Fréttablaðið - 27.07.2007, Síða 48
27. JÚLÍ 2007 FÖSTUDAGUR14 fréttablaðið ferðahelgin
Bíldshöfða 12 - 110 Reykjavík - Sími 577 1515 - www.skorri.is
Sumarhús og ferðalög
Alvöru kælibox 12v / 24v/ 230v
Mjög sparneytin.
Sunwind gasgrill.
Niðurfellanleg hliðarborð.Zero gaskæliskápur
Áriðill
12v í 230v 110w
Olíu ofn
Sólarrafhlöður og fylgihlutir.
10-80w
Sólarrafhlöður
fyrir húsbíla
og fellihýsi.
þunnar
75 - 130w
Gas vatnshitarar
5 - 14 l/mínGas ofn
Coolmatic 12v
ísskápar m/ kælipressu
Kælibox
gas/12v/230v
Gas
hitari
Gas eldavélar
og helluborð
Kaffi vél 12v / 24v
(fyrir 1 bolla)
Tilvalið er að
setja svefnpokann
í strekkipoka svo
hann taki sem minnst
pláss. Einnig er hægt að
setja föt í pokann.
Flestum bakpokum er skipt upp í fleiri
en eitt hólf. Gott er að geyma það
sem ætlað er fyrir svefninn, svo
sem svefnpoka og dýnu, í
neðri hluta pokans.
Sjúkrakassi og aðrir hlutir sem ekki er gert ráð
fyrir að nota eru geymdir á óaðgengilegasta
staðnum, botninum.
Áttaviti, kort, vasaljós
og annað sem oft er
gripið til er geymt í
topphólfinu.
Ákveðin list felst í því að raða rétt ofan
í bakpokann þannig að hann virki sem
léttastur fyrir göngumanninn.
Það er ekki eins auðvelt og það hljómar að
pakka ofan í bakpoka. Að ýmsu þarf að huga
svo maður erfiði ekki frekar fyrir sér í göng-
unni, til að mynda að tjaldið, maturinn og annað
sem vera á meðferðis, vegi eins lítið og hægt er.
„Maður á fyrst og fremst að halda allri þyngd
nálægt bakinu,“ segir Steinar Sigurðsson sölu-
maður í Everest. „Þetta virkar eins og vogar-
afl, ef eitthvað þungt er langt frá bakinu verð-
ur pokinn þyngri. Síðan eru tvær kenningar um
það hvort þyngdin eigi að vera ofarlega eða neð-
arlega. Ef hún er hátt uppi leggst þyngdin meira
á mjaðmirnar, en á móti kemur að maður hefur
lélegra jafnvægi heldur en ef þyngdin er neð-
arlega. Því er gott að hafa þyngdina ofarlega ef
gengið er á sléttlendi en neðarlega ef verið er
að ganga í bröttu landslagi eða til að mynda á
gönguskíðum.“
Steinar segist ekki geyma neitt utan á pokan-
um eins og sumir eiga til að gera. „Það sem er
utan á pokanum tekur á sig vind ásamt því að
sveiflast til sem er óþægilegt á göngu. Það er
því um að gera að nýta allt loftrými í pok-
anum, til dæmis að vera ekki með tóman
pott heldur setja varahúfuna sína ofan
í hann.“ Þegar allt er komið ofan í pok-
ann og honum hefur verið lokað er svo um að
gera að strekkja eins og hægt er, bæði að minnka
hann og færa hann nær sér. „Þannig færir
maður þyngdina að bakinu og hlutirnir
veltast ekki um í pokanum,“ segir Stein-
ar að lokum.
Allir hlutirnir á myndunum fást í
versluninni Everest.
mariathora@frettabladid.is
Raðað ofan í bakpokann
Sniðugt er að setja varaföt í vatnsheldan
poka ef allt annað skyldi blotna. Þau geta
verið geymd neðst í bakpokanum enda koma
þau vonandi ekki að gagni.
Viðgerðateip eru gagnleg
og geta bjargað allt frá
hælsærum upp í biluð
bakpokahólf. Ekki
þarf að taka alla rúlluna
heldur er nóg að líma snifsi
hér og þar, til dæmis rúlla
utan um göngustafina.
Stafina er síðan hægt að binda
utan á bakpokann.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vatnsflöskur eru plássfrekar en
vatnspokar taka sáralítið pláss tómir.
Best er að hafa pokann
uppvið bakið, þannig
færist þyngdin að
bakinu og vatnið
frýs ekki ef
frost er úti.