Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 12
Forsætisráð-
herra eyríkisins Trínidad og
Tóbagó í Karíbahafi segir sig
alltaf hafa dreymt um að keyra
rútu. Forsætisráðherrann
trínidadíski, Patrick Manning,
upplýsti um þennan draum sinn í
ræðu meðal flokksfélaga.
„Ég veit ekki hvort ég hef sagt
ykkur öllum leynda löngun sem
ég hef, sem er að keyra rútu,“
sagði Manning. „Ég mun upplifa
þennan draum áður en ég dey.“
Forstöðumaður samgöngufyrir-
tækis í landinu segir það taka
Manning mánuð að fá nauðsynleg
próf til að keyra rútu, þó að hann
sé forsætisráðherra.
Dreymir um að
keyra rútu
Eigendur þakíbúð-
anna á Boðagranda 7 krefjast
þess enn að gervihnattadiskur
sem einn íbúinn festi utan á
blokkina árið 2004 verði fjar-
lægður. Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík hefur í tvígang gefið
leyfi fyrir diskinum en felldi
fyrra leyfið úr gildi þar sem
húsfundur sem samþykkti
diskinn var ekki löglegur.
Eigendur þakíbúðanna segja að
umboð frá öðrum íbúðareigend-
um sem diskeigandinn kom með
á seinni húsfundinn hafi ekki
verið rétt vottuð og hafa kært
leyfisveitingu byggingarfulltrú-
ans til úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingarmála,
sem nú aflar gagna í málinu.
Enn þá andvíg
sjónvarpsdiski
Níu mótmælendur
úr samtökunum Saving Iceland
voru handteknir við Hellisheiðar-
virkjun í gærmorgun. Mótmæl-
endurnir höfðu lokað tveimur
vegum að virkjuninni með því að
hlekkja sig við bíla sem þeir höfðu
komið á. Einn mótmælandinn
hafði klifrað upp í þrjátíu metra
háan byggingarkrana, hlekkjað sig
við hann og fest við hann borða.
Tvo tíma tók að ná manninum
niður.
Með mótmælunum vildi Saving
Iceland mótmæla stækkun
virkjunarinnar og meintum
óheiðarlegum viðskiptaháttum
Orkuveitu Reykjavíkur.
Lögreglan í Reykjavík og á
Selfossi yfirheyrði fólkið í gær.
Níu handteknir
í mótmælum
Sautján þúsundasti Akureyr-
ingurinn kom í heiminn í byrjun
júlí er sveinbarn fæddist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Drengurinn heitir Gabríel
Óskar Dziubinski og er fjórða
barn þeirra Krzysztofs Dziubinski
og Beata Mieczyslawa Dziu-
binska.
Af þessu tilefni heimsótti Sig-
rún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, hjónin á heimili
þeirra og færði þeim blómvönd og
bókina Barnið okkar.
Fjölskyldan hefur átt lögheimili
á Akureyri frá því í febrúar 2004
og líkar vel að búa í bænum, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Númer 17 þúsund á Akureyri
Sími 590 5000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
1
0
2
Eigum frábært úrval nýlegra lúxusfólksbíla og jeppa frá Volkswagen, Audi og Mercedes Benz með
allt að 90% lánum á afar hagstæðum kjörum. Bílarnir eru til sýnis á Bílaþingi, Laugavegi 174.
Opið kl. 10–18 á Laugavegi 174
VW Touareg Dísil R5
skr.d. 29.12.2005
Dráttarbeisli, loftpúðafjöðrun
lykillaust aðgengi, vindskeið
rafmangnsopnun á hlera
leðurinnrétting, krómpakki
Xenon-ljós
Verð 5.690.000 kr.
Norskir vísindamenn við
Oslóarháskóla óska eftir hugrökk-
um og hársnauðum einstaklingum
sem eru tilbúnir til að bretta upp
ermar og láta marglyttu stinga
sig – í nafni vísindanna.
Verið er að prófa sólarvörn sem
á að vernda fólk gegn stungum
marglyttna. Óskað var eftir
hársnauðum tilraunadýrum svo
að marglytturnar ættu auðveld-
ara með að stinga þau.
Tilraunin fer fram í dag og í
gær höfðu aðeins fimm manns
skráð sig til þátttöku. Talsmaður
líffræðideildar háskólans var þó
bjartsýnn á að ná í tíu manna hóp.
Þátttakendur verða síðan
leystir út með þremur flöskum af
sólarvörninni góðu sem vonandi
gerir sitt gagn.
Hársnauðir
stungnir af
marglyttum
Stjórnvöld í Rússlandi
hafa verið dæmd ábyrg fyrir
fjöldamorðum á meira en fimmtíu
tsjetsjenskum borgurum árið
2000. Mannréttindadómstóll Evr-
ópu kvað upp dóminn í gær.
Dómstóllinn dæmdi rússnesk
stjórnvöld til að greiða fimm
manns, sem misstu ellefu skyld-
menni í fjöldamorðunum, 8,5 millj-
ónir króna hverjum í skaðabætur
og rúmar þrjár milljónir króna í
kostnað.
Fórnarlömbin ellefu voru meðal
meira en fimmtíu Tsjetsjena sem
rússneskir hermenn myrtu í þorp-
inu Novye Aldy, sem er nálægt
höfuðborg Tsjetsjeníu, Grosní, í
febrúar árið 2000. Dómstóllinn
komst að þeirri niðurstöðu að
rússneskir hermenn hefðu drepið
fórnarlömbin ellefu og að stjórn-
völd í Rússlandi væru þess vegna
ábyrg fyrir dauða þeirra.
Sjö dómarar, þar af einn Rússi,
gagnrýndu stjórnvöld í Kreml á
óvanalega harkalegan hátt við
dómsuppkvaðninguna. Dómararn-
ir fordæmdu rannsókn stjórn-
valda í Rússlandi á málinu og
sögðu að þau hefðu ekki látið her-
mennina sem frömdu morðin
svara til saka fyrir þau þrátt fyrir
að mikið af sönnunargögnum, og
vitnisburðir sjónarvotta, bentu til
sektar þeirra. Í dómsorðunum
kom fram að vegna þess hversu
rannsókn rússneskra yfirvalda á
morðunum var ábótavant benti
ekkert annað til en að þau bæru
ábyrgð á morðunum.
Dómurinn komst að þeirri nið-
urstöðu að stjórnvöld í Rússlandi
hefðu brotið gegn 2. grein mannn-
réttindasáttmála Evrópu; að þau
hefðu brotið gegn rétti fórnar-
lambanna til lífs og brugðist skyld-
mennum þeirra með því að rann-
saka morðin á „algerlega
ófullnægjandi hátt“. Engum af
hermönnunum hefur verið refsað
fyrir morðin.
Dómararnir komust einnig að
þeirri niðurstöðu að Rússland
hefði einnig brotið 3. grein mann-
réttindasáttmálans því rússnesku
hermennirnir hefðu komið fram
við einn af ættingjum fórnar-
lambanna, Yusp Said-Aliyevich
Musayev, á ómannúðlegan hátt.
Hermennirnir myrtu sjö ættingja
Yusups fyrir framan hann og hót-
uðu að drepa hann ef hann gerði
ekki það sem þeir segðu.
Stjórnvöld í Kreml
ábyrg fyrir morðum
Mannréttindadómstóll Evrópu taldi rússnesk stjónvöld ábyrg fyrir morðum
rússneskra hermanna á meira en fimmtíu Tsjetsjenum árið 2000. Dómstóllinn
taldi að rannsókn stjórnvalda í Moskvu hefði verið algerlega ófullnægjandi.