Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 60
BLS. 14 | sirkus | 27. JÚLÍ 2007
Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus
www.klingenberg.is
E llý hefur þá orku að vilja frekar vera bílstjóri en farþegi í sínum bíl,“ segir Sigríður Klingenberg
spákona um bloggarann og þuluna
Ellý Ármanns. „Ellý hefur alltaf verið
keppnismanneskja í öllu sem hún
hefur tekið sér fyrir hendur og hættir
ekki fyrr en hún nær því sem hún ætlar
sér. Hún er ekki mannblendin þótt
fólki finnist það og hún á stundum erf-
itt með að treysta en ef hún treystir
þér ertu hennar besti vinur að eilífu.
Ellý er 8 og hún vill vera eins og sú tala
í laginu og getur pirrað sig yfir hverju
umfram 500 g og eytt þeim um leið.
Orka hennar er endalaus en hún
mætti leyfa sér að hvíla sig öðru hverju
án þess að fá samviskubit. Ellý er búin
að vera á endalokum eða tölunni 9
undanfarið og byrjar þar af leiðandi á
flest öllu nýju á næsta ári. Margt hefur
breyst hjá henni, nýtt barn, breytingar
á vinnu og fleira sem sýnir hvað koma
skal. Hún þarf að vara sig ef hún ætlar
ekki að eignast annað barn fljótlega.
Hún er hins vegar frábær móðir svo
það væri bara búbót. Ellý á eftir að
stimpla sig inn og koma sér á kortið
sem aldrei fyrr og þá er ég að tala um
árið 2008 sem verður viðburðaríkt
fyrir miss Ellý og nýja upphafið
fyrir alvöru byrjað. Ég ætla að vera
sú fyrsta sem óskar henni til
hamingju með það.“
Viðburðaríkt ár fyrir miss Ellý
ELLÝ ÁRMANNSDÓTTIR Sam-
kvæmt Sigríði verður Ellý að
vara sig ef hún ætlar ekki að
eignast annað barn fljótlega.
SPURNINGAKEPPNI sirkuss
Helgi Seljan
1. Emilía.
2. Margit Sandemo.
3. Laddi.
4. Dubai-turninn.
5. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.
Elva Ósk
1. Emilía.
2. Anna Larsen.
3. Laddi.
4. EU-turninn í Japan.
5. Unnur Birna.
Helgi Seljan er óstöðvandi í sigurgöngu sinni og sigrar Elvu Ósk með 7 stigum gegn 5.
Elva Ósk skorar á Heimilistóninn og leikkonuna Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur. Fylgist með!
1. Hver er hætt í Nylon?
2. Hver er höfundur Ísfólksins?
3. Hver syngur lagið Milljarðamær-
ingurinn?
4. Hver er hæsta bygging í heimi?
5. Hver er andlit íslenska vatnsins
Icelandic Glacial?
6. Hver er eiginmaður Madonnu?
7. Hver leikur aðalhlutverkið í Evan
Almighty?
8. Hver skrifaði bækurnar um Jón
Odd og Jón Bjarna?
9. Í hvaða raunveruleikaþætti situr
David Hasselhoff í dómarasæti?
10. Hvað heitir litla spænska prins-
essan sem skírð var á dögunum?
6. Guy Ritchie.
7. Steve Carell.
8. Guðrún Helgadóttir.
9. America’s Got Talent.
10. Sofia.
7 RÉTT SVÖR
6. Allan George.
7. Steve Carrell.
8. Guðrún Helgadóttir.
9. Gorgeous.
10. Maria Francesca.
5 RÉTT SVÖR
SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM. HELGI SELJAN ER ÓSIGRAÐUR EN
KEPPIR HÉR VIÐ ELVU ÓSK ÓLAFSDÓTTUR LEIKKONU.
G ilzenegger er snúinn aftur eftir margra mánaða hlé með nýja heimasíðu sem, að eigin
sögn, er miklu betri en þær síður sem
hann hefur áður komið að. Lítið
hefur farið fyrir Stóra G, eins og hann
kallar sig stundum, undanfarna mán-
uði en nú geta æstir aðdáendur
andað léttar. Gillz segir nokkrar
ástæður liggja að baki því að hann sé
snúinn aftur. „Ein af aðalástæðunum
er sú að 90% af þeim sem voru með
mér í kallarnir.is hafa ekki fengið
kvenmann síðan að sú síða lokaði. Á
kallarnir.is vorum við nefnilega með
myndir af þeim og gáfum upp msn-in
þeirra,“ útskýrir Gillz. „Áður fengu
félagarnir þrjár til fjórar kellingar á
viku en það hefur ekkert gengið hjá
þeim og þeir eru eiginlega búnir að
vera röflandi síðan. Með síðunni er
ég í raun að redda félögunum svo
þeir geti haft regluleg kynmök. Ég er
nú vinur vina minna.“
Á nýju síðunni kennir ýmissa
grasa. Þar bloggar Stóri G meðal ann-
ars, býður upp á vídeó og fjarþjálfun.
„Íslendingar eru að blása út eins
og loftbelgir. Ég ætla að aðstoða þá
við að koma sér í form. Ég er strax
búinn að fá sendar nokkrar spurn-
ingar varðandi vaxtarræktina sem ég
hef að sjálfsögðu svarað. Síðan ætla
ég að fá Magnús Bess og fleiri til að
setja inn æfingar og mataræðið sitt á
síðuna. Fólk getur treyst því að það
geti lært af síðunni,“ segir Gillz og
heldur áfram, hógværðin uppmáluð.
„Fjarþjálfunin er eiginlega liður í að
bjarga lífum. Þetta er venjuleg einka-
þjálfun en ég stend ekki yfir fólkinu
meðan það er að æfa. Kenni því
æfingar og fleira. Þetta er eiginlega
fyrir fólk sem tímir ekki að borga fyrir
einkaþjálfun.“
Gillz segir ýmislegt vera í bígerð á
síðunni en þó ber sennilega hæst
vaxtarræktarmót sem hann hyggst
koma á koppinn. „Ég stefni að því að
halda Gillz Classic, nafn sem ég fæ
lánað frá Arnold félaga mínum,“ segir
Gillz og bætir við. „Það verður stytta
af kallinum í verðlaun og hvaðeina.“
EGILL EINARSSON ER SNÚINN AFTUR SEM GILZENEGGER.
HANN HEFUR OPNAÐ HEIMASÍÐUNA GILLZ.IS:
EINS OG OFURHETJA Gillz segist bjarga lífi fólks með nýju síðunni sem hann hefur
opnað á Gillz.is.
Gillz bjargar
fólki úr lífshættu
Hvað er best
á grillið?
„Sólin skín,
mohito meðan
kjúklingurinn
grillast ásamt
sólþurrkuðum
tómötum, ólífum
og þistilhjörtum,
dásemdarsalat og
eðal hvítvín.“
Kirstín Erna Blöndal söngkona
„Kartöflur. Líka sætar. Tómatar, gulrætur,
allslags fiskur og þar sem ég er nú ekki
svo göfug að vera hætt í kjötinu finnst
mér ekki slæmt að fá ferskt, léttgrillað
nauta- eða lambakjöt; krydda það sjálf
eftir grillunina ef þarf. Þá er alltaf
klassískur eftirréttur langskornir bananar
í hýðinu með súkkulaði í sárinu.“
Andrea Jónsdóttir útvarpskona
„Mér finnast hamborgarar bestir á grillið,
þeir eru klassískir og einfaldir. Þarfnast
lítillar fyrirhafnar.“
Erlingur Óttar Thoroddsen útvarpsmaður
„Mér finnst nautasteik best sem er rétt
sýnd grillið. Það verður að heyrast enn í
henni, hún verður að vera svo blóðug.
Meðlæti myndi ég velja bakaða kartöflu
og ferskt grænmeti.“
Valur Heiðar Sævarsson tónlistarmaður