðventu, nú í vikunni. Í tilefni af útgáfu Svartfugls verður boðið upp á menn- ingardagskrá að Saurbæ á Rauðasandi annað kvöld. Dagskráin ber titlinn „Við klukknahljóm syndugra hjarta“. Svartfugl fjallar um Eyjólf kapelán og ástríðuglæpi Bjarna og Steinunnar á Sjöundá. Sögulegur bakgrunnar hennar eru Sjöundarármorðin, sem teljast eitt- hvert frægasta morðmál Íslandssög- unnar. Sagan Svartfugl er stundum sögð vera fyrsta alvöru íslenska glæpa- sagan, þar sem réttarrannsókn spinnur söguþráðinn. Í henni er þó jafnframt dregin upp skörp mynd af íslensku samfélagi um aldamótin 1800, stétta- skiptingu þess, blindri réttvísu kirkju, kóngs og embættismanna og harðneskj- unni sem alþýðan bjó við. Á laugardag mun Gunnar Björn Gunn- arsson flytja erindi um Svartfugl, og leikararnir Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan lesa valda kafla úr bókinni. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari flytur verkið Lethe eftir Atla Heimi Sveinsson, og séra Sveinn Valgeirsson flytur hugvekju. Jafnframt verður boðið upp á léttar veitingar. Dagskráin er samvinnuverkefni Bóka- útgáfunnar Bjarts, Gunnarsstofnunar og Ferðafélags Íslands. Aðstandendur vekja athygli á góðu tjaldstæði á staðnum. Syndug hjörtu á Rauðasandi Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu! Miðasala á netinu! www.leikhusid.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.