Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 27.07.2007, Blaðsíða 34
BLS. 8 | sirkus | 27. JÚLÍ 2007 „Við erum að flytja þar sem Hermann var að skipta um klúbb og höfum keypt hús í Poole, litlum strandbæ við suðurströnd Englands. Næst á dag- skrá er að koma okkur fyrir,“ segir Ragna Lóa Stefánsdóttir eiginkona knattspyrnumannsins Hermanns Hreiðarssonar. Hermann á að baki farsælan knattspyrnuferil en hann hefur starfað sem atvinnumaður á Englandi frá árinu 1997. Nú hefur hann verið keyptur frá Charlton til Portsmouth og Ragna Lóa er himin- lifandi með nýja liðið. „Þetta er allt í vinnslu og það er alltaf erfitt að skilja við vini og flytja burt. Það er skugga- hliðin á lífi knattspyrnumannsins. Við þurfum að pakka öllu niður og flytja þangað sem hann er seldur. Mér líst mjög vel á Poole, þetta er skemmtileg- ur og líflegur strandbær og það verð- ur gaman að upplifa þá menningu í Englandi. Portsmouth er líka spenn- andi kostur því þjálfarinn, Harry Red- knapp, sem er hálfgerð þjálfaragoð- sögn hér í Englandi, er búinn að vera á eftir Hermanni í mörg ár og hefur nú loksins tekist að negla hann svo það eru spennandi tímar framundan,“ segir Ragna Lóa brosandi. Tvístígandi í fyrstu Ragna Lóa og Hermann eiga saman tvær dætur en Ragna Lóa átti tvö börn fyrir. Þegar Hermanni bauðst að fara út að spila ákvað Ragna Lóa að vera heima á Íslandi fyrst um sinn. „Hann bjó úti í heilt ár áður en við komum út til hans. Við vildum fara hægt í sak- irnar og vorum því í fjarsambandi til að flana ekki að neinu. Þegar við sáum að allt gekk að óskum ákvað ég að flytja til hans. Ég var mjög tvístígandi í fyrstu en ástin er öllu yfirsterkari,“ segir Ragna Lóa og bætir við að börn- um hennar og Hermanni hafi ávallt komið vel saman. Í dag eru elstu börn- in flutt aftur heim til Íslands og eyðir Ragna Lóa því miklum tíma á Íslandi. „Ég rek eiginlega tvö heimili, eitt hér og annað úti og yfirleitt er ég hérna yfir sumarið og kem öðru hvoru yfir veturinn,“ segir Ragna Lóa sæl með lífið og tilveruna. Aðspurð segist hún ekki hafa þurft að fórna eigin frama fyrir Hermann, hún hafi sjálf átt sinn knattspyrnuferil á sínum tíma og eigi marga titla í farteskinu, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hún geri það sem henni langi til að gera og sé til að mynda í fjarnámi frá Kennaraháskóla Íslands. „Ég myndi elta hann til Kína, það væri ekki málið. Ferðalög eru hluti af fjölskyldunni og við förum þangað sem atvinnan kallar. Ég lifi mjög skemmtilegu lífi og hef það alveg hrikalega gott, get ferðast mikið og hef nógan tíma fyrir börnin mín og manninn. Ég var búin að mennta mig áður en við fórum út og er að mennta mig enn frekar og er fullkomlega sátt.“ Njótum þess að vera til Aðspurð hvort eitthvert sannleiks- gildi sé í sjónvarpsþáttunum Foot- baller’s Wives segir hún svo vera. „Auðvitað er hægt að finna þessar týpur hvar sem er og ég á vini sem lifa svona lífi. Það er samt ekkert endilega fólk í fótboltaheiminum heldur líka viðskiptamenn og aðrir sem hafa áhuga á þessu innantóma lífi þar sem allt snýst um peninga, útlit og skemmtanir. Hins vegar eru mun fleiri sem lifa þessu eðlilega fjölskyldulífi.“ Hinn týpíski dagur í lífi Rögnu Lóu hljómar afar vel og það er greinilegt að samverustundir fjölskyldunnar eru í fyrirrúmi. „Dagurinn byrjar á því að ég fer með stelpurnar í skólann sem getur tekið langan tíma, fer eftir umferð. Svo sinni ég heimilinu og hugsa um heilsuna. Eins og flestir vita hef ég alltaf verið mikið fyrir íþróttir og er dugleg að hlaupa og æfa í rækt- inni og svo hef ég einnig verið dugleg að sækja þjálfaranámskeið hjá Knatt- spyrnusambandi Íslands og hef áhuga á að starfa því tengt í framtíðinni. Hermann kemur svo heim í síðasta lagi um tvöleytið og þá erum við að dúlla okkur saman það sem eftir lifir dagsins og njóta þess að vera til. Við lifum ótrúlega afslöppuðu lífi fyrir utan fótboltann og eyðum miklum tíma saman.“ Ragna Lóa á í engum erfiðleikum með að lýsa Hermanni og lýsingarorð eins og frábær og heiðarlegur koma fyrst upp í huga hennar. „Hann er alveg frábær eiginmaður og félagi, traustur og heiðarlegur og bara alveg ótrúlega skemmtilegur og góður faðir,“ segir hún og stoltið leynir sér ekki. Þegar hún er beðin um að lýsa sjálfri sér hugsar hún sig um. „Ég myndi segja að ég væri lífsglöð og traustur vinur vina minna. Það borg- ar sig samt ekkert að styggja mig. Ég er mjög gestrisin og hef gaman af því að taka á móti fólki, húsið mitt er allt- af opið. Síðast en ekki síst er ég afar hamingjusöm og mjög ástfangin,“ segir hún og brosir. Munum alltaf hafa gaman af lífinu Ragna Lóa segir að frægð Hermanns aukist með hverju árinu. Honum hafi tekist að skapa sér góðan orðstír og sé orðinn einn af þekktustu varnar- mönnum Englands. „Hermann er þessi týpa sem er allstaðar vel liðinn. Það fer allstaðar gott orð af honum og fjölmiðlar hafa aldrei haft neitt nei- kvætt um hann að segja. Hann gefur Í FJARBÚÐ Í HEILT ÁR RAGNA LÓA STEFÁNS- DÓTTIR er eiginkona knatt- spyrnumannsins Hermanns Hreiðarssonar. Ragna Lóa er alsæl með lífið og tilveruna og segist myndu elta Hermann til Kína. Fjölskyldan er að koma sér fyrir í litlum strandbæ í Bretlandi og framtíðin er björt. RAGNA LÓA „Ég lifi mjög skemmtilegu lífi og hef það alveg hrikalega gott, get ferðast mikið og hef nógan tíma fyrir börnin mín og manninn. Ég var búin að mennta mig áður en við fórum út og er að mennta mig enn frekar og er fullkomlega sátt.“ MYND/ANTON „HANN ER ALVEG FRÁ- BÆR EIGINMAÐUR OG FÉLAGI, TRAUSTUR OG HEIÐARLEGUR OG BARA ALVEG ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGUR OG GÓÐUR FAÐIR.“ FLOTTUR GÆI Hemmi Hreiðars er í ótrúlega góðu formi eins og atvinnumanna er siður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.