Fréttablaðið - 27.07.2007, Side 38
27. JÚLÍ 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið ferðahelgin
Karlahópur Femínistafélagsins
ætlar að vera á faraldsfæti um
verslunarmannahelgina eins og
undanfarin ár en hópurinn hefur
unnið að forvörnum gegn nauðg-
unum á útihátíðum og víðar.
Gísli Hrafn Atlason er forsvars-
maður karlahópsins og segir hóp-
inn verða á tveimur útihátíðum um
verslunarmannahelgina, í Eyjum
og á Akureyri. „Svo ætlum við að
vera núna um helgina á frönsk-
um dögum á Fáskrúðsfirði,“ segir
Gísli.
„Það sem við gerum er að vera
sýnilegir á staðnum, selja svif-
diska og dreifa límmiðum og
barmmerkjum og þess háttar. Við
spjöllum við gestina um alvarleika
og eðli nauðgana.“
Gísli segir það gríðarlega mikil-
vægt að fá umræðuna upp, bæði
meðal karla og kvenna. „Þetta er
mál sem er alltaf verið að ræða
eitthvað en ristir oft ekki nægi-
lega djúpt.“
Spurður hvort hann hafi séð
árangur af forvarnastarfi karla-
hópsins, segir Gísli: „Já, ég sé
árangur og augljósan mun á því
hvað fólk hefur rætt þetta mun
meira núna en fyrir fjórum árum
þegar við vorum að byrja. Yfirleitt
tekur fólk mjög vel í að spjalla við
okkur og margir koma gagngert til
okkar til að ræða þessi mál.“ - sig
Forvarnastarf gegn nauðgunum
Gísli Hrafn Helgason er talsmaður
karlahóps Femínistafélagsins og segir
hópinn ætla að verða á tveimur stöðum
um verslunarmannahelgina að sinna
forvörnum gegn nauðgunum, á Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stígamót hafa frá stofnun sam-
takanna verið með aðstöðu
fyrir fórnarlömb nauðgana
á helstu útihátíðum verslun-
armannahelgar en að sögn
Thelmu Ásdísardóttur, starfs-
manns Stígamóta, hefur slíkt
smátt og smátt færst yfir á
sveitarfélögin og mótshaldar-
ana og samtökin því dregið sig
í hlé í þessum efnum.
„Fyrst og fremst þarf að vera að-
staða á útihátíðum fyrir fólk til að
koma á ef eitthvað kemur fyrir,“
segir Thelma og bætir því við að
stundum hafi slík aðstaða ekki
verið nógu vel merkt eða ekki
auglýst nægilega vel. „Við höfum
fengið til okkar fólk eftir útihátíð-
ir sem hafði ekki hugmynd um að
það hafi verið aðstaða fyrir það á
staðnum, þannig að það er til lít-
ils að hafa þessa aðstöðu ef enginn
veit af því.“
Thelma segir Stígamót vilja
leggja áherslu á strákana í for-
vörnunum, frekar en stelpurnar,
því í langflestum tilfellum séu það
þeir sem nauðga og þess vegna eigi
skilaboðin að vera til þeirra. „Okkur
leiðast þessi skilaboð um að stelp-
urnar eigi alltaf að passa sig enda
er ábyrgðin ekki þeirra. Ábyrgðin
er þeirra manna sem nauðga þess-
um stelpum og í sumum tilvikum
strákum líka,“ segir Thelma.
Spurð hvaða skilaboð séu þá
réttust til strákanna fyrir versl-
unarmannahelgina, segir Thelma:
„Það er fyrst og fremst þessi gamla
góða klisja að nei þýðir nei. Það að
stelpa hafni ekki kynlífi þýðir ekki
endilega að hún vilji það. Síðan vil
ég minna strákana á það að stúlku
sem er ofurölvi og getur ekki tjáð
sig eða rönd við reist á að láta vera
en ekki líta þannig á að hún sé að
samþykkja kynlíf þótt hún sýni
einhverja smá viðleitni.“ Thelma
bætir því við að samfarir án sam-
þykkis sé nauðgun og eins ef mök
eru höfð við áfengisdauða stúlku.
„Nauðgun fylgja alvarlegar af-
leiðingar fyrir þolandann þannig
að það má alls ekki líta léttvægt á
slíkt því nauðgun er stór glæpur en
ekki eitthvað léttvægt sem hægt
er að humma fram af sér,“ segir
Thelma. „Eitt atriði finnst mér líka
rétt að benda öllu fólki á en það er
að hafa auga hvert með öðru og
standa ekki aðgerðalaus hjá ef það
sér eitthvað gerast. Grípið inn í því
það hefur allt áhrif,“ bætir hún við
og minnir að lokum fólk á að vera
óhrætt við að taka afstöðu gegn
nauðgunum. - sig
Beinum skilaboð-
unum til strákanna
Thelma Ásdísardóttir, starfsmaður Stígamóta, segir að skilaboðin eigi að beinast til
strákanna en ekki stelpnanna þar sem þeir eru alla jafna gerendur í nauðgunarmál-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Margar fjölskyldur leggjast í
ferðalög um verslunarmanna-
helgina. Þá er nauðsynlegt að
huga að afþreyingu í bílnum
og á áfangastað.
Út að leika
Ferðahandbók
fjölskyldunnar er skipt eftir
landshlutum. Bókin tekur
fyrir skemmtilega staði
og fróðleik sem hentar vel
börnum. Penninn Eymunds-
son kr 3.690
Ferðahengi fyrir vatnsflösku, smá nammi,
Andrésblað, liti og ferðaspilara. Sumir krakkar
verða bílveikir við lestur og þá er gott ráð að
hlusta frekar á hljóðbækur sem fást á flestum
bókasöfnum. Penninn Eymundsson kr. 2.430
Rúbbíbolti sem kemur allri fjöl-
skyldunni í gott skap eftir ærlega
grillveislu. Útilíf kr. 1.590
Línuskautar eru góð leið til að leika sér
og hreyfa sig. Passa að nota hjálm og
allar hlífar. Útilíf kr 9.990
Víkingakubb er miklu
betra en sjónvarp og
tölvuspil í sumarbú-
staðnum. Útilíf kr 4.999
Svifdiskur fyrir mömmur og
pabba sem hafa ekkert þarf-
ara að gera í fríinu annað en
að leika sér. Leikbær kr. 195
Blakbolti kemur að góðum
notum í fjörunni eða við
tjaldið. Útilíf kr.1250