Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 4
Festingar fyrir hraðaskynjara
eru taldar hafa orðið til þess að
flotholt björgunarþyrlunnar TF-
SIF rifnaði eftir nauðlendingu úti
af Straumsvík 16. júlí síðastliðinn.
Gögn úr hljóðrita þyrlunnar hafa
borist Rannsóknarnefnd flugslysa
(RNF) og eru til rannsóknar.
Þorkell Ágústsson, forstöðu-
maður RNF, segir að frumrann-
sókn á þyrluslysinu sé rétt ólokið.
Ráðgjafar á vegum Rannsóknar-
nefndar flugslysa í Frakklandi
hafa aðstoðað RNF við rannsókn-
ina, þar á meðal sérfræðingur frá
hreyflaframleiðandanum TurboM-
eca og frá framleiðanda flotholt-
anna sem þyrlan var útbúin. „Við
teljum að festingarnar hafi nudd-
ast við bæði fremri flotholtin með
þeim afleiðingum að annað þeirra
rifnaði. Þetta er til frekari skoðun-
ar. Við viljum læra af þessu og
jafnvel breyta um staðsetningu
þessara festinga á öðrum
þyrlum.“
Þorkell segir að ekki sé enn
vitað af hverju snúningur á aðal-
hreyfli þyrlunnar féll með þeim
afleiðingum að flugstjóri hennar
þurfti að lenda henni á sjónum.
„En okkur hafa borist hljóðrita-
gögnin og þau voru heil og gagn-
leg.“ Eftir er að vinna betur úr
gögnum hljóðritans auk þess sem
hreyflar þyrlunnar og kerfi tengd
þeim eru til rannsóknar með full-
tingi sérfræðinganna frá Frakk-
landi.
Festingar sprengdu flotholtið
Bandaríkin, Evrópusamband-
ið og Búlgaría stóðu árum saman í
erfiðum en að mestu leynilegum
samningaviðræðum við stjórn
Moammars Gaddafi í Líbíu um
örlög búlgörsku hjúkrunarfræðing-
anna fimm og palestínska læknis-
ins, sem framseld voru til Búlgaríu
í byrjun vikunnar.
Skriður virðist þó ekki hafa kom-
ist á málin fyrr en eftir að Nicolas
Sarkozy var kosinn Frakklandsfor-
seti. Bæði hann og Cecilia eigin-
kona hans þykja hafa unnið nokkuð
afrek með því að leiða málið til
lykta.
Í gær fordæmdu hins vegar ætt-
ingjar líbísku barnanna, sem smit-
uðust af alnæmisveirunni fyrir tíu
árum, ákvörðun forseta Búlgaríu
um að náða hjúkrunarfólkið. Stjórn-
völd í Líbíu komu sömuleiðis mót-
mælum á framfæri við sendiráð
Búlgaríu í gær þar sem náðunin er
sögð vera „brot á samkomulagi“
milli landanna, og kröfðust opin-
berrar skýringar.
Boris Velchev, aðalsaksóknari í
Búlgaríu, vísaði þessum mótmæl-
um þegar í stað á bug og sagði ekk-
ert athugavert við náðun fanganna.
Margt hefur verið óljóst um
samningana sem leiddu til þess að
Líbía féllst á að framselja fangana
til Búlgaríu en þau mál hafa þó
verið að skýrast á síðustu dögum.
Hjúkrunarfólkið var ekki fram-
selt frá Líbíu til Búlgaríu fyrr en
ættingjar barnanna, samtals 460
fjölskyldur, höfðu síðastliðinn
sunnudag fengið greitt jafnvirði 60
milljóna króna hver, auk þess sem
Evrópuríki höfðu veitt tryggingar
fyrir því að börnin myndu hljóta
viðeigandi læknismeðferð eftir því
sem þörf krefur allt til æviloka.
Ekki er vitað hvaðan peningarnir
sem ættingjarnir fengu er komið,
samtals 460 milljónir dala, en Sar-
kozy þykir hafa gefið ákveðna vís-
bendingu um það þegar hann hrós-
aði stjórnvöldum í Katar fyrir að
hafa átt stóran þátt í að leysa
málið.
Á miðvikudaginn, þegar Sarkozy
var í heimsókn hjá Gaddafi, voru
undirritaðir samningar milli Frakk-
lands og Líbíu um samstarf á fjöl-
mörgum sviðum, meðal annars um
kjarnorkuvinnslu. Evrópusam-
bandið hefur einnig fallist á að
veita Líbíu margvíslega aðstoð og
bauð einnig aukin viðskiptatengsl.
Þá sagðist Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
ætla að bregða sér til Líbíu á næst-
unni. „Ég veit að bandarísk fyrir-
tæki hafa mikinn áhuga á að starfa
í Líbíu,“ sagði hún.
Forsætisráðherra Búlgaríu,
Sergei Stanishev, segir vel koma til
greina að afskrifa allar skuldir
Líbíu við Búlgaríu, en þær nema
meira en sem svarar þremur millj-
örðum króna.
Stanishev leggur þó mikla
áherslu á að það yrði gert af mann-
úðarástæðum, en alls ekki megi líta
á það sem „greiðslu lausnargjalds
eða viðurkenningu á sekt“ hjúkrun-
arfólksins.
Líbía fær ógrynnin
öll fyrir fangana sex
Meira og minna leynilegir samningar um framsal hjúkrunarfólksins til Búlg-
aríu hafa skilað Líbíu margs konar hagræði. Bæði ættingjar alnæmissmituðu
barnanna og stjórnvöld í Líbíu gagnrýndu þó í gær náðun fanganna.
„Þetta er stór áfangi í
jafnréttisbaráttunni og ég er
ákaflega ánægð með þessa
ráðningu,“ segir Ragnhildur
Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri
samgönguráðuneytisins, um
ráðningu Jónínu S. Lárusdóttur í
embætti ráðuneytisstjóra
viðskiptaráðuneytisins.
Þrjár konur eru nú ráðuneytis-
stjórar því auk Ragnhildar og
Jónínu er Ragnhildur Arnljóts-
dóttir ráðuneytisstjóri í félags-
málaráðuneytinu. Aldrei áður
hafa svo margar konur gegnt
stöðu ráðuneytisstjóra á Íslandi í
senn. Tvær aðrar konur hafa
verið ráðuneytisstjórar, þær
Berglind Ásgeirsdóttir á árunum
1988 til 2002 og Guðríður
Sigurðardóttir 1993 til 2003.
Þrjár konur ráðu-
neytisstjórar
Starfsleyfi fyrir
tvö þúsund tonna þorskeldi í
Eyjafirði hefur verið staðfest af
umhverfisráðuneytinu. Leyfið
var gefið út af Umhverfisstofnun
árið 2005 til AGVA-Norðurland
ehf. Fyrirtækið Haliotis á Íslandi
ehf. kærði starfsleyfið og sagði
þorskeldið mundu hafa mjög
neikvæð áhrif á eldi í eldisstöð
Haliotis við Hauganes vegna
aukinnar mengunar sjávar.
Umhverfisráðuneytið segir gögn
benda til þess að aukning á
mengun við sjótöku Haliotis
vegna þorskeldisins verði
hverfandi miðað við bakgrunns-
styrk þessara efna í sjónum.
Þorskur ógnar
ekki sæeyrum
Tveir fimmtán ára
drengir kveiktu í bensíni á
bílastæði við einbýlishús í
Lindahverfi í Kópavogi í hádeg-
inu í gær.
Mikinn svartan reyk lagði frá
bílastæðinu og leit út fyrir að um
stórbruna væri að ræða.
Litlu mátti muna að eldurinn
næði að læsa sig í bílskúr hússins
sem og bíl sem stóð á stæðinu.
Bíllinn skemmdist eitthvað
ásamt því að rúða sprakk í
bílskúr hússins. Skamma stund
tók að slökkva eldinn.
Drengirnir voru færðir á
lögreglustöð þar sem foreldrum
þeirra var gert að sækja þá.
Kveiktu í bens-
íni á bílastæði
Björgunarskipin
Húnabjörg á Skagaströnd og Þór í
Vestmannaeyjum voru kölluð út í
gær til að aðstoða báta sem
þurftu aðstoð. Húnabjörgin
aðstoðaði fiskibát sem strandaði á
skeri skammt frá innsiglingunni
til Skagastrandar og Þór var
kallað út til að aðstoða trillu sem
rakst á rekald svo að leki kom að
henni. Bæði björgunarskipin voru
fljót á vettvang og allir komust
heilir heim.
Tveir bátar í
nauð aðstoðaðir
Félagsfundur
Drífanda stéttarfélags í Vest-
mannaeyjum fagnar að komnar
séu verðtölur á rannsóknir er
skera úr um framtíðarsamgöngur
Eyjamanna um jarðgöng.
Í ályktun félagsins kemur fram
að núverandi samgöngukostir
anna ekki flutningsþörf til Eyja
og brýnt sé að fjölga ferðum með
þjóðveginum Herjólfi. Strax
verði farið í endurskoðun
gjaldskrár ferjunnar, enda sé hún
ekkert annað en landsbyggðar-
skattur sem stendur byggð og
atvinnulífi fyrir þrifum.
Vilja trúverð-
uga áætlun