Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 55
ekkert tilefni til þess og sú athygli sem
hann fær er af hinu góða,“ segir Ragna
Lóa sem mætir að sjálfsögðu á alla
leiki hans. Eftir langan og farsælan
knattspyrnuferil er líklega farið að
síga á seinni hlutann en Ragna Lóa
segir erfitt að segja til um hvenær fjöl-
skyldan flytji aftur til Íslands. „Ég á tvö
börn hér á landi og svo er öll fjölskyld-
an og frábæru vinirnir hérna. Ég
hlakka mikið til að flytja heim en kvíði
líka fyrir. Kvíðinn liggur aðallega í
hraða þjóðfélagsins en við munum
þurfa að stilla okkur upp á nýtt eftir
rólegheitin úti. Ætli við tökum ekki
eitt ár þegar ferli Hermanns lýkur og
gerum hluti sem hann hefur hingað til
þurft að neita sér um vegna fótbolt-
ans. Ferðumst og förum á skíði. Þótt
það sé æðislegt að eiga frábæran fót-
boltaferil eru bara skemmtilegir hlutir
sem bíða okkar. Við munum alltaf
hafa gaman af lífinu. Við erum bara
þannig týpur,“ segir hún og bætir við
að þau Hermann séu góðir vinir og
elski að skemmta sér saman. Hún sjálf
hafi alltaf verið opin og hress og að
það hafi ekki breyst þegar hún kynnt-
ist Hermanni. „Við höfum gaman af
lífinu og erum ávallt til í eitthvað
skemmtilegt. Okkur finnst svo gaman
að vera til,“ segir hún og bætir við að
þau verði örugglega enn þá dansandi
uppi á borðum þegar þau verði orðin
gömul hjón. Aðspurð um leyndarmál-
ið að góðu og skemmtilegu hjóna-
bandi segir hún mikilvægast að traust-
ið sé til staðar. „Fyrst og fremst verður
að vera traust á milli og svo verður
maður að geta verið maður sjálfur
hvort sem er með vinum eða með
makanum,“ segir hún og bætir við að
hún hlakki til ellinnar við hlið Hemma.
„Ég hlakka til restarinnar af ævinni
með honum, það verður aldrei dauður
tími í kringum okkur.“
indiana@frettabladid.is
FALLEGAR MÆÐGUR Ragna Lóa ásamt Elsu Hrund, Thelmu Lóu og Ídu Marín.
P
IP
A
R
• S
ÍA
Jakkaföt
frá 5.990
Gallabuxur
frá 3.990
Quartbuxur
frá 1.990
Stuttermaskyrtur
frá 990
ÉG LIFI MJÖG SKEMMTILEGU LÍFI OG HEF
ÞAÐ ALVEG HRIKALEGA GOTT, GET FERÐ-
AST MIKIÐ OG HEF NÓGAN TÍMA FYRIR
BÖRNIN MÍN OG MANNINN.
27. JÚLÍ 2007 | SIRKUS | BLS. 9