Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 20

Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 20
Exista skilaði 221,4 milljóna evru hagnaði, um 18,4 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi. Þetta var um fjörutíu prósentum meiri hagnaður en meðaltalsspá Glitnis og Kaup- þings hljóðaði upp á. Hagnaður félagsins var borinn uppi af fjárfestingastarfsemi undir undir þann þátt falla eignarhlutir í Bakkavör, Kaupþingi og Sampo Group. Þessi liður skilaði 185,5 milljónum evra en rekstrarstarf- semi, þ.m.t. af vátryggingarekstri og eignaleigustarfsemi, um 36 millj- ónum evra Á fyrri hluta ársins hagnaðist Exista um 862 milljónir evra sem er um 71,5 milljarðar króna. Þetta er mesti hálfs árs hagnaður íslensks fyrirtækis fyrr og síðar. Arðsemi eigin fjár á síðasta fjórð- ungi var 32 prósent á ári en sjötíu prósent fyrir fyrstu sex mánuðina. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 290 milljónir evra en rúmur helm- ingur af þeim er hlutur Existu af áætluðum hagnaði Kaupþings og Sampo á síðasta ársfjórðungi. Rekstrarkostnaður og tjónagjöld námu 40 milljónum evra á ársfjórð- ungnum. Eignir Existu námu 7.709 milljón- um evra (640 milljarðar) í lok júní og höfðu aukist um 75 prósent frá ársbyrjun. Skýra kaup félagsins í Sampo miklu um þennan vöxt en Exista á nú tæpan fimmtungshlut í finnska fjármálafyrirtækinu. Eigið fé var komið í 2,8 milljarða evra, um 234 milljarða, og hafði aukist um helming á árinu. Eigin- fjárhlutfall samstæðunnar var 36,7 prósent um mitt árið. Hlutabréf félagsins lækkuðu um 0,63 prósent í gær en uppgjörið var birt eftir lokun markaða. Straumur-Burðarás fjár- festingarbanki skilaði 7,7 milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Það var lítillega undir spám greiningardeilda bankanna sem vanmátu kostnað vegna fyrirtækjakaupa á fjórð- ungnum. Hagnaður Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka nam 94,19 milljónum evra á öðrum ársfjórð- ungi. Það jafngildir um 7,7 millj- örðum íslenskra króna. Til saman- burðar var hagnaðurinn 69,16 milljónir evra á fyrsta fjórðungi þessa árs. William Fall, forstjóri Straums-Burðaráss, segir bank- ann hafa aukið verulega við fjöl- breytni í rekstri sínum. Unnið sé að því að fá dreifðari tekjur inn í reksturinn, auka eigi hlutdeild vaxta- og þóknanatekna og draga frekar úr stöðutökum í hlutabréf- um. Þetta gerir hann ráð fyrir að minnki verulega þær sveiflur sem verið hafa í afkomu bankans. Hagnaður fjórðungsins var nokkuð lægri en greiningardeildir bankanna höfðu gert ráð fyrir. Meðaltalsspá þeirra hljóðaði upp á rúmlega hundrað milljóna evra hagnað. Tekjur voru í samræmi við spár en munurinn stafaði af hærri kostnaði en gert var ráð fyrir. Hann kom að mestu til vegna einskiptiskostnaðar sem til féll á ársfjórðungnum. Mikinn vöxt er að merkja á flestum sviðum Straums. Hreinar rekstrartekjur fjórðungsins námu 148,20 milljónum evra, samanbor- ið við 92,51 milljón evra á fyrsta fjórðungi ársins. Heildareignir jukust um 1,64 milljarða evra og námu 6,8 milljörðum þann 30. júní. Heildarútlán jukust um 266 millj- ónir evra. Þá hefur starfsmanna- fjöldi bankans tífaldast á síðustu átján mánuðum. William Fall seg- ist ekki gera ráð fyrir eins hröðum vexti það sem eftir er af árinu eins og á fyrri helmingnum. Áherslan verði nú heldur á samþættingu þeirra félaga sem keypt voru fyrr á árinu, eQ og Wood&Company. „Straumur er þó í þeirri sérstöku stöðu að eiga of mikið fjármagn úr að spila. Eiginfjárstaða hans er mjög rúm. Ef gott tækifæri kemur til spilanna, eitthvað sem vit er í á góðu verði, munum við að sjálf- sögðu líta á það. Það er hins vegar ekkert í pípunum eins og er.“ Fall hefur nú vermt forstjóra- stól Straums í sjö vikur. Hann hefur gefið út að eftir níutíu daga í starfi verði skerping á stefnu og framtíðarsýn bankans kynnt. „Straumur hefur náð langflestum þeim markmiðum sem voru sett fyrir átján mánuðum. Nú er kom- inn tími til að innleiða ný mark- mið, ekki einungis fjárhagsleg heldur einnig um aukið gagnsæi til hluthafa og bætta þjónustu. Við ætlum að verða leiðandi fjárfest- ingarbanki í Norður- og Mið-Evr- ópu. Þetta eru nauðsynleg skref til þess.“ [Hlutabréf] Peningaskápurinn ... Citigroup hefur hækkað mark- gengið á Kaupþingi upp í 1.500 krónur á hlutinn og mælir með kaupum í bankanum. Þetta er um 17,5 prósenta hækkun frá fyrra verðmati og kemur í kjölfar hálfs árs uppgjörs Kaupþings sem var langt umfram væntingar mark- aðsaðila, þar á meðal Citigroup. Miðað við verðmatið er mark- aðsvirði Kaupþings um 1.111 millj- arðar króna en til samanburðar var verg landsframleiðsla síðasta árs um 1.142 milljarðar króna samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í skýrslunni kemur fram að mikill tekjuvöxtur hafi einkennt afkomu síðasta ársfjórðungs. Tekjur jukust um 67 prósent á milli ára sem er mun meiri vöxtur en sem nemur aukningu kostnaðar á sama tíma. Citigroup reiknar með að hagn- aður Kaupþings verði um 90,8 milljarðar á árinu en fari upp í 98,3 milljarða á næsta ári. Hlutabréf í Kaupþingi lækkuðu um 0,24 prósent í gær og var loka- gengi félagsins 1.262. Meta Kaupþing á við landsframleiðslu Citigroup hækkar verðmat sitt á Kaupþingi í 1.500. Tæpir 8 milljarðar í hús Ellefu fruminnherjar í Actavis og aðilar tengdir þeim fengu 233,4 milljónir evra, jafnvirði 19,3 millj- arða króna, þegar Novator gekk frá greiðslu kaupverðs vegna yfir- töku á félaginu. Til þessa hóps teljast forstjóri, aðstoðarforstjóri, framkvæmdastjórar og stjórnar- menn auk tengdra félaga og maka. Beinir eignarhlutir fruminn- herja námu 109,5 milljónum evra eða 9.086 milljónum króna. Hlutur forstjórans og stjórnarmannsins Róberts Wessman nam þar af 2.966 milljónum króna. Róbert er jafnframt eigandi að eignarhalds- félaginu Aceway Ltd. sem fékk um 9.234 milljónir króna fyrir sinn snúð. Alls fékk Róbert því um 12,2 milljarða króna við yfirtöku Novators á Actavis. Eignarhlutur Guðbjargar Eddu Eggertsdóttur, framkvæmda- stjóra sölu- og markaðssviðs, gaf henni rúma 2,2 milljarða króna við söluna. Sindri Sindrason, stjórnar- maður og fyrrum forstjóri Pharm- aco, fékk um það bil 1,9 milljarða. Flestir framkvæmdastjórar félagsins eiga kauprétt að hluta- bréfum í Actavis og nemur ónýtt- ur réttur tæpum átta hundruð milljónum króna miðað við til- boðsverð Novators og gengi evr- unnar. Árni Harðarson hjá Actavis reiknar með því að Novator ákveði það eftir helgi hvernig gengið verði frá ónýttum kaupréttum. Hann segir að flestir þessara kauprétta séu nýtanlegir í nóvem- ber næst komandi. Róbert Wessman fékk 12,2 milljarða Bakkavör hagnaðist um 3,2 millj- arða króna eftir skatta á fyrri helmingi árs. Hagnaður félagsins jókst um tuttugu og sjö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. Bakkavör hagnaðist um tvo millj- arða króna á öðrum ársfjórðungi. Ágúst Guðmundsson forstjóri segir krefjandi viðskiptaum- hverfi, afleitt veðurfar í Bretlandi og innköllun varnings fyrr á árinu hafa haft áhrif á rekstur Bakka- varar fyrstu sex mánuði ársins. „Þegar á heildina er litið jókst sala félagsins samt sem áður umfram breska matvælamarkaðinn.“ Heildarvelta Bakkavarar fyrstu sex mánuði ársins nam 90,2 millj- örðum króna. Hagnaður Bakkavarar 3,2 milljarðar króna Hagnaður hins færeyska Eik banka nam tæpum 2,3 milljörðum íslenskra króna á fyrri helmingi árs. Um er að ræða rétt rúma þrjá- tíu prósenta hagnaðaraukningu sé miðað við sama tímabil í fyrra. „Þetta er methagnaður. Við höfum vaxið gríðarlega á þessu ári, bæði í Danmörku og í Færeyjum. Þá hafa fjárfestingar okkar á Íslandi og í Danmörku skilað góðum hagnaði,“ sagði Marner Jacobsen forstjóri. Fram kemur í tilkynningu frá Eik banka að vænta megi rúmlega 3,7 milljarða hagnaðar fyrir árið í heild. Þá segir að árið 2007 verði lengi í minnum haft innan félagsins, enda hafi Eik banki verið skráður tví- hliða á markað í Danmörku og á Íslandi fyrr á árinu. Gott uppgjör í Færeyjum Exista hf. slær hvergi slöku við Mesti hálfsárs hagnaður íslensks fyrirtækis.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.