Fréttablaðið - 27.07.2007, Page 50
27. JÚLÍ 2007 FÖSTUDAGUR16 fréttablaðið ferðahelgin
Orra Hugin leikara finnst allar
verslunarmannahelgar eftir-
minnilegar á sinn hátt. Orri og
félagar hans hafa það fyrir sið
að elda sjö kíló af humri þessar
helgar og veðja svo hversu mikið
magn skemmist.
„En það allra eftirminnilegasta
var þegar ég var fimmtán ára og
fór ásamt þremur vinum mínum
á þjóðhátíð í Eyjum. Við sváfum
allir í minnsta tjaldi sem ég hef
nokkurn tímann séð. Veðrið var
mjög skemmtilegt; fyrstu nótt-
ina var það frábært en þá næstu
gerði svo mikinn storm að kúlu-
tjöld fuku um Herjólfsdal eins
og runnar í spagettívestrum, þar
á meðal var litli tjaldræfillinn
okkar. Þá voru allir settir inn í
íþróttahús.“
Orri upplifði mikla kommún-
ustemningu bæði í dalnum og í
íþróttahúsinu, fólk sem mætti
með ekkert bjargaði sér einhvern
veginn og allir deildu veraldleg-
um eigum sínum. Fólk af öllum
kynjum gerði sér dælt við Orra
en það gekk ekkert, því hann var
svo heillaður af umhverfinu, flug-
eldunum og Árna Johnsen.
En var Orri drukkinn, fimmt-
án ára peyinn? „Ég var ekki eins
fullur og alskeggjaði maðurinn
sem dó ofan í grillið okkar. Hann
hafði eytt um korteri í að fá mig
til að smakka landann sinn með
tilheyrandi oti og poti, landa sem
hann fullyrti að væri afskaplega
góður. En þá hné hann skyndi-
lega eins og slytti til jarðar með
andlitið beint í einnota grillið, og
skoppaði svo fimm sentímetra
til hliðar. Hálft skeggið fuðraði
af honum, og líklega hefur hann
orðið hissa þegar hann rankaði úr
rotinu og leit í spegil.“ - nrg
Svaðilfarir
í Eyjum
Litla tjaldið fauk og Orri Huginn varð
að hafast við í íþróttahúsinu á fyrstu
þjóðhátíð sinni fyrir tólf árum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Gasgrillin ráða ríkjum á
pöllum og svölum Íslend-
inga. Þó eru einhverjir sem
taka kolin fram yfir gasið
og finnst ekki alvöru grill-
matur nema eldað sé yfir
glóandi kolum. En hver er
munurinn á þessum tveim-
ur matreiðsluleiðum?
KOLAGRILL
Kolagrill hitna meira og gefa
betra bragð af matnum. Það
fer minna fyrir þeim og auð-
velt að taka þau með sér í ferða-
lög. Á hinn bóginn tekur þau
langan tíma að hitna og þeim
fylgja meiri óhreinindi því allt-
af þarf að losa sig við notuð kol.
Erfitt er að stýra hitanum og það
þarf að fylgjast vel með þeim.
Kolagrillið tapar smám saman
hita eftir því sem kolin brenna
og nauðynlegt að bæta við nýjum
ef halda á hitanum lengi gang-
andi. Kolagrill tekur langan tíma
að kólna alveg svo ekki er hægt
að ganga frá brenndum kolum
strax eftir notkun. En hins vegar
er mikil stemning við að grilla
með kolum og það gefur manni
tilfinningu fyrir að verið sé að
elda yfir opnum eldi.
GASGRILL
Gasgrill eru mun þægilegri
í notkun. Auðvelt er að
kveikja upp í þeim, þau
hitna samstundis og gott
er að stjórna hitanum. Lítið
mál er að þrífa þau auk þess sem
þau eru ætíð tilbúin til notkunar
svo lengi sem gasið dugar. Hins
vegar gefa þau matnum ekki
þetta sérstaka bragð sem kolin
kalla fram. Gæta þarf öryggis
við gasgrill og muna að skrúfa
fyrir gasið að eldun lokinni.Gas eða kol?
í góðu tjaldi
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Tjaldaland
Útilífs er við
hliðina á
TBR-höllinni
The North Face Tadpole
2ja manna
Göngutjald.
Verð 32.990 kr.
Troðfull flöt af
uppsettum
tjöldum!
Sumartilboð
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2
Á
L
F
H
E
IM
A
R
G
R
E
N
S
Á
R
S
V
E
G
U
R
Tjaldaland
Taranto Plus 6 manna
Fjölskyldu-braggatjald með tveimur
svefntjöldum. Stórt fortjald
með dúk milli svefntjaldanna.
Opnast á tvo vegu.
Verð 29.990 kr.
Como 4ra manna
11.990kr.
Como 6 manna
14.990kr.
Andros 6 manna
Fjölskyldu-braggatjald með tveimur
svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk.
Öflugar álsúlur.
Verð 42.990 kr.
Lindos 6 manna og 8 manna
Fjölskyldu-braggatjald með
mikilli lofthæð. Rúmgott fortjald.
Öflugar álsúlur.
Verð 44.990/49.990 kr.
The North Face Rock
2ja manna
Göngu-kúlutjald.
Verð 22.990 kr.
Njóttu sumarsins
Nevada 3ja manna
3ja og 4ja manna sígilt kúlutjald.
Verð 6.990kr.
Kira 3ja og 4ra manna
Kúlutjald með fortjaldi.
Verð 8.990/10.990 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
38
32
8
07
/0
7
Como 4ra og 6 manna
Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum.
Fortjald er á milli svefntjaldanna.
Tveir inngangar.
Verð14.990/19.990 kr.