Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 24
Stanislaw Piotr Kowal er ann-
ar eigandi nýrrar Mini Market
verslunar í Breiðholti. Þar má
fá bæði íslenska og pólska
matvöru.
Stanislaw Piotr Kowal kom hingað
til lands fyrir sjö árum síðan í
atvinnuleit. Hann hafði ekki annað
með sér en eina ferðatösku og
bjartsýni í ótæpilegu magni. Nú er
hann stoltur eigandi tveggja Mini
Market-matvöruverslana, en aðra
þeirra opnaði hann nýlega í Drafn-
arfelli í Breiðholti.
„Þetta er matvöruverslun með
bæði íslenska og pólska matvöru,“
segir Stanislaw hress í bragði, eða
Stan eins og hann er kallaður.
„Ég rak áður verslun í Eddufelli,
þar sem eingöngu var boðið upp á
pólskar vörur. Íslendingar voru
hins vegar svolítið feimnir, sem
varð til þess að okkur Piotr Jaku-
bek, samstarfsfélaga minn, langaði
að opna verslun með íslenska mat-
vöru. Þegar 11-11 lokaði létum við
verða af því að opna hverfisversl-
un með blandaðri matvöru.“
Eins og fyrr sagði er matvöru-
búðin í Breiðholti önnur af tveimur
verslunum sem þeir Stan og Piotr
reka. Er því óhætt að segja að
félagarnir hafi komið ár sinni vel
fyrir borð, þar sem ekki er langt
síðan Stan kom hingað til landsins
sem atvinnulaus maður.
„Ég var atvinnulaus í Póllandi og
ákvað að leita að vinnu á Íslandi,
sem ég hafði frétt af í gegnum vin-
konu mína, búsettri hérlendis,“
útskýrir Stan. „Þá vissi ég lítið um
Ísland, til dæmis hversu fáir búa
hérna og hve erfitt yrði að fá vinnu.
Ég gafst samt ekki upp.“
Stan segist hafa orðið fyrir vissu
menningarlegu áfalli við komuna
til landsins, sem minnti hann í
fyrstu á aðra plánetu, með sínum
svarta sandi, snjó og grjóti hvert
sem augað eygði. Hann var feginn
að finna líf í Reykjavík en fannst í
byrjun lítið til borgarinnar koma,
þótt hann sé á öndverðri skoðun í
dag.
Stuttu eftir komuna til landsins
fékk hann vinnu á bóndabæ og
vann þar næstu sjö mánuðina. Þótt
launin hafi ekki verið sérstök seg-
ist Stan verða bóndanum ævinlega
þakklátur fyrir að hafa veitt sér
tækifæri til að koma undir sig fót-
unum á Íslandi.
„Svo flutti ég í bæinn og vann
um tíma við aðhlynningu aldraðra,“
segir Stan og bætir við að þar hafi
menntunin komið að góðum notum,
þar sem hann er lærður sjúkra-
þjálfari. „Þarna var ég orðinn
ákveðinn í að setjast að og fékk
mér því kvöldvinnu hjá Dominos
til að geta keypt íbúð,“ bætir hann
við.
Stan vann eins og brjálaður
maður næstu mánuðina, stundum
allt að 400 tíma á mánuði, og með
peningunum sem honum tókst að
safna, ásamt láni og góðum ráðum
frá vinnuveitendunum, tókst
honum ætlunarverkið. Nokkru
síðar fóru þeir Piotr að flytja inn
pólskan bjór og vegna þess hve vel
gekk ákváðu þeir að ganga alla leið
með opnun pólskrar matvöruversl-
unar. Fyrst í Breiðholti og síðan
Keflavík. Eins og fyrr sagði sökn-
uðu félagarnir þó Íslendinga og sáu
því ekki annað í stöðunni en að
opna búð með íslenska vöru.
„Við viljum að Íslendingar viti
að þeir eru velkomnir í búðina
okkar,“ segir Stan. „Hérna verður
íslensk og pólsk matvara í boði og
þá ekki bara Prins póló. Við Pól-
verjar kunnum nefnilega að búa til
margt fleira en súkkulaði. Okkar
markmið er að gera það besta fyrir
alla og vonum við að sjá sem
flesta.“
Versla með miklu
meira en Prins póló
Uppskrift Gló
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is