Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 10
www.ss.is
F
íto
n
eh
f.
/
S
ÍA
Prófaðu
pastrami!
Pastrami áleggið frá SS er úr
nautakjöti. Þetta bragðgóða kjötálegg
hæfir sérlega vel t.d. í forrétti eða
smárétti og nettar rúllur með ýmsu
góðgæti. Liturinn á pastrami gleður
augað og fer vel á veisluborði.
Bragðið er afgerandi en þó ekki
ágengt. Og auðvitað hentar pastrami
einnig vel í hvaða samloku sem er –
frábær tilbreyting og skemmtileg
viðbót við áleggsúrvalið frá SS.
Ólafur Þór Guðmunds-
son, rúmlega fimmtugur maður úr
Hnífsdal, var í Héraðsdómi Norður-
lands vestra í gær dæmdur í fjög-
urra og hálfs árs fangelsi fyrir til-
raun til manndráps. Hann skaut í
átt að konu sinni á heimili þeirra í
Hnífsdal að kvöldi 8. júní síðastlið-
ins og telur dómurinn sannað að
hann hafi ætlað að skjóta konuna.
Hjónin höfðu rifist talsvert áður
en árásin átti sér stað og fullyrti
konan að maðurinn væri haldinn
sjúklegri afbrýðisemi. Hann fór í
bað og jós yfir hana svívirðingum
en hún var lögst til hvílu í öðru her-
bergi. Konunni leiddist þófið, stóð
upp úr rúminu og klæddi sig í föt.
Hún sagði manninum að hún vildi
ekki sofa við hlið hans næstu nótt.
Við það reiddist hann mjög. Hann
spratt upp úr baðkarinu og óð í átt
að konunni, sem lokaði dyrunum á
nefið á eiginmanni sínum. Því næst
fór maðurinn niður í kjallara, og
þegar hann kom aftur upp hafði
hann að sögn konunnar byssuna
meðferðis. Hann barði á lokaða bað-
herbergishurðina og eyðilagði hana
áður en konan þorði ekki annað en
að hleypa honum inn. Hún hélt því
fram að hann hefði króað hana af
inni á baðherbergi og miðað byss-
unni á hana, en skrikað fótur í
bleytu og hún því komist undan.
Þessu mótmælti maðurinn. Sagði
að hann hefði ekki haft byssuna
meðferðis fyrr en seinna, og hefði
þá ekki miðað á hana, heldur hún
hlaupið rakleiðis fram hjá honum
og niður í anddyri. Dómurinn taldi
ósannað, gegn neitun mannsins, að
hann hefði miðað byssunni á hana á
baðherberginu, og sýknaði hann því
af ákæru um að hafa ógnað konunni
í greint sinn.
Þegar niður var komið lenti konan
í erfiðleikum með að opna læstar
útidyrnar, og var enn að bisa við
það þegar maðurinn kom niður,
miðaði á hana byssunni og hleypti
af skoti af innan við metrafæri.
Konan hlaut rispur í andliti af völd-
um haglanna og gataðist peysa
hennar við öxl. Maðurinn bar við að
um voðaskot hefði verið að ræða.
Skotið hefði hlaupið af þegar hann
missti byssuna í gólfið. Þann fram-
burð segir dómurinn „að engu haf-
andi“ og að meta verði atvik svo „að
ákærði hafi ætlað sér að skjóta eig-
inkonu sína“. Ásetningurinn hafi þó
ekki verið einbeittur.
Hann var því dæmdur fyrir til-
raun til manndráps. Hann var sömu-
leiðis dæmdur til að greiða konunni
eina milljón króna í skaðabætur.
Konan komst út og yfir til
nágranna síns. Sérsveit lögreglu
handsamaði manninn eftir nokk-
urra klukkustunda umsátur og
hefur hann setið í gæsluvarðhaldi
síðan. Það kemur til frádráttar refs-
ingu hans.
Hálft fimmta
ár fyrir tilraun
til manndráps
Ólafur Þór Gunnarsson dæmdur fyrir að skjóta að
konu sinni úr haglabyssu í Hnífsdal. Dómurinn taldi
framburð mannsins um voðaskot að engu hafandi.
„Ég man í fljótu
bragði ekki eftir fjölmennara
máli, kærðir aðilar hafa stundum
verið tíu til fimmtán, en ekki
svona margir,“ segir Sigurbjörn
Víðir Eggertsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Reykjavík. Hann
hefur verið laganna vörður hátt í
fjörutíu ár.
Helgi Rafn Brynjarsson, fyrr-
um meintur hundaníðingur, hefur
kært 100 netverja fyrir meiðyrði,
hótanir og fleira. Eiginlegur
glæpavettvangur er netið, þar
sem mörg hundruð hótanir og
ásakanir birtust.
„Aðalreglan er sú að brot skuli
rannsakað þar sem það er fram-
ið,“ segir Sigurbjörn. Því gæti
þurft að rannsaka það í öllum
landsfjórðungum,
en hann efast um að
svo verði. Þetta er
skoðað í lögfræði-
deild lögreglunnar.
Erlendur Þór
Gunnarsson, lög-
maður Helga, bend-
ir á að það gæti
markað tímamót
hvað varðar netið
og hvað megi þar segja og ekki.
„Við skoðuðum til dæmis eina
síðu. Frá því að meiðandi ummæli
komu fram og þangað til daginn
eftir var búið að skoða hana mörg-
þúsund sinnum, samkvæmt teljar-
anum. Ef slíkur spjallvefur er ekki
fjölmiðill, þá veit ég ekki hvað
telst fjölmiðill.“
Fjölmennasta mál í
sögu lögreglunnar
Thomas Conklin,
dómari í Kansas, og Judy, kona
hans, storkuðu lögmálum
stærðfræðinnar nýlega þegar þau
voru bæði valin til að sitja í
kviðdómi á sama degi. Þúsundir
Kansasbúa koma til greina í slíka
vinnu, en lögum samkvæmt skulu
allir taka að sér setu í kviðdómi í
Bandaríkjunum ef þeir eru
kvaddir til þess.
Til að kóróna ólíkindin kom
síðan í ljós að réttarhöldin sem
Thomas þurfti að vera viðstaddur
og úrskurða um í félagi við aðra
meðlimi kviðdómsins, áttu sér
stað í dómsalnum sem hann
dæmir alla jafna í sjálfur.
Dómari og kona
hans í kviðdómi
Skógareldar geisa
og víðtækt rafmagnsleysi plagar
íbúa í sunnanverðri Evrópu vegna
mikillar hitabylgju. Er þetta önnur
stóra hitabylgjan á þessu svæði í
sumar og hefur hitinn valdið að
minnsta kosti 33 dauðsföllum í
Rúmeníu.
Þúsundir hektara af skógi vöxnu
landi hafa orðið eldi að bráð á
Ítalíu, í Búlgaríu, Makedóníu og
Grikklandi. Talið er að um íkveikju
hafi verið að ræða í mörgum til-
fellum og hafa nokkrir verið hand-
teknir vegna þess. Skógareldar
hafa einnig geisað í Serbíu.
Þrír létust í suðurhluta Grikk-
lands á miðvikudagskvöld þegar
eldur barst í heimili í útjaðri bæj-
arins Aegio. Bjarga þurfti nokkr-
um sem voru innlyksa með því að
hífa þá upp í þyrlu. Gífurlegt álag
er á fólki sem vinnur við slökkvis-
törf á þessum svæðum og hafa
flugmenn þyrlna og flugvéla sem
flytja vatn á eldinn látist við störf
bæði á Ítalíu og í Grikklandi.
Áttræð kona lést í norðurhluta
Grikklands vegna hitaslags þegar
hitinn fór upp í 45 gráður. Heil-
brigðisyfirvöld í Ungverjalandi
segja hitann hafa flýtt fyrir dauða
hundraða alvarlegra veikra sjúk-
linga. Rafmagn hefur farið af stór-
um svæðum á vestanverðum Balk-
anskaga og hafa stjórnvöld ríkja
þar beðið fólk um að takmarka
notkun á loftræstingu til að spara
rafmagn.
Gert var ráð fyrir svalara veðri
í lok vikunnar en ekkert útlit er
fyrir rigningu í bráð.
Hætta er á að ákveðin
tegund trjáa deyi út í Úganda, að
sögn vísindamanna þar í landi.
Rót trésins, sem kallast omuboro,
er talin örva kynhvöt manna.
Trén eru því rifin upp með rótum
til að fólk komist yfir ræturnar.
Þar sem trén vaxa mjög hægt eru
þau í útrýmingarhættu.
Drykkur úr þessum rótum er
mjög vinsæll í Úganda en áhrifin
af honum hafa ekki verið
vísindalega sönnuð.
Kynlífstré í út-
rýmingarhættu