Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 11
Embættismenn
Reykjavíkurborgar hafa enn ekki
skilað inn umbeðnum gögnum til
lögreglu vegna rannsóknar á
meintum eignaspjöllum Kópa-
vogsbæjar og framkvæmda í
leyfisleysi í Heiðmörk.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
kærði Kópavogsbæ og verktaka-
fyrirtækið Klæðningu í febrúar-
mánuði fyrir framkvæmdirnar.
Sigurbjörn Víðir Eggertsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu, getur engu svarað um hvort
töfin kunni að vera af pólitískum
orsökum. Hins vegar segir hann
það rétt að hún sé óvenju mikil.
Borgin tefur
enn rannsókn
Bæjarstjórn Garða-
bæjar samþykkti í júní tillögu
þess efnis að
kolefnisjafna þær
bifreiðir sem
sveitarfélagið
rekur. Erling
Ásgeirsson,
formaður
bæjarráðs, lagði
fram tillöguna.
Kostnaður við
að kolefnisjafna
bifreið fer eftir
eyðslu og
árlegum akstri, en þumalputta-
reglan er sú að árlega þurfi að
greiða því sem nemur einni
áfyllingu af eldsneyti, að því er
kemur fram í tillögunni.
Bæjarstjórn Garðabæjar vill
með þessu stemma stigu við styrk
gróðurhúsalofttegunda í and-
rúmsloftinu.
Kolefnisjafna
bíla Garðabæjar
Tveir fyrrverandi starfs-
menn nautgripabúgarðs í Ástralíu
þurfa á næstunni að svara til saka
fyrir að hafa stolið nautgripa-
gallsteinum sem geta selst fyrir
allt að 20 þúsund dali kílóið,
andvirði 1,2 milljóna íslenskra
króna.
Þjófnaðurinn uppgötvaðist í
kjölfar þess að niðursveifla varð í
tekjum búgarðsins. Fram-
kvæmdastjóri búgarðsins, Simon
Stahl, segir þjófnaðinn mikið áfall
fyrir vinnustaðinn og býst við að
öryggi þar verði hert.
Steinarnir eru seldir til Kína
þar sem þeir eru notaðir í
náttúrulækningar.
Stálu fokdýrum
gallsteinum
Vinnslustöð Vest-
mannaeyja hefur sóst eftir leyfi til
að byggja frystigeymslu á Eiðinu
sem á að vera tilbúið fyrir loðnu-
vertíðina í vetur. Jarðvegsvinna er
hafin á lóðinni, þrátt fyrir að deili-
skipulag sé enn í auglýsingaferli og
leyfi liggi ekki fyrir um að vinnan
megi hefjast.
„Það á ekki að byrja að grafa
fyrir húsi án þess að það séu komin
formleg leyfi fyrir því að það megi
vera þarna,“ segir Stefán Óskar
Jónasson varabæjarfulltrúi. „Það
þarf líka að bíða og fara í margar
vikur í kynningu fyrir nágranna.“
Gunnlaugur Grettisson, forseti
bæjarstjórnar, segir Vinnslustöð-
ina hafa leyfi til að grafa átján til-
raunaholur til að kanna jarðveginn.
„Þessi lóð hefur verið til í tuttugu
ár og enginn hefur sótt um hana
þar til nú,“ segir Gunnlaugur.
„Ef niðurstaðan verður að þeir
fái ekki lóðina eða deiliskipulagið
verður þannig að þessu verði ekki
úthlutað, þá eru þeir að gera þetta á
sinn kostnað og ber að ganga frá
því aftur,“ segir Gunnlaugur.
Stefán segir engan vera á móti
Vinnslustöðinni, en nauðsynlegt sé
að fara eftir lögum. „Þetta er í aug-
lýsingaferli, það passar ekki að
byrja framkvæmdir áður en búið
er að ákveða hvernig þetta verður,“
segir Stefán.
Hefja framkvæmdir án deiliskipulags